Vikan


Vikan - 04.04.1974, Page 34

Vikan - 04.04.1974, Page 34
V „Menn ættu að skipta um starf tvisvar til þrisvar á ævinni Rætt við Guðlaug Þorvaldsson, háskóiarektor Það veittist ekki erfitt að fá „já” háskólarektors við beiðni um viðtal. Aftur á ntóti reyndist erfiðara að finna stund, sem ekki var þegar skipulögð til funda- halda 'eða annarra starfa. Þegar við hringdum f hann lá hann í kvefi, en á þeim tlu dögum, sem liðu, þar til hann gat fundið smugu til að spjalla við blaða- mann, þurfti hann, auk daglegra starfa I háskúlanum og starfa, sem dregizt höfðu vegna veikind- anna, að vaka I þrjá sólarhringa I lokahrið. samningaviðræðna verkalýðsfélaga og vinnuveit- enda á Hótél Loftleiðum. Og hálfum sólarhring hafði hann eýtt með 6 félögum sinum við að minnast þess veglega. að aldar- fjórðungur var liðinn frá því þeir byrjuðu að leika bádminton saman. Ekki. var þó að sjá að veikindi, vökur og gleðskapur hefðu haft á hann nokkur áhrif — hann var eins léttur I bragði og ólikur „prófessornum” i skrýtl- unni og hugsazt getur. Gúðlaugur Þorvaldsson tók við starfi háskólarektors á liðnu hausti, eftir að hafá verið próféssór við viðskiptafræðideild Háskóla íslands um 6 ára skeið. Það hafði ékki borið mjög mikið á honum og sumir spurðu „hver er hann?” — og þvi fannst ókkur vel viö eigandi að biðja hánn að segja okkur fyrst svolftið frá uppruna sinum og æsku. Ég er fæddur á Jámgerðar- stöðum I Grindavik fyrir tæpum 50 árum. Foreldrar minir voru Þorvaldur Klemenssón og Stefania Tómasdóttir og systkin min fjögur eru Tómas, útgerðar- maður I Grindavik, Margrét, gift i Hafnarfirði, Halldóra, gift I Reykholti og Valgerður, gift i Grindavik. Ég ólst upp i Grinda- Þeir hafa spilað saman badmin- ton I 25 ár. 1 fremri röð eru Ragn- ar Georgsson og Guðiaugur Þor- valdsson, en I aftari röð: Kristján Benediktsson, Gunnar Petersen, Pétur Georgsson og Kristján Benjaminsson. Sá sjöundi, Sigur- geir Jónsson, var ekki á æfing- unni, þegar myndin var tekin. 34 VIKAN 14. TBL. vik, eins og allt mitt fólk og eigin- iega var ég skyldur öllum i •Grindavik á þeim árum. Ég tel mig ennþá Grindvfking og á enn mikinn frændgarð suður með sjó. Ég ólst upp á kreppuárunum og þótt viða væri fátækt var þetta mjög ánægjulegur timi. Maður vann i heyi og fiski og fjaran var aðalleikvangurinn.” „Hvernig var Grindavik á þessum árum?” „í Járngerðarstaðahverfinu, þar sem ég fæddist, voru um 300 ibúar og svo voru tvö önnur hverfi með um 150 ibúa samtals. Fyrst, þegar ég man eftir mér, var ekki einu sinni til steypt bryggja, heldur var lagzt við klappirnar og fiskurinn seilaður og jafnvel borinn upp á bakinu. Opnu bátarnir voru hifðir upp á hand- knúnum spilum og við krakljarnir fengum að taka þátt i þessu. Ahöfn hvers báts verkaði sinn fisk og þurrkaði hann um sumarið og yfirleitt tók öll fjölskyldan þátt i þvi. Faðir minn átti hlut i bát, en var einnig með kýr, svo ég var jöfnum höndum i fiski og við búskap.” „Fórstú mikið á sjó?” „Ég fór oft á sjó sem strákur, en þegar ég var 13 ára fór ég i Flensborgarskólann og var þvi aldrei á sjó af neinni alvöru, enda 77 hefði ég sennilega orðið lélegur sjómaður. En ég vann áfram i fiski og heyi á sumrin, þar til striðið skall á, en þá fór ég I Bretavinnu og siðar Amerikana- vinnu. Þar vann ég við sitt af hverju, átti til dæmis, þegar ég yar 17 ára, að heita verkstjóri yfir verkamönnum, sem byggðu Helgafellsspitalann i Mosfells- sveit, en það var stærsti spitalinn, sem herinn var með hér. Hópur manna úr Grindavik, undir vérk- stjórn Tómasar bróður mins, tók að sér að rifa flugskýlin i Kaldaðarnesi, en þau voru siðar flutt hingað til Reykjavikur. 1 Kaldaðarnesi vann ég i eldhúsínu hjá Bretum i einn mánuð. Einnig vann ég við gerð Keflavikurflug- vailar. Sumarið eftir að ég varð stúdent, vann ég á næturnar i grjótnáminu i öskjuhlið — vann hverja nótt fram á haust frá átta að kvöldi til átta næsta morguns. Ég byrjaði i þessu daginn eftir að ég kom hingað suður eftir stúdentspróf, 18. júni 1944. A daginn sváfum við i bröggum innan um rotturnar og þótt það væri hálf ömurlegt var það að mörgu leyti skemmtilegt.” , ' J Ætlaði að læra landa fræði og jarðfræði Ætlaðirðu þér alltaf I lang- skólanám?” „Það var nú eiginlega meira öðrum að þakka en mér, að ég fór i skóla. 1 þá daga tiðkaðist ekki i Grindavik að menn færu áfram til náms, en þó fór svo, að ég fór i Flensborg með frænda minum, Tómasi Tómassyni, sem nú ær forseti bæjarstjórnar i Keflavik. Fyrir góðvild Lárusar Bjarna- GuOIaugur og Kristin H. Kristins- dóttir, kona hans, á heimili þeirra i Reykjavik. Enginn sona þeirra fjögurra var viðstaddur til að vera meö á myndinni, en þeir eru: Steinar Þór, 23 ára, við Hft fræðinám við Oslóarháskóla^ Gylfi Kristinn, 19 ára, I mennta- skóla, Þorvaldur óttar, 15 ára., I gagnfræðaskóla og Styrmir, 10 ára.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.