Vikan


Vikan - 04.04.1974, Page 28

Vikan - 04.04.1974, Page 28
Vorstulka yikunnar í Evuklasóuín X. Brúnn jakki, rvkktur i bakiú meö beiti, frá SOS og IB. 2. Fóöraö, mynztraö pils I nýju siddinni frá Cacharel. Beige veiourbolur frá SÖS og IB. 3. Rifflaöar gráar flauelsbuxur frá JEAN MICHEL, rauöur veiourboiur og skyrta frá SÖS og IB. 4. Stuttur rósóttur kjóll og taska úr sama efni Fyrstu verðlaun: Mallorkaferð með SUNNU. Hrefna Valsdóttir varð 18 ára þann 1. april s.l. og „hljóp” þvi yfir á 19. árið. Hún er dótt- ir Ágústu Hafsteinsdóttur og Vals Júliusson- ar og á heima i Hraunbæ 168 i Reykjavik. Hrefna átti heima i Reykjavik til 6 ára ald- urs, en fluttist þá með foreldrum sinum til Seyðisfjarðar, þar sem faðir hennar var hér- qðslæknir i 6 ár. „Það var einmitt á sildarárunum og þvi mikið um að vera á sumrin”, segir Hrefna. „Ég fór auðvitað að salta sild eins fljótt og ég gat, eins og allir krakkar á Seyðisfirði, en varð fyrst að standa á hlaða af tunnulokum til að ná niður i tunnuna. — Á veturna var daufara yfir bænum, enda var maðúr alveg innilokaður þarna milli fjallanna”. Eftir að Hrefna fluttist aftur til Reykjavik- ur fór hún i Verzlunarskólann og lauk prófi þaðan á liðnu vori. „Þegar ég var búin i prófum fór ég að vinna við simavörzlu og skrifstofustörf’ hjá heildsölufyrirtæki. Mér likar það prýðilega, þarna kemur að góðum notum margt s.ém ég lærði i skólanum, til dæmis vélrituri og bréfa- skriftir.” Hrefna er mikið fyrir útiveru og á Seyðis- firði fór hún mikið á skiði. „En ég hef gert skammarlega litiö af þvi eftir að við komum suður. Aftur á móti fer ég oft á hestbak. Fjölskyldan á nokkra hesta og á veturna eru þeir i Reykjavik og þá er auð- velt að skreppa á bak. Á sumrin eru þeir hafðir i girðingu i Austur-Landeyjum og þá get ég ekki farið nema ég eigi fridag”. 1 sumar fær Hrefna fyrsta sumarleyfið og er ákveðin i að fara til útlanda. Hún er þó enn ekki alveg ákveðin i hvert hún fer, en ttalia og Grikkland eru efst á óskalistanum. 28 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.