Vikan


Vikan - 07.09.1972, Side 37

Vikan - 07.09.1972, Side 37
Sófasettiö Hertoginn er alveg i sérflokki hvað verð og gæði snertir. Aðeins 59.240. Norsk einkaleyfisframleiðsla IHIÚS«3AONAtil3SIC tlF. Auðbrekku 63, Kópavogi, sími 41694 MÁTTUR DROTTINS Framhald af bls. 13. hjónaband sitt vera affarasælt og hann hafði aldrei leyft sér að hugsa um aðrkr konur. Hann vildi vinna i vingarði Drottins kyrrlátlega og af heilum hug. 1 sál prestsins hófst barátta. Saman við löngum hans til að ná áheyrn Katrfnar Swift, - til að ná til sálarfylgsna hennar með ræðum sinum blandaðist einnig löngum til að horfa aftur á likama hennar, sem lá hvitur og hreyfingarlaus i rúminu. Sunnu- dagsmorgunn nokkurn héldu hugsanir hans fyrir honum vöku. Hann reis á fætur og tók að eigra um göturnar. Hann gekk eftir Aðalstræti og var næstum kominn að Richmondhúsinu, þegar hann stanzaði snögglega og þreif upp stein af götu sinni. Hann flýtti sér með hann upp i herbergið i klukkuturninum. Með steini þessum braut hann horn úr myndskreytta glugganum, læsti siðan hurðinni og settist niður við borðið fyrir framan bibliuna til að biöa. Gluggatjaldið að glugganum á herbergi Katrinar Awift var nokkru siðar dregið upp, og gat hann séð rúm hennar blasa við. En hún var þar ekki. Hún hafði einnig farið á fætur. Hún hafði farið út að ganga. Það var hönd Elisabetar Swift, sem dró upp gluggatjaldið. Presturinn grét næstum af gleði við slika lausn frá hinni holdlegu löngum sinni til að liggja á gægjum.Hann hélt heimleiðis og lofsöng Drottinn hástöfum i hjarta sinu. Hann gleymdi samt að troða upp i gatið i glugganum. Með glerbrotinu hafði einmitt horfið hællin af drengnum, sem stóð hreyfingarlaus og horfði með aðdáun og lotningu á andlit Krists. Séra Hartman gleymdi hinni skrifuðu ræðu sinni sunnudags- morgun þennan, er i stólinn kom. Hann talaði alveg blaðlaust. Hann talaði til safnaðar sins og sagði honum, að fólk ætti ekki að hugsa um prest sinn sem alveg sérstakan mann, mann i sérstöðu, sem hefði verið til þess kallaður að lifa algerlega vammlausu lifi*. „Min hefur verið freistað, og ég hef látið undan freistingunni. Það er aðeins hönd Guðs, sem lyft hefur höfði minu og lyft hefur mér á tætur á ný. Likt og hann hefði lyft mér úr duftinu, mun ég einnig lyfta ykkur upp, reisa ykkur upp úr þvi. örvæntið ekki'. Beinið i augum ykkar til himins á stund syndarinnar, og ykkur mun verða bjargað aftur og aftur.” Presturinn rak hugsanirnar um V snyrtivörur fýrir ofnæma viðkvæma huð ^Fegrunarsérfræöingar aóstoóa yóur viö val á réttum snyrtivörum. cHocms<mcL s.f. cLangholtsvegi 84 Simi35213 cHoltsapótekshúsinu 36. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.