Vikan


Vikan - 07.09.1972, Side 31

Vikan - 07.09.1972, Side 31
ÞEGAR MYRKRIÐ SKELLUR Á Framhald af bls. 22. Hún hristi höfuðið. — Nei, sagði hún, hann hefði aldrei náð því, það sé ég núna, bætti hún við, eins og hún væri að tala við sjálfa sig. — Hvað er það sem þú skil- ur? spurði Bill. — Skilurðu það ekki, Bill? Það hlýtur að hafa verið ein- hver annar. Stephen getur ekki hafa haft tíma til að elta mig upp og komast hingað niður aftur. —- Vertu róleg, Janet, sagði Bill. — Það er enginn annar hér. Hvers vegna hefði Step- hen átt að hafa einhvern með sér hingað? Hann reyndi að láta sem hann væri rólegur, en það var öðru nær, fannst henni og hún féKk hroll í sig. — Komdu, við skulum flýta okkur héðan, sagði hún í bæn- arróm, greip í hann og leit yf- ir öxl hans fram í anddyrið. Stephen lá hreyfingalaus, rétt fyrir framan dyrnar. En einhvers staðar í þessu stóra almyrkvaða húsi, var einhver í felum, — í stiganum eða ein- hverju af tómu herbergjunum. — Góði komdu, hvíslaði hún, — komdu, ég vil komast héð- an. — Eins og þú vilt. Bill lét undan, hann var sjálfur áhyggjufullur á svipinn. — Ég held að þetta sé misskilningur, það er enginn annar hér. En þú hefur fengið nóg í kvöld. Drekktu nú koníakið þitt, sagði hann ákveðinn og losaði sig undan höndum hennar. En þegar hann fór til að ná í böndin af gluggatjöldunum, stóð Janet kyrr. Hún horfði til dyranna, reiðubúin til að reka upp hljóð, ef einhver kæmi þar í ljós. — Flýttu þér. hvíslaði hún. — Hér kem ég með snúruna, heyrði hún að hann sagði, en svo gaf hann frá sér lágt hljóð. Janet sneri sér við, mátulega til að sjá hann koma í áttina til sín, með lampa, reiddan á loft og snúruna á handleggn- um. — Hvað er þetta? spurði hún, en þagnaði svo, þegar hún sá svipinn á honum. Bill kom brosandi til henn- ar og rödd hans var blíðleg og afsakandi, þegar hann sagði: — Þú hefðir átt að drekka úr glasinu, ástin, þá hefðir þú ekki þurft að vita neitt af þessu, þú værir þá í fasta- svefni. — Þú, sagði hún með and- köfum, þegar henni varð ljós hinn hrollvekjandi sannleikur. Það var Bill, sem ætlaði að drepa hana. Bill, ekki Stephen. — Já, ég, sagði hann með uppgerðar hæversku. Hún opn- aði munninn til að æpa og hann sagði: — Já, öskraðu bara, það heyrir enginn til þín. Þeir finna þig, rétt eins og þeir fundu pabba þinn. Og eigin- maður þinn búinn að ráða nið- urlögum morðingjans, sem sleppur ekki heldur núna. —• Þú, — varst það þú sem myrtir pabba minn, hvíslaði hún. — Já, mér þykir fyrir því, en hann komst að óreiðu í bók- haldinu. Hann sendi eftir mér til að tala um það við mig. Ég vissi að hann kæmist að því fyrr eða síðar. Þegar lyfja- skammturinn, sem ég kom í vínglasið hjá Stephen, fór að verka, þá skipti ég um föt við hann og ók honum hingað, til að hitta föður þinn. — En hvernig? Hún vissi ekki hvers vegna hún setti fram þessar spurningar, en það var eins og heili hennar ynni án hennar vitundar, forviða yf- ir þessum staðreyndum, án þess að skipta sér af tilfinn- ingum hennar. — Það var auðvelt. Sjáðu til, Stephen fór úr veizlunni og sofnaði strax í bílnum sínum. Meðan hinir voru að leita að honum, var hann með mér. Þegar ég hafði lokið mér af hjá föður þínum, bar ég lamp- ann út til hans og setti fingra- förin hans á lampafótinn og fór svo inn með hann aftur. Það var anzi erfitt að skipta um föt við hann. Hann fór að rumska og streitast á móti, en svo féll hann útaf aftur við áreynsluna. Ég skildi hann svo eftir í bílnum, fleiri kílómetra frá húsinu og gekk til veizl- unnar. — Hvar varstu, þegar þú hringdir í kvöld? — í símaklefa í Friarham- ton, sagði hann. Hún gat ekki haft af honum augun. — Þú . . . Rödd hennar titraði. — Þú tókst ljósið úr sambandi og þú eyðilagðir símalínuna . . . það varst þú ... Bill, Bill hafði þá elt hana um húsið. Það sem hafði hindr- að hann í að gera útaf við hana fyrr, var óvænt koma Stephens. — Já, það var ég, sagði hann með sömu ljúfu röddinni. — En Stephen sneri öllu á hvolf fyrir mér. Hann þagnaði. Hann ætlar að drepa mig, hugsaði hún. Hún