Vikan


Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 34

Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 34
Bók*með alhliða jj uppl/singum um knattspyrnu O Fæst hjá næsta bóksala HiLMiR HF. SKIPHOLTI 33 PÖSTHÓLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK — Þú ert ekki í því ástandi að þú getir farið út, svaraði móðir hans. Richie reyndi að komast framhjá henni en hras- aði um stól og datt á gólfið. Georg heyrði dynkinn niður til sín og kom hlaupandi upp Richie gat dregizt á fætur og hann öskraði til föður síns. — Sagðir þú lögreglunni að ég væri undir áhrifum? — Sagðir þú lögreglunni að ég væri undir áhrifum? Án þess að svara, gekk Ge- org í burtu, en Richie hljóp á eftir honum. — Svaraðu mér! Svaraðu mér! Hann var tekinn í fram- an og titraði eins og lauf í vindi. • Og nú hófst síðasta atriðið í þessum langa hræðilega harm- leik. Georg var ljóst að ekkert þýddi að tala við hann lengur. Og svo var Georg líka orðinn hræddur við Richie. Hræddur við son sinn. Hræddur um að hann myndi geta grandað bæði honum sjálfum og Carol. Ge- org fór. upp í svefnherbergi þeirra hjónanna og náði í skammbyssu sína, sem var geymd á bak við rúrriið. Þar hafði hann komið henni fyrir, vegna þess að hann var hrædd- ur um að Richie gæti fundið hana og þá kannski skotið báða foreldra sína. Honum var trú- andi til þess, enda hafði hann margoft hótað því. • Georg stakk byssunni und- ir beltið og gekk aftur niður í kjallara. Það leið ekki lang- ur tími þangað til Richie birt- ist í kjallarastiganum. Hann var valtur á fótunum, en reyndi samt að fikra sig niður. Hann var með hníf í hendinni. Þegar hann var næstum kom- inn til föður síns, lyfti hann hnífnum og öskraði: — Eg heimta svar við spurn- ingu minni! Georg svaraði honum með því að taka byssuna og miða henni á son sinn. Hann von- aði að með því gæti hann hrætt drenginn burt frá sér. En Ric- hie baðaði út báðum handleggj- um og öskraði: — Jæja, þú ert þá með byssu. Skjóttu þá! Richie óð fram, óstyrkur á fótum og hóf hnífinn á loft. Georg losaði um öryggið á byss- unni. Richie nam staðar, svo baðaði hann aftur út höndun- um og öskraði: — Skjóttu þá! Fingur Georgs titruðu á gikknum. Fingur föðurins. sem héldu um gikkinn, titruðu. Von- brigðin stóðu ljóslifandi fyrir sjónum hans. Hann átti son, sem reyndar var ekki lengur sonur hans; sonur, sem var í margra ljósára fjarlægð. Son- ur hans var skeggjað barn, sonur hans hótaði honum með hnífi, sonur hans var undir áhrifum eiturlyfja. Georg Di- ener skaut. Kúlan gekk beint inn í hjarta Richies. Hann hallaðist aftur að stiganum, hélt hönd- unum um brjóstið og sá blóð- ið. Hann reyndi aftur að lyfta hnífnum, hnífskaftið var löðr- andi í blóði. Þá skaut Georg aftur. í þetta sinn lenti kúlan í veggnum. Richie reis upp og datt svo á grúfu. Georg greip í Carol, sem var á leið niður stigann og ýtti henni upp aftur og inn í dag- stofuna. Svo hringdi hann til lögreglunnar og í sjúkrabílinn. Hann fór aftur niður í kjallar- ann. Richie lá á gólfinu, hljóð- ur, grafkyrr. Georg þreifaði á slagæðinni, — en það fannst enginn æðasláttur. Síðan dróst hann upp stigann, gekk inn til konu sinnar og settist við fæt- ur hennar: — Hann er dáinn. É'g skaut son okkar. —■ Þannig vildi ég aff sonur okkar liti út. Og nú skeði allt í einu. Krufningalæknirinn sagði að í líkama Richies hefði verið mikið magn eiturlyfja, fimm sinnum meira en nokkur lækn- ir hefði skrifað upp á. Georg var tekinn fastur og ákærður um morð. Við réttarhöldin sagði hann að hann hefði ver- ið hræddur um líf sitt og skot- ið son sinn í sjálfsvörn. Hann sagðist hafa verið alvarlega hræddur um líf konu sinnar líka. Hann var sýknaður. — Það eina, sem komst að hjá mér, var að hann myndi örugglega koma aftur og drepa okkur, báða foreldrana, sagði Georg. — Hann var svo oft búinn að hóta því. Þegar vinir Richies komu til að líta á hann í síðasta sinn, varð þeim mikið um, því að þar sem hann lá í kistu sinni, daginn fyrir jarðarförina, var búið að raka af honum skeggið og klippa hár hans. En Georg sagði: — Þannig vildi ég að sonur minn liti út. • í seinni tíð er Georg far- inn að læsa sig inni á herbergi Richies. Þar liggur hann og hugsar og á þann hátt segist hann bezt komast í gegnum andvökunæturnar. ☆ 34 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.