Vikan - 09.09.1971, Qupperneq 41
inu og farþegarnir hentu ýms-
um munum til þeirra og síðan
hófst kafsund þeirra eftir þess-
um hlutum. Ein af dömunum,
sem fylgdist með þessu og Arne
Borg hafði kynnzt á leiðinni,
horfði kankvís til hans og sagð-
ist efa, að hann væri betri sund-
maður en þeir sem í sjónum
voru. Svar Arne Borg við þess-
ari athugasemd dömunnar var
rösklegt og vakti svo sannar-
lega athygli. Hann stakk sér í
sjóinn og reyndi að gera þeim
innfæddu það skiljanlegt, að
hanp óskaði eftir kappsundi við
þá. En þeir skildu ekki neitt.
Hann greip þá til þess ráðs að
kaffæra einn þeirra það rösk-
lega, að þegar hann kom upp á
yfirborðið var hann helblár í
framan; hófst mikill eltinga-
leikUr í kringum skipið. Arne
átti ekki í neinum erfiðleikum
með að forða sér og þá gáfust
þeir innfæddu upp, sem betur
fer, sagði Arne á eftir, því að
nú fann hann, að úthaldið var
ekki nægilegt, eftir nætursvall
og dans hvert einasta kvöld á
skipinu. Ef eltingaleikurinn
hefði staðið lengur er hætt við,
að skipshöfnin hefði orðið að
draga mig meðvitundarlausan
um borð aftur, svo að notuð séu
hans eigin orð. — Móttökurn-
ar í Ástralíu voru frábærar,
þær hefðu tæpast verið betri,
þó að sjálfur prinsinn af Wales
hefði komið í heimsókn í þenn-
an heimshluta. Veizlur og mót-
tökur, margar á dag. Arne Borg
gat ekki verið þekktur fyrir
annað en að þiggja þessi glæsi-
legu boð. Með skemmtilegum
ræðum á óaðfinnanlegri ensku,
þar sem brandararnir fuku,
var hann allra eftirlæti og
kvenfólkið elti hann, hvert sem
hann fór. Því miður hafði þetta
ekki heppileg áhrif á afrek hans
á sundmótunum og Charlton
sigraði glæsilega á öllum mót-
unum þremur, sem þeir tóku
þátt í. Þegar Arne hafði tapað
í fyrstu keppninni vann hann
hjörtu allra, er hann tók skektu
og reri með sigurvegarann í
sundlauginni, og bað alla við-
stadda að hilla hann með húrra-
hrópum. Arne var ekki fagnað
minna en Charlton við afhend-
ingu verðlauna. Um kvöldið
þekktist hann boð til stærsta
leikhúss Sydney og þar afhenti
primadonnan, Gladys Mon-
creiff, honum fagra perlu sem
gjöf í sambandi við frumsýn-
ingu á Kátu ekkjunni.
En Arne Borg var ekki skap-
laus og mitt í allri gleðinni fór
hann að þyrsta í hefnd yfir
Charlton. Það fór að síga í
Arne, þegar Charlton forðaðist
að keppa frekar við hann eftir
sigrana þrjá, en loksins fannst
honum tækifærið koma. Meist-
aramót Ástralíu átti að fara
fram í New South Wales og
Charlton átti að verja titil sinn
í enskri mílu. Arne lét skrá sig
í sundið, en á keppnisdaginn
tilkynnti Charlton, að hann
myndi ekki taka þátt í mílu-
sundinu. í þess stað tók hann
þátt í 500 metra sundi og setti
nýtt ástralskt met á vegalengd-
inní. En nú náði gremja Arne
hámarki og hann logaði af
reiði, ef svo má segja. Hann
gekk til tímavarðanna og bað
þá alla að vera viðstadda og
taka löglegan tíma við 500, 1000
og mílu. Síðan hófst sundið.
Tímaverðimir héldu að nú væri
Svíinn orðinn snarvitlaus, er
millitími hans við 500 metra
var 11 sekúndum betri en ný-
sett met Charltons. Sundið hélt
áfram og undrunarkliður fór
um áhorfendaskarann, þegar
tilkynnt var, að millitími Arne
við 1000 metrana hefði verið
24 sekúndum betri en heims-
metið og loks þegar sundinu
lauk og þulurinn tilkynnti, að
Arne Borg hefði bætt 11 ára
gamalt heimsmet um 1 mínútu
og 5 sekúndur brutust út
óstjómleg fagnaðarlæti. Þá má
heldur ekki gleyma heimsmeti
í 1500 m en millitíminn var
einnig betri en gamla heims-
metið. Arne Borg hafði talað!
Að sundinu loknu bauð einn af
aðdáendum hans honum 350
flöskur af beztu víntegundum
sínum. Þessar vínbirgðir munu
enn vera til staðar í vínkjallar-
anum, ef Arne skyldi aftur
leggja leið sína til Ástralíu.
Að lokinni Ástralíudvölinni,
þar sem Arne Borg sló eign
sinni á öll heimsmet 1 skrið-
sundi var kominn tími til að
hefja undirbúning fyrir Olym-
píuleikana í París árið 1924.
Hann hélt til Bandaríkjanna og
jók þar mjög á frægð sína.
Hann kom auk þess við á Ho-
nolulu og bætti öll hawaiiísk
met og nokkur heimsmet. í
Bandaríkjunum vann hann
mörg afrek, til að byrja með
sigraði hann fimm manna boð-
sundssveit í 500 jarda skrið-
sundi. Þá hélt hann til Chica-
go, en þar voru beztu sund-
menn Bandaríkjanna staðsettir
í þá daga. Bezti sundmaður
36. TBL. VIKAN 41