Vikan

Tölublað

Vikan - 25.10.1973, Blaðsíða 26

Vikan - 25.10.1973, Blaðsíða 26
1 Þær voru allt annaö en álitlegar dyrnar eða liklega til að vera inn- . gangur I paradis islenzkra popp- tónlistarmanna, - enskt upptöku- studió. Húsið sjálft er bakhús við Gamla Kirkjustræti i þeim hluta Lundúnaborgar, sem nefndist Chealse. Okunnugir gætu hæg- lega farið á mis við húsið og and- spænis þvi er þessi forkunnarlag- legi pub eða bjórkrá, sem glepur augað auðveldlega, sérstaklega okkar tslendinga. Afskaplega rólegt hverfi, fjarri öllum skar- kala miðhluta Lundúnaborgar, tilvalið fyrir upptökustúdió. Það heitir Sound Techniques, og s.l. sumar var hljóðrituð þar ný L.P. hljómplata Magga Kjartans., Clockworking Cosmic Spirits. Kjörið tækifæri gafst til þess að fylgjast með þessari upptöku og verður i þessum þætti reynt að gefa sem ljósasta mynd af þvi, hvernig hljóðritun nútima popp- tónlistar fer fram. Ekkert upptökustúdió er að finna hérlendis, enda dýr i upp- setningu og rekstri. Enginn hefur enn séð hag I þvi, að koma á fót einu sliku hérlendis. Allt það, sem á sér stað i kringum upptöku- stúdió, er þvi Islendingum lokuð bók. Með þessari grein verður reynt að opna þessa lokuðu bók og fletta a.m.k. einum kafla, kaflanum um byrjendur. Þegar inn um þessar óálitlegu dyr er komið, tekur við fátæk- legur gangur og við enda hans, þrjár tröppur. Gangurinn liggur til hægri og upp á aðra hæð. Lokaðar dyr og enn aðrar Lokaðar dyr. Skilti er á veggjunum.sem á stendur á ensku „upptaka”. Skiltið er rautt og mikið og það kemur ljós, þegar mark skal á þvi taka. Þegar inn um seinni dyrnar og framhjá rauða ljósinu er komið, blasir við sjálfur draumaheimurinn. Þegar þessi húsakynni eru augum litin i fyrsta skipti, eru likur til þess, að spilaborgin islenzkra popp- unnenda hrynji til grunna. Glæstar hugmyndir um upptöku- stúdió Bitlaborgarinnar við Thames verða að gjalti Hvorki er upptökusalurinn iburðarmikill né það, sem kalla mætti „flott slott”. Við augum blasir eitthvað i likingu við venjulega skólastofu sjálfan sig: er þetta allt og sumt? Er þettat enskt upptökudtúdió fyrir ofan meðallag? Litur það svona út eftir allt'’ Já. um það er engum blöðum :ið fletta. t bessu stúdiói haia hljómsveitirnar Jet- hro Tull og Fairport Convention m.a. hljóðritað og likað mjög vel, - Sound Techniques. Og hvernig leit þetta svo út svona i stuttu máli. Litill salur, tiu metrar sinnum tuttugu að stærð, gamaldags hanabjálka- stigi upp á efsta loft, sem hýsti kaffistofuna og vaffséið, annar stigi svipaður að smið er i hinum endanum og liggur upp i upptöku- herbergið sjálft eða hibyli véla- mannsins. tvélamaöur er hér notað fyrir enska orðið engineer ) Tviskipt rennihurð skiptir þessum litlu . salarkýnnum i tvennt. Þar með ælti að vera komin greinargóð lvsing á stúdióinu, en þvi er þó ekki þannig farið. Upptökustúdió er svo sannarlega allt annað, en það sem augað sér. Tækjabúnaður i upptökúherberginu og iiljóm- burður i upptökusalnum er það eina, sem máli skiptir. Hvort það eða bara gamla vöruskemmu, sem flikkað hefur verið uppá. Þegar augun hafa vanizt birtunni innan dyra, vanizt þessari sjón, er ekki hægt annað en spyrja

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.