Vikan


Vikan - 04.04.1974, Side 16

Vikan - 04.04.1974, Side 16
Allir þeir er séö hafa róma þá ægitign og fegurö sem viö blasir af Tigerhill viö sólris þegar bjart er til fjallanna noröur og norö- vestur undan. Dalirnir eru dökkir af skuggum, skýjaslæöur i hlíö-.., um, en á brúnum fjallanna, snævikrýndum hryggjum og tind- um, dansar logandi eldur ársólar- innar. Af Tigerhill sem er dálitill hnjúkskollur hjá Darjeeling á noröurjaðri Indlands hafa fleiri litiö konung fjallanna, Everest, en frá nokkrum öðrum staör. Hann Téttir þristrendan kollinn upp fyrir aðra tinda og hryggi i norö- vestri langt i fjarska. Náer og heldur austar er fjallabáknið ó- skaplega, Kangchenjunga, þriöja hæsta fjalliö, en mesta fjalliö aö þvi leyti aö þar er meira svæöi lands i meiri hæö en nokkurs staö- ar annars á jöröinni. Og svo taka viö önnur fjöll, nefnd eöa nafn- laus, hvit á heröum, rismikil og hvöss á brún, i endalausum röö- um, i þyrpingum og klösum — út i bláa fjarlægöina. Himalaja er mesti fjallabálkur jarðarinnar. Þetta eru raunar margir fjallgaröar. Syðst eru Siwalikhæöirnar, lágar og mjúk- ar, svo kemur fjallafelling, er kallast Minni Himalaja, og siöan taka viö hin eiginlegu háfjöll þessa mikla fjallaheims. Hima- laja þýðir „Snæheimur”, og fólk- ið á sólbrenndum sléttum Ind- lands gaf þeim það nafn. Lengd fjallgarðsins frá austri til vestúrs er 2400 km., en breiddin frá noröri til suðurs er 200-000 km. Þetta er þvi enginn venjulegur fjallgarð- ur, heldur sannkallaöur fjalla- heimur. Samgöngur um þennan fjalla- heim eru viðast hvar mjög erfiö- ar. Þaö er viöa hátt upp i fjalla- sköröin og niöri I dölunum belja straumþungar jökulelfur i hrika- legum gljúfrum. Sumstaðar þarf feröamaðurinn að kóklast eftir einstigum framani þverhniptum hömrum, fara yfir gjár á losara- legum timburbrúm, sem hróflað hefur veriö upp af vanefnum og þær oft bundnar viö kletta- nibbur svo þær skriöi ekki niöur i hyldýpiö meö hest og mann. Það þarf viöa aö ganga kaöalbrýr, sem blakta eins og strá yfir staumiöunni. Og sum-- staöar er feröamaöurinn dreginn yfir gljúfrin á ræfilslegum streng, og er þá ef til vill bara bundiö kaöli um hann miöjan og hann hengdur neðan i dráttarstreng- ■inn, en menn á hinum bakkanum draga hann yfir. Helztu fjallvegir yfir Himalaja frá -Indlandi liggja þar, sem dýpstu sköröin skerast niöur i fjöllin. Svo er t.d. skammt frá ánni Sutlej og einnig i Sikkim og Chumbidal. Enn, fremur eru nokkrar f jölfarnar leiöir úr Nepal noröur yfir fjöllin, ein aö kalla beint noröur af Kahmandu og önnur nokkru fyrir vestan Ever- est til Kyirong. Þá er og kunn leiö meöfram Kali Ganga á vestur- landamærum Nepal. — Þaö er hin viðkunna pilagrimaleiö til Manasarovar og Kailas-fjalls, sem á er mikil helgi meöál Hindúa. 16 VIKAN 14. TBL. FURÐUVERÖLD FJALLANNA fe- Efri hluti þessara fjallvega allra er næsta erfiður og hrika- legur. Hliöar eru hér langar svo margar dagleiöir eru upp á há- brúnir, eií þar ér jafnan snjór og oft hriðarbyljir, frost og nepja. Þar hafa margir villst og oröið úti, bugaöir af þreytu, súrefnis- skorti og hinu miskunnarlausa umkomuleysi mannskepnunnar i þessum tröllaheimi. 1 augum trúaöra Hindúa niöri i sólbreiskju Indlands eru fjöllin heimkynni guöanna. Himavat er andi eöa gyöja fjallanna, og auk þess sem fjöllin eru guöleg opin- berun valds og tignar, eru þau einnig heimkynni mikilla yoga, Maha.tma sem dveljast þar með friö i sál á kyrrlátum afkimum fjallanna. Þaö er trú sumra aö þeir hafist viö i hellum eöa hreys- um, litt klæddir eöa ekki, og bjóöi nepju fjallanna og einmanaleik algerlega byrginn. En einnig heyrast sagnir um fagra og skjól- Cæla dali, sem séu eins og vinj'ar i auönunum. Þær sagnir eru ekki eintómur uppspuni. 1 Himalaja er fjöldi dala.störra og smárra þar- sem saman fer hrikafegurö og mildi og hlýja bllölegra fjalla- byggöa. t sumum er byggö, 1 öör- Y

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.