Vikan

Útgáva

Vikan - 20.09.1973, Síða 24

Vikan - 20.09.1973, Síða 24
Aður en Mjólkursamsalan tók til starfa og hóf rekstur mjólkur- búða, voru ofurlitlir töfrar yfir mjólkurverzlun i borginni. Þegar húsmæðurnar komu á fætur á morgnana, stóðu mjólkurflösk- urnar á tröppunum hjá þeim, og þær þurftu ekki að leggja á sig það ómak að hlaupa i mjólkur- búðina eða standa i þrasi við börnin til þess að fá þau til að skreppa fyrir sig. Um skeið stundaði Thor Jensen mjólkurdreifingu og mjólkursölu i Reykjavik. Mjólkina fékk hann frá Korpúlfsstöðum i Mosfells- sveit, þar sem hann rak kúabú af myndarskap. Uppi á Korpúlfs- stöðum var mjólkin verkuð og flokkuð og þá gátu kaupendurnir valið um þrenns konar mjólk, gerilsneydda mjólk, kaldhreins- aða mjólk og barnamjólk. Þegar mjólkin hafði verið verkuð og flokkuð og sett á flöskur á Korpúlfsstöðum, var henni ekið i bæinn og þar var tekið á móti henni á Hverfisgötunni við Vatns- stiginn, þar sem verzlun rak kaupmaður að nafni Guðjón. Ungir piltar á reiðhjólum sáu um að dreifa henni þaðan til neyt- enda. Einhverjir vankantar hafa ver- ið á þessu dreifingarkerfi, þvi að Thor Jensen ákvað að láta aka mjólkinni á bilum um bæinn. Til þeirra starfa réði hann þrjár stúlkur og hefur það trúlega þótt óvenjulegt þá, að ráða stúlkur sem bifreiðastjóra. Stúlkurnar þrjár hétu Guðrún, Halldóra og Þóra Þórðardóttir og Vikan var svo heppin að hafa uppi á henni og fá hana til að spjalla svolltið um mjólkuraksturinn og fleira. Þóra tók fyrst bilpróf árið 1931 og fékk réttindi til að aka vöru- f lu tninga bif reiðum nokkru seinna. Hún starfaði við mjólkur- aksturinn það tæpa eina ár, sem mjólkinni var ekið til neytenda á bifreiðum. Eftir að Mjólkursam- salan tók við dreifingu mjólkur- innar, var því hætt, og Þóra fékk lltil sem engin tækifæri til að halda við aksturskunnáttunni. — Mér var boðið að aka leigubll, en hvað mikið sem mig langaði til að keyra, vildi ég ekki vera I leiguakstri. Ég vissi um eina stúlku, sem ók leigubil, og sam- starfsmenn hennar á stöðinni þurftu alltaf að vera að hjálpa henni úr einhverju klandri. Hún lenti kannski I þvi að aka drukkn- um mönnum upp að Baldurshaga eða Geithálsi og réði svo ekki neitt við neitt. Kvenfólk á ekkert að gera I svoleiðis lagað. Það er bara þvi til skammar og annað ekki. Svo Þóra ók litið sem ekkert I mörg ár og ökuleyfi hennar var falliö úr gildi. En árið 1969 sá hún fram á að hún myndi hafa ráö á þvi að eignast eigin bifreið og þá 24 Vlk'ANj 38. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.