Vikan


Vikan - 07.09.1972, Side 46

Vikan - 07.09.1972, Side 46
sem var í eigu kaþólsks bisk- ups er Rozman hét, en bróðir þessa kirkjuhöfðingja var kommúnisti. Þá snæddu full- trúar við borð þakin damaski og drukku úr kristalskaleikum herleg vín úr kjallara biskups. Þaðan fór Broz til Brno og þóttist þá vera tékkneskur verkfræðingur að nafni To- manek. Það gekk eins og í sögu, þar eð hann kunni tékknesku. f Brno tók hann upp nafnið Walter og hélt áfram til Moskvu, þar sem við tók nám í skóla hjá Komintern. Hann var ekkert slorlega undir námið búinn, talaði rúss- nesku og þýzku reiprennandi, gat lesið M!arx og Iienín á frummálunum, hafði margsýnt að pólitísk trú hans var óbil- andi og var ósvikinn sonur verkalýðsstéttarinnar. Honum var vísað til „Balk- an-deildarinnar“, en yfirmaður hennar var þá Þjóðverjinn Wil- helm Pieck, fékk skrifstofu ásamt ritara í Mahóvaja-götu, nálægt Rauða torginu, og bjó eins og margir aðrir útlendir félagar í Hotel Lúx í Gorkí- götu. Þessi fræga bygging var fimm hæðir og herbergin fimm hundruð, gangamir langir og skuggalegir. Broz var úthlutað litlu herbergi á fjórðu hæð. Þar var skápur, borð, stóll og vatns- skál, en ekki annað húsgagna. Á vissum tímum var hægt að komast í steypibað í stóru her- bergi þar til gerðu, og á hverri hæð var stórt eldhús, þar sem hver gat mallað ofan í sig sjálf- ur. Allir sem bjuggu í Lúx gengu undir dulnefnum. Það var skylda. Svo að það gat verið allt annað en auðvelt að finna út með hverjum maður bjó. Með tímanum komst Broz þó að því að þarna bjuggu ásamt honum tíma og tíma Þjóðverjinn Ulbricht, Tékkinn Gottwald, Búlgarinn Dimitrof, Frakkinn Thorez og ítalinn Togliatti. Þarna voru lika næstum tvö hundruð Júgóslavar, sem stund- uðu nám í ýmsum stofnunum eða unnu hjá Komintern. Með- al þeirra var útbreiddur sá við- sjárverði ávani að gagnrýna kennisetningar, sem þegar höfðu öðlazt fulla staðfestingu á æðstu stöðum, og stilltu sig jafnvel ekki um að blaðra um þetta við hvern sem var. Enda áttu fáir afturkvæmt til föður- landsins. Josip Broz var orðinn sæmi- lega lærður í lífsins skóla. Hon- um var ljóst að vel gat hugs- azt að veggirnir hefðu eyru, og hann efaðist ekki andartak um að þjónarnir í Lúx stæðu í sambandi við sovézku leynilög- regluna, NKVD. Hann ástund- aði því gætni í talL Hann hafði gert sér vonir um endurfundi við konu sína og son í Moskvu, en Pelagea vildi ekkert af honum vita framar. Drenginn fékk hann þó oft að hitta hjá grannkonu móð- ur hans. Zarko var þá orðinn fjórtán ára. Broz-Walter-Tito stóð sig vel í starfinu og hlaut lof félag- anna Piecks og Dimitrofs. Um vináttu var þó ekki beinlínis að ræða milli þessara manna. Þeir mátu hver annan eftir stöðugleika á flokkslínunni og dugnaði. Maðurinn var aðeins fruma í samfélaginu. Vináttu- bönd voru einstaklingslegs eðl- is, og einstaklingurinn átti að- eins að hafa tr-yggðartaugar til eins aðila: flokksins. Fyrsta og æðsta boðorðið lagði áhérzlu á einingu í Flokknum, það er að segja hlýðni við æðstu máttar- völd hans í Moskvu. Hlutverk Kominterns var að miðla fyr- irmælum þeirra máttarvalda um veröld víða. Hjá því störf- uðu félagar úr flestum löndum jarðar, en ákvarðanirnar tóku Rússar. Á árunum 1935—1937 var kommúnistaflokki Júgóslavíu hérumbil útrýmt. í heimaland- inu þurrkaði lögregla konungs út eina leyniselluna af annarri, og í Moskvu hurfu