Vikan

Eksemplar

Vikan - 20.09.1973, Side 20

Vikan - 20.09.1973, Side 20
ÓENDANLEGUR Framhaldssaga eftir Gunnar Berg. Sjotti hluti Henni fannst þetta martröð, en það var kaldur raunvhruleiki. Hún var i klónum á hættulegum ókunnum manni og henni var það ailtof vel ljóst. Allra minnstu mistök gátu orðið henni að falli... DAGUR Loksins fann hún frlmerkin, I plasthlifinni utan um bankabók- ina. Hún steig upp i gluggann og var næstum dottin af hræöslu, þegar einn púðinn féll I gólfið. Sófinn reyndist ekki nógu hár, svo hún varð að stiga upp i gluggakistuna. Hún skalf af ótta, en henni tókst að festa pappirsræmuna með skilaboðunum til Staffans, innan á rúðuna bak við gluggatjöldin. 1 ákafanum reif hún ræmuna i sundur og varð að lima hana sam- an með frimerki. Það heppnaðist. Isaksson gat komiö á hvaða augnabliki sem var, en ennþá heyrði hún vatnið renna i baðher- berginu. Frimerkin limdust við raka fingur hennar og svitinn spratt út á enninu. En hún gat fest skilaboðin upp á rúðuna. Svo flýtti hún sér að þurrka gólfið. Hún var rétt byrjuð á þvi, þegar Isaksson kom aftur inn I stofuna. Hann var með slmann undir handleggnum. Svo hélt hann á sáraumbúðum, sáravatni og bómull. Cilla vatt tuskuna og þurrkaði vel gólfið. Svo récti hún úr sér, bar fötuna fram i eldhús og hellti úr henni I vaskinn. Hana langaði ákaflega til að reyna að sjá hvernig miðinn á rúöunni tæki sig út, en hún þoröi það ekki. Neðri hornin voru laus, hún hafði ekki getað fest þeim. Hún gerði sem mestan hávaða, þegar hún setti fötuna inn I skáp- inn. Hún hafði verið nokkuð sjörí Það gat veriö mikil hætta á ferð- um, ef Isaksson kæmi auga á bréfsnepilinn á rúðunni. Það yrði lika hrein heppni, ef Jernberg gengi þarna fram hjá. Það var ekki sennilegt, aö hann færi að at- huga alla glugga hússins. Hún var algerlega á valdi Isaksson. Og þótt hann væri kannski ekki morðingi, þá var hann hálfrugl- aður af ótta, ótta, sem stafaði af einhverju, sem hafði skeð furir ári siðan, hvað sem þaö nú var: Trúandi til að gera hvað sem væri. Henni var ljóst, að meira gat hún ekki að gert, svo hún fór aftur inn 1 dagstofuna. Isaksson var að berjast við að koma umbúðum um höndina. Hann sveið undan sáravatninu og hann ætlaði aldrei aö geta stöðvað blóðrennslið. Hann benti með heilbrigðu höndinni og benti á dyrnar að baðherberginu. — Magnyl eða eitthvað við kvölunum. Cilla flýtti sér inn i baöherberg- ið. Þegar hún tók magnylglasið, sáhúnaðámiðanumstóð: „Cilla, þú verður alltaf að lesa á miðann, svo þú vitir hvað er i glasinu, svo þú takir ekki inn eitthvert eitur”. Þetta hafði Dagmar brýnt fyrir henni frá þvi hún var smábarn og vaninn sat ennþá svona fastur i henni. Eitthvað eitur! Hún las I skyndi á glösin, sem þarna stóðu. Gat þarna verðið eitthvað, sem var raunverulega eitur? Svefntöflurnar?* Það voru eíns konar hylki. Nei, það var ekki nógu gott, — en hver veit, það gæti komið sér vel siðar. . . það gat verið ein leið, siðasta leiðin? Hún stakk I skyndi nokkrum hylkjum i svuntuvasann og gekk svo inn I stofuna, með magnyl- glasið I hendinni, sakleysið upp- málað. Isaksson hafði nú bundið um höndina. Hann hafði lika sett sim- ann i samband og hallaöi sér nú makindalega að sófabakinu og reykti sigarettu. — Ég hefi nú skrifað lista yfir þá, sem þér eigið aö hringja til fyrst, sagði hann. — Svona nú, farið aö drifa i þessu og byrjið.á byrjuninni. Cilla hugsaði til Dagmar. Var henni kannski að blæða út I skýl- inu? Og Staffan Jernberg, hvar gat hann verið? Hvers vegna hringdi hann ekki? Hvers vegna kom hann ekki, eins og hann hafði lofað? Hún hafði ekki nokkra mögu- leika á að koma skilaboðum gegnum slmaborðið. Isaksson leit ekki af henni eitt andartak. Hún þorði hvorki að segja eða gera annaö en hann hafði skipað henni. Eina vonin var að Jernberg kæmi og færi að gruna, aö ekki væri allt meö felldu. En hvaö vissi hún um hann? Hún þekkti ekki Jernberg. Hann gat hafa gleymt öllu saman. Hún fór að hringja og reyndi aö láta ekki bera á skjálftanum i röddinni og segja það sem Isaks- son hafði skipað fyrir. Cilla titraði, svo að hún varð að halda um simtólið með báðum höndum. Harald Isaksson sat andspænis henni og haföi auga með hverri hreyfingu hennar og hverju orði, sem hún sagði. Allra minnstu mistök gátu orðið henni að falli, kostað hana lifið, bæði hana og Dagmar. Dagmar, sem lá bundin og særð, kannski dáin, i skýli Curts. Cilla reyndi að hugsa ekki um þessa hrollvekju, en það var ekki auðvelt. Fyrstu simtölin: stutt skilaboð til Curts, ræstingarkonunnar, hárgreiðslukonunnar, tann- læknisins, gengu sæmilega, þrátt fyrir erfiöleikana við að tjá sig á réttan hátt. Isaksson, sem sat I sófanum, meö höndina á sima- tenglinum, til að geta kippt úr sambandi, ef hann grunaði hana um græsku, var farinn að slaka á og hagræddi sér betur i sófanum. Það var greinilegt, að hann var farinn að álita, að Cilla væri sam- vinnuþýð. • Þegar Cilla hafði lokið við fyrstu lotu, ýtti hann blaði til hennar. 20 VIKAN 38. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.