Vikan - 25.10.1973, Blaðsíða 47
ÁTÖK A NORÐUR-
ATLANTSHAFI.
Laugardagsmyndir sjónvarps-
ins eru sennilega með vinsælla
efni þess, þó að myndirnar séu
misjafnar að gæðum. Á laugar-
dag er á dagskrá mynd, sem heit-
ir á frummálinu „Action in the
North Atlantic”. Myndin getur
státað af leikurum eins og
Humphrey Bogard og Raymond
Massey. 1 alþjóðlegri bók um
kvikmyndir hefur þessi hlotið 4
stjörnur og eru það góð meðmæli.
Söguþráöurinn er þessi:
Ameriskt tankskip hlaðið
eldfimri oliu öslar á Atlantshafi i
þoku, þegar það verður fyrir
tveim tundurskeytum. Eldur
brýst út um borð og við
sprenginguna rifnar byrðingur-
inn miðskips. Jarvis skipstjóri
(Raymond Massey) gefur skipun
um, að skipið skulið yfirgefið.
Rossi 1. stýrimanni og nokkrum
skipsfélögum hans tekst að kom-
ast undan i björgunarbáti. Kaf-
bátur birtist og sökkvir
björgunarbátnum. Mennirnir
synda að fleka og reka stjórnlaust
i 11 daga, áður en þeim er bjarg-
að.
Komnir i örugga höfn i New
York ráða þeir sig á nýtt
flutningaskip, „Sea Witch”, sem
verður samflota 72 skipum i
skipalest til Murmansk. Þegar
lestin er umlukin þéttri þoku ráð-
ast þýskir kafbátar á hana. Nokk-
ur skip verða fyrir skotum og
lestin tvistrast. Þegar „Sea
Witch” er á leið til leynilegs
fundarstaðar skipanna, verða
þeir varir við, að þeim er veitt
eftirför að þýskum kafbát. Frek-
ar en að leiða kafbátinn til
fundarstaðarins, ákveður Jarvis
skipstjóri að breyta stefnu skips-
ins og eltingaleikur upp á lif og
dauða hefst. 1 myrkri næturinnar
tekst „Sea Witch” að afvegaleiða
kafbátinn. Kafbáturinn gerir
fíughernum viðvart og um
morguninn ráðast tvær óvina-
flugvélar á skipið. Nokkrir menn
eru drepnir og Jarvis skipstjóri
særist, en áhöfninni tekst að
skjóta niður báðar flugvélarnar.
Pramhaldið fáum við að sjá i
sjónvarpinu á laugardagskvöld.
LÆKNADEILDAR
HOMOR!
Hvað sem segja má um alla
framhaldsþættina,, sem byrjaö
hefur verið að sýna i sjórivarpinu,
þá er alltaf hægt að hlæja að
læknanemunum, sem við fáumjað
sjá á miðvikudagskvöldum.
Þættirnir eru byggðir á bókum,
sem komu út fyrir tæpum 20
árum. Bækur þessar hafa notið
mikilla vinsælda og verið þýddar
á, að minnsta kosti 18 tungumál
og verið fluttar i leikritsformi á
svið, i útvarpi og nú i sjónvarpi.
London Weekend-sjónvarpið
hefur með leyfi höfundar,
Richard Gordon, framleitt 26
þætti i þessum myndaflokki, sem
eru hálfs árs birgðir.
Aðalsöguhetjan, Michael
Upton, leikur Barry Evans. Hann
er ungur og upprennandi leikari
og hefur getið sér gott orð fyrir
leik sinn i kynlifsmyndum þar i
útlandinu. Félagar hans i læ;<na-
deildinni eru flestir nýútskrifaðir
úr leiklistarskólum.
STRÍÐ OG FRIÐUR
A sunnudag verðúr sýndur
þriðji hluti myndaflokksins „Strið
og friður”. Flokkurinn er i
þessari útgafu i 7 hlutum og er frá
rússneska sjónvarpinu, en fleiri
aðilar hafa spreytt sig á gerð
mynda og sjónvarpsefnis eftir
þessari sögu. Má þar nefna BBC,
sem framleiddi myndaflokk eftir
þessari sögu i töluvert fleiri
hlutum.
Höfundurinn, Leo Tolstoj (1828-
1910) var á hátindirithöfundarfer-
ils sins, þegar hann skrifaði Strið
og frið á árunum 1863-1869. 1
sögunni er lýst margs konar and-
stæðum: Lifið i Pétursborg, þar
sem glysið og framapot er alls-
ráðandi annars vegar, og lifið úti
á landsbyggðinni hjá Rostov
fjölskyldunni hins vegar. Þá eru
andstæðurnar milli Rússlands á
friðartimum og Rússlands á
striðstimum, og Rússlands og
Evrópu.
Hinn 7. september 1812 var háö
orrusta milli fylkinga Napólcons
og Kutuzov viö Borodina,
skammt frá Moskvu. Mannfall
var mikið á báöa bóga, en
Napóieon bar sigur úr býtum.
43. TBL. VIKAN 47
Hðr er vænn hluti læknadeildarliösins mættur meö eitt
viöfangsefni sitt.
Barry Evans i hlutverki Michael Upton.