Júgóslav- arnir unnvörpum og sáust ekki framar. Og það var ekki talin háttvísi að spyrjast fyrir um örlög þeirra. Markverðasti atburður um þetta leyti í lífi Titos var heims- þing Kominterns í ágúst 1935, er stóð yfir í fjórar vikur og haldið var í stórkostlegum súlnasal fyrrverandi aðals- klúbbs. Þar var bróðurflokkun- um erlendis gefið til kynna að nú færi vel á því að þeir gengju til samvinnu við aðra flokka, meira að segja sósíal- demókrata, sem til þessa höfðu verið kallaðir verstir óvina. Valdataka Hitlers í Þýzka- landi hafði knúð fram nýja stefnu í utanríkismálum Sov- étríkjanna. Eftir fyrri heims- styrjöldina höfðu þau hallazt að samvinnu við Þýzkaland, en með tilkomu Hitlers var úti um það, að minnsta kosti í bráðina. Sovétmenn gengu því til bandalags við Frakkland og Tékkóslóvakíu. Og Komintern breytti sinni stefnu í samræmi við það. Á heimsþingi þessu sá Tito Stalín í fyrsta skipti. Hinn mikli maður var viðstaddur opnun ráðstefnunnar, sem hann talaði um af mestu fyrirlitn- ingu og kallaði „mangaramark- að“. Hann var auðvitað hyllt- ur ákaflega og ávörp flutt hon- um til dýrðar. Hann hlustaði á setningarræðuna, sem Wil- helm Pieck flutti, og Interna- tionalinn og dró sig svo í hlé. Honum fylgdu þeir tveir menn, sem sáu um framkvæmd hreins- ananna, Jesjof lögreglustjóri, einstaklega óhandlatur maður, og hinn óþreytandi rannsókna- dómari Sakovskí, sem lét hafa eftir sér: „Eg hefði jafnvel get- að fengið Karl Marx til að játa.“ Til þessa hafði frami Titos í júgóslavneska kommúnista- flokknum verið lítill, enda ekki verið litið á hann sem heppi- legan stjórnmálamann, þrátt fyrir góða greind og mikla tungumálakunnáttu. En hreins- anirnar urðu til að greiða fyrir honum: forusta flokksins hafði verið nærfellt þurrkuð út, og þá lá beint við að aðrir, sem til þessa hafði farið heldur lít- ið fyrir, hækkuðu í tign. Hann var um síðir gerður skipu- lagningarst j óri flokksins, og var þá enginn honum æðri í flokknum nema Gorkic, sem hafði aðalstöðvar sínar í Vín- arborg. í október 1936 var Tito aftur sendur á faraldsfót. Hann fékk nýtt vegabréf og fyrirmæli um að hreinsa leifar júgóslavneska kommúnistaflokksins heima fyrir (þær töldu þá aðeins tvö þúsund manns, er fóru huldu höfði) af siðspillandi öflum og afla sjálfboðaliða í spænska borgarastríðið. í októberlok kom hann til Vínar. En þá hafði austurríska lögreglan lagt hald á spjald- skrá júgóslavneska kommún- istaflokksins, sem flóttamenn úr flokknum staddir í Vín höfðu í sínum fórum. Vín var því ekki framar öruggur staður fyrir júgóslavneskan kommún- ista. Ákveðið var að setja upp nýjar höfuðstöðvar fyrir flokk- inn í París, þar eð vinstri stjórn Léons Blums var komm- únistum hliðholl. í París bjó Tito á litlu hóteli í Rue des Bernardins. Hann lærði frönsku, og var hún sjö- unda tungumálið, sem hann náði valdi á. Hann réð júgó- slavneska sjálfboðaliða og sendi til Spánar. Það var minnstur vandinn að útvega menn, en erfiðara að sjá þeim fyrir flutningi. Flestir sjálf- boðaliðanna voru flóttamenn og fóru huldu höfði, og þeim þurfti að útvega falska papp- íra. Alls tókst Tito að koma tólf hundruð j úgóslavneskum sjálfboðaliðum í stríðið með spænsku lýðveldisstjórninni. Aðeins þrjú hundruð komu lifandi úr þeirri orrahríð. Þeir voru "þó nógu margir til að mynda vísinn að skæruher 46 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.