Vikan - 21.12.1972, Síða 24
\
\
4 Löngustétt: höfundur Brekkukotsannáls. Ilalldor Laxness. sem leikur íslandsbiskup
i kvíkmyndinni. og einn aukaleikaranna. Skúli Thoroddsen læknir. Þess skal getiö
að flestar eða allar myndirnar frá kvikmyndatökunni eru teknar milli atriða.
leikur, hjá þýzkumælandi
þjóðum hefur hann þegar hlotið
viðurkenningu sem leikari i
fremstu röð.
Vikan hitti þá að máli á Hótel
Loftleiðum, Rolf Hadrich og Jón
Laxdal, einn siðustu daganna
áður en þeir lögðu af stað til
Þýzkalands og Sviss. Þeir vörðu
þessum siðustu dögum sinum
hér hvað helzt til að þýða á
þýzku ljóð eftir Stein Steinarr,
sem Hadrich hefur hrifist mjög
af. Þess á milli slöppuðu þeir af
yfir skáktafli, sem leikstjórinn
tók miklu ástfóstri við meðan
hann dvaldi hérlendis. önnur
fristundaiðkun sem hann tók
fyrir meðan á Islandsdvölinni
stóð var flugnám, enda segir
hann aðstæður til þess mjög
heppilegar hér.
Við spurðum Hadrich fyrst,
hversvegna Brekkukotsannáll
(á þýzku er verkið kallað
Fischkonzert) hefði orðið fyrir
valinu hjá honum til kvik-
myndunar.
— Forsaga þess er þó nokkuð
löng, svaraði Hadrich. — Ég
kynntist Jóni Laxdal i Zurich, er
við unnum saman að töku kvik-
myndar fyrir sjónvarp eftir
Ævisögunni eftir Max Frisch. Ég
Reykvíkingur frá aldamótaáriinum
inn al' Oddi Björnssyni rithöfundi.
(iarðar Hólm (Jcn Laxdal) á leið til fund-
ar við Álfgrim í kirkjugarðinum.
Álfgrimur (Árni Árnason) i orgeltíma
hjá dóttur forsöngvarans. sent Kristín
Petersen leikur.
24 VIKAN 51. TBL.