Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 25.10.1973, Qupperneq 48

Vikan - 25.10.1973, Qupperneq 48
Týndur bróðir. Kæri draumráðandi. Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig eftir- farandi draum: Mér fannst ég vera á göngu uppi í sveit með vinkonu minni. Mér fannst eins og mamma og systkini mín væru komin nokkuðá undan. Allt í einu heyrði ég hófa- dyn að baki mér og sá þá sótrauðan hest koma á harða- spretti. Mér fannst bróðir minn hafa verið á honum, en nú var hann hvergi sjáanlegur. Eg hljóp til baka og kom að brekku og neðan við brekkuna var lítill læk- ur.Þar voru fyrrverandi skólasystir min og einhver maður, sem ég þekkti ekki, en bróðir minn var hvergi sjáanlegur. Nokkrum dögum seinna, þegar .við vorum komin heim (en ég á heima í Reykjavík) fannst mér bróðir minn koma heim með blautt hárið og hann var búinn að láta klippa sig. Hann var einnig undir áhrifum áfengis. Ég þakka fyrirfram fyrir ráðninguna. Kveðja. 1/2 96 Bróðir þinn virðist munu leggja í vafasamt fyrirtæki, sem hann getur beðið nokkurt f járhagslegt tjón af, en þú ættir að geta varað hann við i tíma, ef þú hefur augun hjá þér. lila farinn plötuspilari. Kæri draumráðandi. Mig langar til að biðja þið að ráða draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu. Ég var inni í herberginu mínu ásamt systur minni og fleiri krökkum, en þau þekkti ég ekki. Ég var að spila plötur, en allt í einu stöðvast plötuspilarinn og ég fer að athuga, hvort ég sjái hvað að er. Ég tók plötuna upp og sé að sú, sem er undir henni er brotin i þrjá parta og gúmmíið undir henni er allt svo einkennilegt að sjá. Svo verður mér litið framan á spilarann og sé að alla takkana vantar á hann Takkarnir eiga að vera sex. Eg fer að leita og finn eitthvað af tökkunum og get fest þann stærsta aftur á spilarann en ekki hina. í draumnum voru allir takkarnir svartir, en þeir gráir í raun og veru. Svo fer ég f ram til systur minnar og segi við hana: Nú hefur sonur þinn sloppið inn iherbergi til mín.Svo vaknaði ég og draumurinn varð ekki lengri. Með þökkum. S.S. Ekki höldum við að þessi draumur standi í neinu sambandi við framtíð þína. Við álítum að þú hafir á- hyggjur af þvi aö litli frændi þinn, eða einhver annar, fari illa meðeigur þínarog þess vegna hafi þig dreymt þennan draum. TVEIR DRAUMAR Kæri draumráðandi. Viltu vera svo góður að ráða fyrir mig þessa tvo drauma. Annan dreymdi mig vorið 1970, en hinn ný- lega. Mér fannst ég vera stödd fyrir utan heimilj for- eldra minna, sem búa úti á landi. Það var sólarlaust, en grasið var svo fallega grænt. Við fætur mér var hreiður og í því voru f jögur egg, tvö nokkuð stór en tvö minni. Yfir mérog hreiðrinu flugu þrir hrafnar.-Ég krýp niður og þá stendur fáðir minn h já mér og ég segi við hann: „Æ, pabbi, viltu hjálpa mér. Ég á þessi egg. Láttu þá ekki taka þau. Hinn draumurinn var svona: Ég var stödd í gömlu húsi á sama stað og í fyrri draumnum, en þetta húserekki til þar í raunveruleik- anum. Ég horfi á hús foreldra minna. Það er sólskin og ungt fólk að leika sér og baða sig í sólinni. Þá kemur mamma inn til mín með sængurver, sem hún saumaði einu sinni. Það er Ijósblátt. Hún ber sængurverið við mig og segir: ,,Þú getur fengið síðan kjól með rósa- bekk úr þessu veri". Með fyrirfram þökk. H.B. Þú átt eftir að flytjast aftur á sömu slóðir og foreldr- ar þinir búa á og þar elurðu upp fjögur börn þín. Svo virðist sém þú njótir einhverrar meiri aðstoðar foreldra þinna en áður, eftir að þú ert flutt í nágrenni við þau. SVAR TIL KARENAR. Allur þessi skef jalausi grátur þinn í báðum draumun- um er þér fyrir óvæntri gleði. Erfitt er að segja um í hvaða mynd hún verður, en þó er hún ekkert tengd pilt- inum, sem þú minnist á, því að draumurinn bendir til þess, að honum gangi ekki allt i haginn á næstunni. SVAR TIL AA — 11 Böl er að þá barn dreymir, nema sveinbarn sé og sjálfur eigi, segir gamalt orðtæki. Þessi draumur boð ar þér þess vegna ekki neitt annað en gott. Að öllum líkindum heppnast áform þín einstaklega vel og þú kemur einhverju í framkvæmd, sem þú hefur lengi ætlað þér, en aldrei látið verða af að gera.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.