Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 38
Skólaritvélcif
brothef
BROTHER skólaritvélar hafa farið sigurför um landið
og eru nr. 1 á óskalista allra nemenda í landinu og
allra þeirra, sem þurfa að nota ferðaritvélar.
GERÐ 900
3 linubil, auöveld spássiustilling,
'h færsla, 3 litabandsstillingar,
spássiuútlausn, og lyklaútlausn,
ásláttarstillir.
GERÐ 1350
Vélin, sem hagar sér eins og
rafmagnsritvél meö hinni nýju
sjálfvirku vagnfærslu áfram.
8 stillingar á dálka. Hefir auk þess
alla kosti gerðar 900. Er i fallegri
GERÐ 1510
Hefir alla kosti gerðar 1350 og
auk þess valskúplingu og lausan
dálkastilli þannig aö dálka má stilla
inn eöa táka út hvar sem er á
blaðinu. Mjög sterkbyggö vél í
fallegri leöurlikistösku.
GERÐ 1522
Sama vél og gerð 1510, en hefir
30 cm. vals i staö 24 cm. Mjög
hentug varavél fyrir skrifstofur.
tösku úr gerfiefni.
BROTHER skólaritvélar eru úr stáli, eru fallegar
og traustar, en kosta samt minna en allar sambærilegar vélar.
2 ár ábyrgð. ,
BORGARFELL
Skólavöröustíg 23, sími 11372
konuna i rúminu með harðri
hendi úr huga sér. Og nú tók hann
til að umgangast konu sina sem
ástfanginn elskhugi . . . Kvöld
nokkurt óku þau saman eftir
Buckeyestræti. Þaðan hélt hann
út á Fagnaðarerindishæðina fyrir
ofan Tjarnarvatn. Þar tók hann
utan um Söru Hartman. Er hann
stóð upp frá morgunverðar-
borðinu og var á leið til skrifstofu
sinnar, hélt hann nú eigi beina
leið þangað, heldur gekk hann
umhverfis borðið og kyssti konu
sina á kinnina. Hann brosti
aðeins er hugsanirnar um
Katrinu Swift svifu inn i hug hans.
Hann brosti, beindi augum sinum
til himins. „Styrk þú mig,
meistari,” hvislaði hann, - „haltu
mér á hinum þrönga vegi I
stöðugu starfi fyrir málefni þitt.”
Og nú hófst hin raunverulega
barátta í sál hins brúnskeggjaða
prests. Af tilviljun komst hann
að þvi að Katrin Swift hafði það
fyrir vana að liggja I rúminu á
kvöldin, sokkin niður i
bókalestur. Lampi stóð á borði
við rúmið og ljós hans flæddi
niður hvitar axlirnar og nakinn
hálsinn. Presturinn komst að
þessu kvöld nokkurt. Það lryöld
sat hann grafkyrr við skrifborð
sitt frá þvi klukkan niu til klukkan
að ganga tólf. Er ljósið var slökkt
I herbergi hennar, staulaðist hann
loks út úr kirkjunni og eigraði
siðan i tvær stundir um göturnar
og baðst fyrir. Hann vildi ekki
kyssa axlir og háls Katrinar
Swift, og hann hafði ekki heldur
leyft huga sinum að dvelja við
slikar hugsanir. Hann vissi ekki
hvað hann vildi. „Ég er barn
Guðs og hann verður að bjárga
mér frá sjálfum mér,” æpti hann
i myrkrinu undir trjánum er hann
eigraði um strætin. Hann
staðnæmdist undir tré og beindi
augum sinum til himins, sem
þakinn var æðandi skýjum. Hanh
tók að tala innilega viö Guð, -
innilega og náið: „Faðir,
yfirgefðu mig ekki. Gef mér mátt
til að gera við gatið á glugganum i
lesstofunni á morgun. Beindu
augum mínum aftur til himins.
Dvel hjá mér, þjóni þínum. Dvel
hjá honum á þrautastund.”
Presturinn rölti fram og
aftur um þögular göturnar og sál
hans var i uppnámi vikum
saman. Hann gat ekki skilið þá
freistingu, sem hafði náð honum á
vald sitt. Hann gat heldur eigi
skilið, hvers vegna svo var
komið, - hversvegna þessi
freisting hafði gripið hann. Að
vissu leyti tók hann nú að varpa
sökinni á Guð. Hann sagði við
sjálfan sig, að hann sjálfur hefði
ætið reynt að halda sér á hinum
þrönga, sanna vegi og hefði ekki
leitað uppi vegu syndarinnar. „A
æskuárum minum, já, allt mitt lif
hef ég rækt starf mitt i kyrrþey,”
hugsaði hann. „Hvi skyldi min
vera freistað nú? Hvað hef ég
gert af mér? Hvi var þessi byrði
á mig lögð?”
