Vikan - 25.10.1973, Blaðsíða 5
EINAR OG BJARKI
Kæri Póstur!
Mig langar aö biöjá þig aö leysa
fyrir mig úr nokkru, sem ég hef
lengi veriö aö velta fynr mér.
bú veist, vonandi, aö manna
nöfn géta merkt hitt og þetta.
Gætir þú nú ekki sagt mér, hvaðf''
nöfnin Einar og Bjarki þýöa eöa
merkja. Merkja þau kannsfci þaö
sama?
Hvernig passa saman naut
(stelpa) og tviburi strákur? Og
hvað lestu úr skriftinni og hvort
kyniö helduröu aö ég sé?
Meö fyrirfram þakklæti.
Spurningarmerki.
Stundúm er hægt aö segja, aö
ákveöiö mannsnafn hafi ákveöna
merkingu, en i þessu tilviki er þaö
erfitt. Mannsnafniö Bjarki er
skylt oröinu björk. öllu erfiöara
er aö segja til um Einar, en þó á
þaö eitthvaö skylt viö strfösmann,
samkvæmt forn-germönsku máli.
Sambúö nauts og tvibura er
mikiö undir kvenmanninum kom-
iö.
Þú ert stelpa og skrifar nokkuö
vel!
OG STRAKURINN ROÐN-
AR.
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei leitað til þin fyrr,
en nú ætla ég aö leita ráöa hjá
þér eins og margir gera.
Ég er 15 ára og er hrifin af
strák, sem er 18 ára. Ég yrði
stundum á hann, en hann ým.ist
roönar og segir mér aö þegja eða
snýr út úr Og þá kemur þessi
gamla spurnmg: Hvaö á ég aö
gera?Hvernig eiga hrúturinn
(strákur) og hrúturinn (stelpa)
saman?Hvernig er skriftin og
hvaö lestu úr henni?
J.A.
Strákurinn er bara ekkert
hrifinn af þér og aö auki er hann
aö drepast úr feimni. Þú ættir aö
leyfa honum aö sigla sinn sjó, og
þú ættir aö ná þér i annan til aö
veröa skotin i. Ef þú ert alveg aö
deyja úr ást, ættiröu aö gpra eins
og tvær tilraunir enn til aö ná i
hann og geturöu tii dæmis sýnt
honum bréf þitt og svariö klippt
út úr Vikunni! Ef hann sýnir
ekki lit þá gefst þú bara upp.
Tveir hrútar eiga annaöhvort
mjög vei saman eöa mjög illa;
Skriftin er alveg sæmileg.
ÚT AF HVERJU...?
Kæri Póstur!
Viltu vinsamlegast svara eftir-
farandi spurningum fyrir mig.
Mér bráðliggur á svörum viö
sumum þeirra.
1. Hvernig er hægt aö losna við
æöaslit?
2. Af hverju stafa fjörkippir I
augum og nasavængjum?
3. Táknar íslenski fáninn eld, vatn
og sjó?
4. Er verið aö breyta aldurs-
takmarkinu á vinveitingastööum
Reykjavikurborgar, þannig aö
þeir.sem veröa átján ára komist
inn?
5. Er svartur litur tákn um
bindindi?
6. Hvernig eiga dreki (stelpa)
og vogin (strákur) saman? En
hrúturinn (strákur) og- drekinn
(stelpa)?
Svo vil ég þakka Vikunni fyrir
stórkostlegt lestrarefni.
Með kærri kveöju og von um
birtingu.
Seglskip ( módel’56).
Þaö var og.
1. Hef ekkj hugmynd um þaö, en
er viss um aö læknar vita þaö.
2. Liklegast vanstilling tauga-
kerfisins."
3. Nei.
4. Nei, þaö held ég ekki.
5. Nei, aö minnsta kosti er fáni
templara hvitur, en sjóræningja-
fáninn er svartur.
6. Dreki og vog eiga ekkert voða-
lega vel saman. Hrútur og dreki
eiga öllu betur saman.
AÐ SPYRJA STRAK
Kæri Póstur!
Mig langar að spyrja þig ráða.
Ég er á föstu eins og margar aðr-
ar, svo aö mitt vandamál er ekki
ástarsorg. Mer þykir ægilega
vænt um þennan strák og mig
langar aö spyrja hann, hvort
hann sé hrifinn af mér, en ég legg
bara ekki i það. Hvernig á ég að
fara aö þvi aö spyrja hann?
Hvernig passa mærin (strákur)
og vatnsberinii (stúlka) saman?
Þin Tóta.
Þú 'ættir bara aö spyrja
strákinn bllölega aö þvi, hvort
hann sé hrifinn af þér: Þaö er
ekkert cinfaldara og sjálf-
sagöara.Er fólk annars ekki
hrifiö hvort af ööru,.þegar þaö er
á föstu?
Samband vatnsbera og meyjar
er ekki sem best.
iM5í\n\
43. TBL. VIKAN 5