Vikan


Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 29

Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 29
þunna loft i fjöllunum, en hann varð að láta þetta eftir henni. Þetta ferðalag endaði lika með skelfingu. Kay versnaði tii muna. Nokkrar blóðgjafir héldu i henni lifinu, en svo kom i ljós að hún var með ofnæmi fyrir blóðgjöfunum. Þá var loku fyrir það skotið að hægt væri að bjarga henni með aðfengnu blóði. En svo kom tilboð frá Hollywood þar sem Kay Kendall var boðið aðalhlutverk i skopleik, sem átti að heita „Einu sinni ennþá, elskan”? Það var hægt að taka kvikmyndina i Paris og $ul Brynner átti að vera mótleikari hennar. Kay var himinlifandi, en Harrison hikandi. Ennþá einu sinni leitaði hann til læknanna og einu sinni ennþá var svarið að það skipti ekki svo miklu máli, enda væri allt annars eðlis að leika i kvikmynd, þá yrðu ekki svo margir vitni að þvi ef til kæmi að hún gæfist upp. En læknarnir sögðu lika að mjög litlar likur væru til þess að hún gæti lokið leik sinum i þessari kvikmynd. t upphafi gekk allt að óskum. Kay hafði horast mjög mikið, en Harrison sá um að hi n þyrfti ekki að klæðast flegnum Kjólum. Hann kom þvi lika i kring að hár- greiöslu hennar væri hagað þannig að hárið hyldi bólgna lymfukirtlana. Kay tók til við starfið af miklum áhuga, þar til hún féll saman einn daginn. Það varð að gera hlé á upptök- unni i margar vikur. Framleið- endur voru að gjaldþroti komnir. Þeir höfðu ekki hugmjnd um sjúkdóminn, sem þjáði hana og hótuðu málaferlum. Kay var helsjúk og þreytt, þegar hún sneri aftur til vinnu i kvikmyndaverinu. Þegar hún lék mestu skopatriðin, var hún tæp- lega með meðvitund. En ennþá hafði heimurinn ekki hugmynd um hvernig málin stóðu með heilsu hennar og ekki hún sjálf heldur. Hún hélt ennþá að þetta væri aðeins svona mikið blóðleysi og reyndi að fita sig með þvi að troða sifelt i sig mat. Kamingjusum. nu lauk i mar- tröð. Sumarið 1955 var siðasta sum- arið sem Kay Kendall var á lifi og það sumar upplifði hún mesta hamingju. Rex Harrison hafði keypt einbýlishús á ttaliu og þangað fluttu þau. Hann var samt hálfhikandi við að fly>.ja þangað, það var langt til læknis, en blaðamenn voru allsstaðar ná- lægir. Harrison sagði þeim að konan sin þyrfti á hvild að halda, annars væri ekkert að henni. Þau nutu hinna friðsælu daga, sigldu á vati .iiu og sóluðu sig. . Honum var ljóst að nú var hver siðastur, enda kom áfallið i september. Hún missti algerlega »Nei - heyrðu nú. Notaröu uppbvottalög Uppþvotialögurinn frá Palmolivc mýkir hendumar- meðan þér standið \ið uppþvottinn Já, hin sérstaka samsetning Palmolive verndar hendur yðar, meðan þér þvoið upp, og gerir þær mýkri en nokkru sinni. Uppþvottalögurinn hreinsar líka mataráhöldin, svo að þau verða skínandi björt - og þér þurrkið ekki af þeim. 36. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.