Haust þetta og fyrri hluta
vetrarins læddist séra Curtis
Hartman þrisvar sinnum úr úr
húsi sínu til lesstofunnar i klukku-
turninum til þess að stara þar I
myrkrinu á likama Katrinar
Swift, sem lá I rúmi sinu fyrir
handan. Að þvi loknu eigraði
hann um göturnar og baðst fyrir.
Hann gat ekki skilið sjálfan sig.
Vikum saman varð honum varla
hugsað til Katrinar Swift kenn-
slukonu. Þá taldi hann sér trú um
að hann hefði sigrazt á sinni
holdlegu löngun til að horfa á
likama hennar. En svo gerðist
ætið eitthvað, sem kom honum úr
skorðum. Er hann sat, önnum
kafinn, við að semja ræðu á
skrifstofu sinni, gerðist hann
skyndilega órólegur og æstur og
tók til aö æða fram og aftur um
gólfið. „Ég ætla að fara út á
götu,” sagði hann þá við sjálfan
sig. Er hann hafði opnað kirkju-
dyrnar, mótmælti hann jafnvel
þrákelknislega hinni sönnu orsök
þessarar ferðar sinnar. „Ég ætla
ekki að gera við gatið á
glugganum, og ég ætla að æfa mig
i að koma hingað á kvöldin og
næturnar og sítja hér I návist
þessarar konu, án þess að beina
augum minum i áttina til hennar.
Ég ætla ekki að láta þetta sigra
mig. Drottinn hefur skapað þessa
freistingu til að sannprófa sál
mina og ég skal þreifa mig áfram
af vegum myrkursins út I ljós
réttlætisins.”
Nótt nokkra i janúar, þegar
nistandi kuldi grufði yfir jörðinni
og strætin i Winesburg voru þakin
snjó, fór séra Curtis Hartman I
sina siðustu heimsókn i lesstofuna
I klukkuturni kirkjunnar.
Klukkan var farin aij ganga tiu,
er hann gekk út úr húsi sinu.
Hann flýtti sér svo Sí stað, að
hann gleymdi að fara i
skóhllfarnar. 1 Aðalstræti var
enginn á ferli nema nætur-
vörðurinn, hann Hop Higgins.
Enginn var vakandi i öllum
bænum nema hinn ungi Georg
Willard, sem sat I skrifstofu
bæjarblaðsins og reyndi að skrifa
sögu. Presturinn hélt eftir
strætinu áleiðis til kirkjunnar.
Hann óð skaflana og hugsaði um
það, að I þetta skipti myndi hann
gefa sig algerlegasyndinni á vald.
„Ég vil horfa á konuna og hugsa
mér að ég væri að kyssa axlir
hennar. Og ég ætla að lofa
sjálfum mér að hugsa, hvað sem
ég vil,” æpti hann biturt I
hugarfylgsnum sinurh. Það komu
tár fram I augu honum. Hann tók
að hugsa um að hann myndi hætta
prestsstörfum og reyna einhverja
aðra hlið lifsins. „Ég ætla að fara
i einhvern annan bæ og hefja
viðskipti,” hugsaði hann. „Fyrst
eðli mitt er þannig, að ég get ekki
staðizt freistinguna, - get ekki
hamlað á móti syndinni, mun ég
gefa mig algerlega syndinni á
vald. Að minnsta kosti ætla ég
mér ekki að verða hræsnari, sem
prédikar orð Drottins, um leið og
hann hugsar um axlir og háls
konu, sem er ekki hans.”
Það var kalt I lesstofunni' I kirk-
juturninum þessa janúarnótt.
Séra Curtis Hartman gerði sér
fljótt grein fyrir þvi, þegar hann
var kominn þangað inn, að honum
yrði liklega illt af kulda, ef honum
dveldist þar nokkuð aö ráði. t
herberginu andspænis honum var
Katrin Swift ekki enn komin i ljós.
Með föstum ásetningi settist
presfurinn og beið. Hann sat
þarna á stólnum og kreisti
borðröndina fyrir framan sig, svo
að hnúarnir hvitnuðu. A borðinu
lá biblian. Um hug hans æddu nú
myrkustu hugsanir lifs hans.
Hann hugsaði um konu sina, og á
38 VIKAN / 36. TBL.