Vikan


Vikan - 07.09.1972, Page 51

Vikan - 07.09.1972, Page 51
Jónas Björnsson frá Svarfhóli, lireppstjóri á Akranesi var einstak- ur stillingarmaður og orðvar. Hann var lengi formaður á Skaganum. Einu sinni sem oftar var hann að búast í róður á vertíð og skyldu há- setar hans aka lóðunum á hand- vagna niður á bryggju. Bryggjan var klökul og flughál. Þeir misstu þá stjórn á vagnin- um og rann hann með lóðirnar útaf bryggjunni og í sjóinn. Hásetarnir bjuggust nú ekki við hýrum kveðjum frá formanni sín- um, því að ekki var um róður að ræða þann daginn. En því var við brugðið hvernig Jónas brást við. Hann leit niður fyrir bryggjuna og sagði aðeins: „Ekki ætlaði ég nú að leggja hérna.“ OoO Sjálandsbiskup var eitt sinn að vísitera í umdæmi sínu og í einni borginni hélt hann blaðamanna- fund. Hann var í góðu skapi og reitti af sér marga brandara. „En, piltar mínir,“ sagði hann, „þið megið helzt ekki láta gaman- yrði mín koma í blöðunum, því ég ætla að eiga þau til góða og nota þau í veizlu, sem ég verð gestur í hérna á morgun. Blaðamennirnir lofuðu því og efndu. En í einu blað- anna stóð: „Og að lokum sagði biskupinn okkur blaðamönnunum nokkrar bráðskemmtilegar skrítlur, sem því miður er ekki hægt að birta opinberlega!“ OoO Kristján konungur tíundi var al- þekktur fyrir léttan húmör. Eitt sinn á ferð í Danmörku kom kóngur við í smábæ. Auðvitað var lúðrasveit bæjarins mætt og hóf að blása „Kong Christian“ á móttöku- stað, af miklum móði. Kóngur hlustaði á lagið, enda hafði hann eyra fyrir músik, gekk svo brosandi til stjórnandans og rétti honum 100 kr. seðil: „Kærar þakkir, vinur minn, — °g 100 kallinn er fyrir nótum að lagi, sem heitir „Kong Christian“.“ LOFTLEIDIR ICELANDIC Hratt fIjúga þotur - hratt flýr stund Nýtið því naumar sfundir. Notið hraðferðir Loftleiða heiman og heim. Njótið hagkvæmra greiðslukjara Loftleiða. Flugfar strax-far greitt síðar. 30 þotuferðiríhverri viku til Evrópu og Ameríku með DC-8 OoO

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.