var farin að róast, þótt undarlegt megi virð- ast. Hún varð að halda honum uppi á snakki þangað til ein- hvern bæri að, sem gæti hjálp- að henni. Hún hafði ekki við honum, það var öruggt. — Hvernig gerði hann það, hvern- ig setti hann allt á hvolf hjá þér? Hann leit kuldalega á hana. — Það var meiningin að hann ætlaði að hitta mig hér klukk- an hálfellefu. Ég hringdi til hans í kvöld og sagði honum að ég væri með skjöl, sem hann þyrfti að skrifa undir. Ef allt hefði farið eftir áætlun, þá átti öllu að vera lokið, þegar hann kæmi. Ljósin áttu að vera komin í lag . . . allt átti að líta sem eðlilegast út. Hann átti ekki að gruna neitt . . . Hann hrukkaði ennið. — Hann kom þá til að vara mig við, sagði Janet og rödd hennar heyrðist varla. — Hann kom til að vara mig við og ég — Já, það var lánið mitt, sagði Bill og hló kuldalega. — Ég náði á honum taki, þegar hann kom út úr svefnherberg- inu, sló hann í rot og dró hann hingað niður. Hann þagnaði snöggvast. — Svona nú, það þýðir ekki að vera að þessu kjaftæði. Hann andvarpaði. — Eiginlega þykir mér fyrir því að gera þetta, að sumu leyti er ég hrifinn af þér, en . . . — En hvers vegna gerir þú það þá? Hvers vegna? Hvers vegna? tuldraði hún og hafði ekki hugmynd um að hún var farin að gráta. — Ég verð að ná í pening- ana þína, það er allt og sumt. — Þú hefðir getað fengið þá, án þess að gera þetta, sagði hún. — Þú sagðir alltaf að þú vildir ekki sjá þá. — Þú hefðir átt að þröngva mér til að þiggja þá, sagði hann. — Ég kærði mig ekki um ein- hverjar smáupphæðir. Ég vildi hafa full umráð yfir öllu sam- an. — En hvers vegna sagðir þú mér það ekki? Hún varð að halda áfram að tala við hann. — Þú átt við að ég hefði átt að knékrjúpa fyrir þér? sagði hann með hroka. — Hvers vegna hefði ég átt að gera það? Ég þurfti ekki annað en að leika ástríkan eiginmann, þang- að til Stephen slyppi úr fang- elsinu. Hann var neyddur til að koma hingað í hverfið. Hann átti húseignir hér. Ég komst að því að hann ætlaði að koma hingað í kvöld. Ég frétti hjá umboðsmönnum hans að hann hafði skrifað þeim og beðið þá um að láta húsið vera opið. Hann ætlaði að sækja einhver skjöl og svo átti að selja hús- ið. Hann ætlaði svo að fara af landi burt á morgun. Svo ég varð að láta til skarar skríða í kvöld. Þú skilur, þrátt fyrir allt, varstu búin að ná fullri heilsu. Sú var tíðin að ég hélt að þú værir að verða brjáluð. Það hefði verið auðveldara fyrir mig . . . Hún sá að þetta var tilgangs- laust. Hann hafði undirbúið allt svo vel. Og hún hafði sann- arlega fengið honum trompin í hendurnar. Stephen, sem hafði ætlað að bjarga henni, var hjálparvana sjálfur. En eitt- hvað í fari Bills, þegar hann kom til móts við hana, hroki hans og fyrirlitning, gerði hana reiða. Hún beið, þangað til hann kom nær og þegar hann ætlaði að grípa til henn- ar, smeygði hún sér undan og svo tók hún snöggt hliðarskref og réðist á hann. i Þetta kom honum á óvart og eitt andartak hafði hún yfir- höndina. Hann sleppti lampan- um og greip um háls henni. Hún klóraði hann í andlitið, hún var ekki lengur svo hrædd við hann, en hugsaði, sigri hrósandi: Látum hann útskýra rispurnar í andlitinu fyrir lög- reglunni og sundurrifin fötin sín. Hann þrýsti fastar að hálsi hennar og henni var ljóst að hún gæti ekki lengi barizt á móti, en hún reyndi samt að þjarma að honum eftir megni. Það var eins og dauði hennar sjálfrar væri ekki aðalatriðið lengur, það eina sem vakti fyr- ir henni, var að meiða hann eftir mætti. Hún fann að það var farið að suða ískyggilega fyrir eyrum hennar og að hún var að því komin að missa meðvitund, en svo, allt í einu, sleppti hann takinu um háls hennar og féll til hliðar við hana. Hún saup hveljur og fann hvernig loftið streymdi aftur um lungu henn- ar. — Ég vona að ég hafi drepið hann, heyrði hún Stephen segja. — Ert þú . . . ert þú ómeidd? — Stephen, snökkti hún. — Stephen, hvernig skeði þetta. Hún þagnaði, þegar hún sá að hann tók lampann upp og virti 36. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.