Vikan

Útgáva

Vikan - 25.10.1973, Síða 24

Vikan - 25.10.1973, Síða 24
Áður en Bardot sleit barnsskón- um, var ljóshærð, bláeyg stúlka, sem talaði með sterkum aust- urriskum hreim, að sannfæra brezka kvikmyndagerðarmenn um að hún gæti leikið alveg jafn vel og hún var falleg. Nú þrjátiu og fimm árum seinna er Lilli Palmer alveg eins falleg og hún var þá. Það fer ekki framhjá neinum, sem á eftir að horfa á sjónvarps- myndaflokkinn THE ZOO GANG, sem byggður er á bók Pauls Gall- ico um fjóra fyrrum meðlimi and- spyrnuhreyfingarinnar, sem leita nýrra ævintýra á Riveriunni. 1 þessum myndaflokki leikur Lilli Palmer franska meðliminn i hópnum og einu konuna, Man- ouche Roget — „afbraðgskokk” nokkurs konar eldri Diönu Rigg. Mér finnst ég eiga margt sameig- inlegt með henni. Ég þarf að hanga i stigum, aka eins og óð, og veifa byssum um allt.” Lilli Palmer kærir sig ekki um að láta slá sér gullhamra. „Mar- lene Dietrich er alltaf að segja mér hvað henni sé illa við að tala við blaðamenn upp á siðkastið, vegna þess að það eina, sem þeir spyrji um sé, „Hvernig hefur þér tekizt að halda áfram að vera svona falleg?” Ég held að ég sé að byrja að skilja Marlene. Fólk býst við þvi að finna hjá mér svarið við þvi, hvernig fegurð getur haldizt endalaust. Við ligg- ur að stækkunargler sé borið upp að andliti minu og mer finnst fólk hugsa: Nú já, hún hefur fengið sér andlitslyftingu. Hvernig fer hún að þessu? Þetta er svo ómerkilegt og þess vegna bið ég bara um eitt. Ekki skrifa um það eitt, hvernig ég lit út. Skrifaðu bara, að ég sé rúmlega sjötug og haldi mér vel. Ég er bara ein af þúsundum annarra kvenna og sú skoöun að konur á minum aldri séu ellilegar og farnar að láta á sjá a sér ekki stoð lengur Maður heldur ekki kyrru fyrir, heldur hreyfir sig mikið, borðar i hófi og bætir ekki við sig. Mjög skynsöm kona sagði einu sinni við mig: „Enginn ætti að bæta við sig, þegar hann eldist. Ekki borða meira en áður. Ekki hafa baðvatnið of heitt. Ekki borða of mikið salt.” Ég hef farið að ráðum hennar. Mér lærðist fyrir löngu siðan, að leiðindi eru mesta hættan. Ef þú hefur ekki önnur áhugamál, þegar þú ert orðin fertug, ertu fyrirfram dæmd. Þú endurtekur það sem þú hefur áður gert og af þvi leiða óhjákvæmilega leiðindi og þau gera það aftur að verkum, að þú verður ellilegri en þú átt að þér. Ég held að flestar konur verði hamingjusamari eftir þvi sem þær eldast. Móðir min kunni að eldast. A afmælinu sinu sagði hún alltaf: „Jæja, þá er annað ár lið- ’.B,” og hún sagði það eins og það vaeri afrek. Ég var feit ljóshærð stúlka. Þegar ég var sautján ára, leit Korda á myndir af mér og sagöi að ég hefði andlit, sem yrði fegurra eftir tuttugu ár. Tuttugu ár! Hvern langar til að lifa eftir tuttugu ár, þegar hann er sautján ára? En nú hefur andlit mitt feng- Lilli Palmer fyrrum eiginkona Rex Harrisons er ásamt Marlene Dietrich og Ingrid Bergman sú evrópsk leikkona, sem lengst hefur staðið á tindinum. Hér segir hún frá sjálfri sér og lifsviðhorfum sinum. 24 VIKAN 43. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.