Vikan - 09.09.1971, Side 27
Hjónin ásamt börnunum á
heimili foreldra Sigurðar
í Hafnarfirði.
— Þú hefur að sjálfsögðu
sungið með mörgum þekktum
óperusöngvurum?
— Jú, þeir eru orðnir all-
margir. Ég get til dæmis nefnt
Irmgard Seefried, Elizabeth
Schwarzkopf, Sena Jurenac,
Mario del Monaco, Wolfgang
Windgassen, Fritz Wunderlich.
Þá hef ég sungið undir stjórn
hins fræga hljómsveitarstjóra
Karls Böhm, sem flestir tón-
listarunnendur munu þekkja
til. Auðvitað var lærdómsríkt
og ánægjulegt að kynnast og
vinna með þessu fólki öllu, en
ég held helzt að Wunderlich
sé mér minnisstæðastur af þeim
öllum. Við vorum góðjr kunn-
ingjar. Hann lézt af slysförum
1967.
—• Þú minntist á Mozart.
Menn eru stundum hissa á því,
að hann skrifaði óperur sínar
við ítalska texta.
— Hann mun hafa verið
hvað fyrstur þýzkumælandi
manna til að semja óperur, svó
að ekki er víst að þýzkir text-
ar hafi legið á lausu. Þar að
auki hafa margir fyrir satt að
ítalska sé flestum málum bet-
ur fallið til söngs. Fjöldi og
tíðni hljóðstafa í því máli ræð-
ur hér miklu. Sem dæmi. má
— Starf þitt hefur samt sem
áður ekki eingöngu verið bund-
ið við Kassel?
— Nei, langt í frá. Ég hef
sungið sem gestur víða síðan
ég flutti þangað, í Miinchen,
Frankfurt am Main, Stuttgart,
Lubeck og víðar. í Lúbeck söng
ég með Ólafi Þ. Jónssyni sem
þar starfaði, en er nú kominn
að óperunni í Mainz. Það bar
þannig til að ég var nýkominn
frá Austurríki heim til Kassel
og var að syngja þar í Cosi fan
tutti. f hléinu var hringt í mig
frá Lúbeck og ég beðinn að
syngja þar daginn eftir í óper-
unni Zár und Zimmermann
eftir Lortzing, sem kallaður
hefur verið Mozart Þýzkalands.
Mozart var jú ekki Þjóðverji,
heldur Austurríkismaður.
— Er ekki erfitt að taka
þannig við hlutverkum undir-
búningslaust?
— Jú, maður verður að vera
aðgætinn, þegar maður kemur
inn á sviðið, sjáandi þá kann-
ski mótleikarana og hljómsveit-
arstjórann í fyrsta sinn. í þessu
tilfelli spurði ég stúlkuna, sem
hringdi í mig frá Lúbeck, hvort
textinn væri sá venjulegi, en
í Þýzkalandi er algengt að leik-
húsin og óperurnar breyti hon-
um eitthvað, hvert fyrir sig,
eins og þau telja henta. Nei,
hún sagði að breytingarnar
væru sama sem engar. Þar eð
ég kunni venjulega textann,
taldi ég ekkert að óttast og
féllst á að koma. Ég ók til Lú-
beck frá Kassel og var kominn
þangað klukkan hálfsjö, en sýn-
ingin átti að byrja klukkan
átta. En þá sýndi sig að heil-
miklar breytingar höfðu verið
gerðar á textanum, gagnstætt
því sem mér hafði verið sagt,
og ég hafði aðeins hálfan ann-
an tíma til að læra textann með
breytingunum, fyrir utan svo
það að búa mig. En þá var ég
kominn of langt til að aftur
yrði snúið.
— Og hvernig gekk?
— Þetta tókst ágætlega. Ég
hafði það af að læra breyting-
arnar á þessari smástund, sem
var til stefnu, en hvort ég
mundi þær lengi á eftir, það
er annað mál.
Nú fer ( hönd sýning á Don Giovanni í Kassel, og mun Sigurður syngja
aðaltenórhlutverkið, Ottavio. Hann er þegar farinn að búa sig undir
það, hér heima í stofu foreldra sinna.
36. TBL. VIKAN 27