Vikan - 24.08.1972, Síða 20
HOLLVINUR
NEGRANNA
Hennar eigin börn telja hana ruglaSa. Ku-Klux-Klan hefur í
hótunum við hana. Ríka fólkið í Boston, sem þekkti hana í æsku,
hristir höfuðin þegar minnst er á hana.
Ástæðan: Ruth Chase hefur gert málstað svörtu fátæklinganna í
Mississippi að sínum.
ttingjar hennar álíta
hana geggjaða. Börn
hennar tvö, sem eru
uppkomin, segja það
að vísu ekki upphátt,
en þau eru engu að
síður á sama máli. Yfirstéttar-
fólkið í Boston, en úr þess hópi
er hún, hristir höfuðið yfir því
sem hún gerir, og kallar það
„shocking". En Ruth Chase
segir sjálf: ,.Ef þöngulhausarn-
ir í Boston bara vissu, hve
hjartanlega mér stendur á
sama um hvað þeir hugsa um
mig.“
Hún býr nú í Fayette í Miss-
issippi, fimmtán hundruð
manna bæ, sem varð landsfræg-
ur í Bandaríkjunum 1969, er
hann varð fyrstur bæja og
borga í Suðurríkjunum til að
fá svartan bæjarstjóra. Sá hét
Charles Evers, og hafði bróðir
hans, Medgar Evers, verið
myrtur 1963 af hvítum illvirkj-
um. Þegar Charles Evers tók
við embætti, héldu sumir hinir
hvítu borgarar Fayette að allt
myndi lenda í upplausn í bæn-
um og fluttu á brott. Þegar
bæjarstjórinn nýi opnaði bæj-
arsjóðinn, komst hann að því
að fyrirrennari hans hafði að-
eins skilið honum þar eftir fá-
eina dollara. Og þegar hann
þrátt fyrir það herti upp hug-
ann og skoraði á svarta (sjö-
tíu og fimm prósent) og hvíta
(tuttugu og fimm prósent) íbúa
bæjarins að taka höndum sam-
an í bróðerni, gengu margir
hvítu íbúanna í Ku-Klux-Klan,
sem helzt vill gelda alla negra
og senda þá til Afríku.
Það er aðeins við fyrstu sýn
undarlegt að Ruth Chase, lög-
mannsdóttir og af tignustu ætt-
um hefðarfólksins í Boston,
skyldi fara til Fayette til að
taka þar þátt í félagslegu um-
bótastarfi með svörtum borg-
urum staðarins. Hún hefur
fyrir löngu sagt skilið við upp-
runa sinn; kunni raunar aldrei
við sig í sínu upprunalega um-
hverfi. Þegar hún var barn,
gramdist henni yfirlætistónninn
í röddum foreldranna, er þau
skipuðu þjónustufólkinu fyrir,
og sjálf neitaði hún þá að gefa
skipanir, foreldrunum til mik-
illar gremju. Sem táningur
sótti hún virðulegustu skól-
ana, fór á dansleiki, í hádegis-
veizlur og hóf — „innantóm-
ustu samkomur, sem hægt er
að hugsa sér,“ segir hún í dag.
Foreldrar hennar lögðu sér-
staklega fyrir hana að kynna
sér hvort ungu mennirnir, sem
stigu í vænginn við hana, væru
í Harvard eða að minnsta kosti
í Yale. Um helgar fór fjöl-
skyldan í kirkju og svo í öku-
ferð í vagni, því að svo tigin
var hún að þá enn þótti ekki
sæmandi að hún æki bíl.
En í stað þess að sitja í kirkju
og vagni varði Ruth litla helg-
unum til að hlúa að bækluðum
börnum úr gettóum negranna.
Þetta gerði hún sumpart í mót-
mælaskyni við hefðarfólkið,
sem hún sjálf var runnin frá,
en sumpart „af því að lífið er
ólíkt meira en að hugsa ein-
ungis um sjálfan sig“.
Hún varð sjúkraleikfimi-
kennari. Foreldrum hennar og
öðru fínu fólki í Boston þótti
það með ólíkindum að nokkur,
sem fæðzt hefði til auðs og
áhrifa, skyldi gera sér rellu út
af slöppum vöðvum undir
svartri húð. Hún yfirgaf for-
eldrahúsið og fór til Roxbury,
sem þá var og er enn gettó
þeirra svörtu í Boston. Hún var
skjálfandi af hræðslu, því að
Roxbury var þá álíka hættu-
legur staður hvítri stúlku og
það 'er í dag. Hún skipulagði
tólf miðstöðvar til félagsstarfs,
hélt skóla fyrir fullorðna negra,
sem ekki kunnu að lesa eða
skrifa, heimsótti þá sem voru
einmana og hjálparþurfi. Því
meir sem hún sá af þeim kjör-
um, sem hin hvítu Bandaríki
létu negra sína búa við, því
ljósara varð henni að hún gæti
aldrei lifað með góðri sam-
vizku meðal þeirra hvítu, ef
hún sneri aftur til þeirra.
Nú er hún fimmtíu og níu
ára og hefur búið mestanpart
í fjörutíu ár í fátækrahverfum
ríkasta lands í heimi. Hún var
með í göngu þeirra fátæku til
Washington og göngu svartra
baráttumanna fyrir borgara-
réttindum til Selma. Hún var
einu sinni gift. en hjónabandið
varð henni ekki verulegt lífs-
innihald; hugur hennar var
áfram fyrst og fremst hjá
svörtu fátæklingunum. Það var
því ekki nema eðlilegt að hún
legði leið sína til Fayette, ein-
mitt á því tímabili sem hvítir
menn fluttu sem ákafast úr
bænum. Þá kom hún, svörtum
borgurum staðarins til mikillar
furðu, fram á borgarafundi og
sagði: „Hæ, ég heiti Ruth
Chase. Ég vildi gjarnan búa
hjá ykkur og gera eitthvað
fyrir Fayette."
Svoleiðis nokkuð höfðu negr-
arnir í Fayette ekki áður heyrt
frá hvítri manneskju, svo að
þeir voru tortryggnir •—• „og til
þess höfðu þeir svo sannarlega
Flestum virkum dögum ver Ruth til heimsókna í timburkofana, þar sem
svörtu fátæklingarnir búa.
20 VIKAN 34.TBL.