Vikan - 20.09.1973, Blaðsíða 48
Náttúruhamfarir
mig dreymdi
Kæri draumráöandi!
Fyrir stuttu dreymdi mig draum, sem mér fannst
merkilegur og langar til að fá ráðningu á. Hann var
svona:
Ég var stödd á bæ, sem var mjög líkur bænum, sem
ég á heima á, en mér fannst það þó ekki vera hann.
Allt í einu varð mér litið út um gluggann og þá sé ég
að farið er að gjósa úr f jallinu handan árinnar. AAér
varð mikið um þetta, en svo fannst mér eins og þetta
væri gosið í Vestmannaeyjum og gígurinn væri á flug-
vellinum þar. Þá kveikti ég á útvafpinu og þá var verið
að tilkynna í því, að eyjabúar ætfu að flytja til megin-
landsins og var þeim sagt, að þeir skyldu ekki vera
hræddir og taka eins lítinn farangur með sér og þeir
framast kæmust af með.
Eftir nokkurn tíma fannst mér vera komin stór
sprunga þverf í gegnum landið og margar smá-
sprungur út frá henni. Þá fannst mér eins og verið væri
að flytja íslendinga úr landi og til Englands og þegar
þangað kom varöllufólkinusafnaðsaman á stórt, opið
svæði og síðan vartekin kvikmynd af því. Þá kom allt í
einu maður þar og hlýtur hann að hafa verið hátt-
settur í þvísa landi, því að hann bar mikið af heiðurs-
merkjum. Hann bað fólkið að fara til ættingja, ef ein-
hverjir væru, en hinir fengju ókeypis húsnæði um
ókominn tíma. Þá fannst mér eins og flestir færu til
Skotlands.
Flestum samdivel við Englendinga og allt var reynt að
gera til að gleyma óförunum á (slandi. Svo fannst mér
einsog ég sæi einn daginn, að landið spryngi í loft upp
og brást þá von margra um að byggja það upp aftur.
Þetta kom mjög illa við fólkið og lengi á eftir voru
sýndar myndir frá landinu í sjónvarpinu.
Þakka fyrirfram ráðninguna.
Kitta.
— Draumurinn þinn er óneitanlega með þeim merki-
legri, sem draumráðningaþættinum þefur borizt.
Táknin i honum eru mörg og hægt er að tengja þau
saman á marga mismunandi vegu. Sumir draumráð-
endur halda þvi fram, að eldfjöll og eldgos merki frið
og gleði í draumi, og óskandi væri, að draumur þinn
væri fyrir góðu, þvi að hann snertir ekki einungis þig
heldur alla þjóðina. Alla vega er óhætt að spá þvi, að
einhver stórtíðindi í landsmálum eru á næsta leiti og
vonandi eru það góð tíðindi.
Brúnir hestar.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi, að ég væri í útreiðartúr á tveimur
brúnum hestum — annar hesturinn f læktist í net og ég
kallaði á vinkonu mína og bað hana um að leysa
hestinn fyrir mig. Hún gerði það. Þegar hún var búin
að losa hestinn úr netinu, gaf hún mér fulla tösku af
harðfiski. Við það vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
Á.T.V.R.
Þú lendir í einhverjum vandræðum, sem vinkona þín
leysir úraf mikilli prýði og vinátta ykkar treystist enn.
Þú mættir þó að ósekju leggja meira á þig fyrir vin-
konu þína, en þú hefur hingað til gert.
Málverk að gjöf
Kæri þáttur!
Ég var stödd í stórri verzlun og var að gá að brúðu,
sem ég ætlaði að kaupa. Mér fannst, að það yrði að
vera drengjabrúða. Ég var ekki búin að finna brúðuna
og ég heyri voðalegan hávaða og fólk fór að hlaupa út
úr búðinni svo ég fór að hlaupa líka.
Allt í einu tek ég eftir því að ég er ein á hlaupum
nema hvað tveir menn, sem ég kannast við, elta mig.
Ég hljóp niður hól og beið neðst í brekkunni eftir því að
mennirnir kæmu niðurog þá stökk ég yfir þá. Þegar ég
leit við, sá ég að þeir voru báðir dánir og þótti mér það
dálítið skrýtið.
Ég fór aftur heim og nú fór ég ekki inn í verzlun,
heldur stóra og fallega kirkju. Ég fór inn í kirkjuna og
læsti henni á eftir mér með stórum og fallegum lykli.
Þá fannst mér það vera lykillinn, sem mennirnir tveir
höfðu verið að sækjast eftir.
Þegar ég kom innar í kirkjuna, hitti ég þar mann
með svart skegg«og góðlegan að sjá. Mér fannst ég
þekkja hann í draumnum, en ég veit ekki hver það
var. Þessi maður rétti mér lítið fallegt málverk af skipi
á siglingu og égman aðsjórinn var óvenju grænleitur á
myndinni. Þegar ég sé málverkið fer ég að hágráta.
Maðurinn faðmar mig aðsérsem snöggvastog fersvo í
burtu. I horninu á málverkinu voru stafirnir G.M.G.
Draumurinn var ekki lengri.
Ég vona að þið ráðið þennan draum fyrir mig, því að
hann var eitthvað svo greinilegur og raunverulegur að
ég á erfitt með að gleyma honum.
Jónina.
Draumur þessi er svolítið tviskiptur og ekki er
augljóst samband milli hlutanna. Þú ættir að gæta
starfs þfns vel, því að lykillinn táknar ábyrgðarstöðu,
sem þér verðurtreyst fyrir. Þú þarftað keppa við aðra,
sem einnig sækjast eftir stöðunni, og verður hlutskörp-
ust. Þess vegna muntu sæta nokkurri gagnrýni.í fyrstu,
en settu það ekki fyrir þig, því að málverkið boðar þér
gott gengi.
Svar til Kötu
Láttu ekki fagurgala vinkvenna þinna hafa nein
áhrif á þig, þviað varterað treysta þvi, sem þær segja.
Þú átt eftir að standa þig vel í nýja starfinu og verður
fljót að vinna þig i álit hjá vinnuveitanda þínum.
Trúlega verður stutt í sambandi þínu og piltsins, sem
þú getur um í niðurlagi bréfsins.