Vikan - 21.12.1972, Qupperneq 41
býður yður heimanám í eftir-
töldum 40 námsgreinum:
Afengismál
Algebra
Almenn búðarstörf
Auglýsingateikning
Bókfærsla I. og II.
Bókhald verkalýðsfélaga
Búvélar
Islenzk bragfræði
Betri verzlunarstjórn I. og II.
Danska I.
Danska II.
Danska III.
Eðlisfræði
Enska I. og II.
Ensk verzlunarbréf
Esperanto
Franska
Fundarstjórn og fundarreglur
Gítarskólinn
Hagræðing og vinnurannsóknir
Kjörbúðin
Lærið á réttan hátt
íslenzk málfræði
Mótorfræði I. og II.
Reikningur
íslenzk réttritun
Saga samvinnuhreyfingarinnar
Sálar- og uppeldisfræði
Siglingafræði
Skák I. og II.
Skipulag og starfshættir sam-
vinnufélaga
Spænska
Staða kvenna ( heimili og þjóð-
félagi
Starfsfræðsla
Þýzka
Skólinn starfar allt árið.
Komið, skrifið eSa hringið
í síma 38900.
BRÉFASKÓLISÍS&A8Í
allt fyrir
71
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruðum viðskiptavinum okkar full-
komna varahluta- og viðgerðaþjónustu.
Verzlunin
Garðastræti 11 sími 20080
ull, virtist fyrst vandræðalega
feiminn, en vaknaði síðan, þeg-
ar kvöldverður var snæddur,
allt í einu til lífsins og fór að
tala um allt ranglætið í sam-
bandi við rómverska hernámið
og undirgefni Gyðinga fyrir
hernámsveldinu, sem að hans
dómi var enn svívirðilegri.
Þegar hann loksins hafði rof-
ið þögnina, streymdu orðin úr
munni hans í stríðum straum-
um.
Natan hlustaði heldur vand-
ræðalegur, en þegar Isak loks-
ins þagnaði til að ná andanum,
greip Jasódad tækifærið til að
gripa fram í:
— Ekki tala um stjórnmál
meðan þú ert að borða, fsak,
það spillir matarlystinni.
Þá hafði ísak litið á Jasódad
með fyrirlitningu og ekki sagt
fleira.
Þegar þeir feðgar gengu við
féð daginn eftir, hafði Jasódad
sagt:
— Vinur þinn fsak er of-
stækismaður.
— Það er hann án efa. Hann
vildi helzt vera kominn upp í
fjöll, en faðir hans er að missa
sjónina, svo að hann verður að
vera heima.
— Ég vona bara að hann
segi fekki svona nokkuð hvar
sem er, það gæti orðið honum
hættulegt.
— Það getur verið. En hann
sagði ekki annað en sannleik-
ann, og honum ætti. ekki að
leyna.
— Það efa ég, sagði Jasódád
vægilega. — Allt svona skvald-
ur hefur aldrei leitt til annars
en vandræða.
Kindurnar voru á beit allt í
kringum þá, rólegustu skepn-
ur á jörð. Jasódad benti á þær
með stafnum.
— Drengurinn rhinn, ef Guði
sýndist svo, gæti hann á svip-
stundu breytt þessari hjörð í
vígbúinn her.
Það gætti virðingar, en einn-
ig tortryggni og jafnvel nokk-
urrar fyrirlitningar í rödd Nat-
ans er hann spurði:
— Trúirðu því í raun og
veru?
— Annars lét ég það ósagt.
Síðar átti Jasódad margsinn-
is eftir að ámæla sjálfum sér
fyrir að hafa verið of viss í
sinni sök, of auðtrúa, blindur.
Þegar hann leit um öxl, minnt-
ist hann þess að hitt og 'þetta
hafði skeð þegar Natan var
fjarverandi. En honum hafði
aldrei dóttið í hug að setja Nat-
an í samband við þá atburði.
Það sem að lokum hafði kom-
ið fyrir, var árangur útspekú-
leraðrar áætlunar, gildru sem
lögð hafði verið af mikilli fyr-
irhyggju.
Gröf Rakelar var fyrir norð-
vestan Betlehem. Rétttrúaðir
Gyðingar litu ekki beinlínis á
haná sem heilagan stað, en litu
þó til staðarins með virðingu
— hann hafði þýðingu í sögu
þeirra. Þar hafði eftirlætiskona
Jakobs ættarhöfðingja dáið
þegar hún fæddi Benjamín,
eftirlætisson hans, og hann
hafði reist minnisvarða á gröf
hénnar.
Smáhópur rómverskra her-
manna frá herbúðunum utan
við. Betlehem hafði verið á
eftirlitsferð og slegið upp tjöld-
um við gröf Rakelar, af þvi að
það var vatn og eldsneyti til
staðar. Þeir höfðu stillt her-
merki sínu upp við minnisvarð-
ann, sem var mjög farinn að
láta á sjá fyrir tímans tönn, og
tveir þeirra höfðu rist nöfn sín
í varðann.
Rabbíninn í næsta þorpi
hafði ásamt þremur öldungum
komið til þeirra og beðið þá
kurteislega að flytja hermerk-
ið og skemma ekki varðann.
Flestir hermannanna höfðu
ekkert botnað í hvað þeir voru
að segja en einn skildi þó og
svaraði: — Farið heim og rakið
ykkur, karlskrattar.
Natan, ísak og sá þriðji með
51. TBL. VIKAN 41'