Vikan


Vikan - 22.05.1974, Page 13

Vikan - 22.05.1974, Page 13
landinu og ég býst við að hafa reynt þau flest. — Afsakið frú, sagði Eaton prófessor. — Það eru hundruð meðala á markaðnum nú á dög- um, en ekki nema eitt Indiána- rótarmeðal. Þér munduð gera mér greiða, ef þér vilduð nefna það sinu eina rétta nafni. Indiána- rótarmeðalið er nafnið á eina meðalinu, sem á við öllum sjúk- dómum. Og einkum er það heppi- legt fyrir þroskaðar konur, frú. — Þér ættuð ekki að kalla mig frú Eaton prófessor, sagði Effie og fór hjá sér. — Ég er bara stelpu- bjáni, og ekki einusinni gift enn. Eaton prófessor þurrkaði svit- ann af efrivörinni og leit niður á Effie. — Mikið gat ég verið vit- laus, kæfa unga dama, sagði hann. — Það þarf þó ekkí annað en lita á friska unga andlitið á yð- ur, til þess að sjá, að þér eruð kornung stúlka. Og rótarmeðalið mitt er lika alveg eins og sniðið fyrir ungar stúlkur. Effie leit við til þess að að- gæta, hvort negrarnir væru nógu nálægir til að heyra það sem pr'ófessorinn sagði. Hún var að vona, að einhverjar konurnar úr götunni gæti komið nógu snemma fyrir hornið til þess að heyra þessa lýsingu prófessorsins á ' henni. — Ég tala nú aldrei mikið um Sjálfa mig, en finnst yður ekki ég vera fullung til að gifta mig? — Kæra, unga mær, sagði hann, eftir • að hafa kveikt aftur i vindlinum sinum. — Rótarmeðal- íð er alveg sérstaklega ætlað fyrir ógiftar stúlkur. Það er merkasta úppgötvun læknisfræðinnar frá örófi alda. Ég náði sjálfur I upp- skriftina hjá merkilegum Indiánalækni i okkar dýrlegu Vesturrikjum, og ég var neyddur til þess. krjúpandi á hnjánum, að helga þvi sem eftir væri ævinnar þvi starfi að ferðast um h já okkar miklu þjóð og bjóða meðalið mönnum og konum, sem að öðr- um kosti yrði ósjálfbjarga öryrkj- ar. Hann varð nú að þagna til þess að ná andanum, og þa fyrst leit hann upp yfir bilinn og beint framan i Effie. Við gaslogann, kvöldið áður, þegar þarna var allt fullt af fólki, hafði hann ekki komizt til að taka eftir hverj- um einstökum, sem rétti honum dal eftir einu glasi. En nú þegar hann sá Effie almennilega, hallaði hann sér fram og glápti á hana. — Ó, Eaton prófessor, þér eruð svo dásamlegur maður! Hugsa sér bara, að þér skulið gegna svona mikilvægu starfi á jörð- unni! Eaton prófessor hélt áfram að stara á Effie. Hún var lagleg á við hvérja aðra þarna i bænum og ekki yfir þritugt, og þegar hún hafði dubbað sig upp, eins og hún hafði verið klukkutima að gera þennan morgun, áður en hún fór að heiman, þá glaptu venjulega allir farandsalarnir svona á hana . og spurðu kaupmennina, hvaða stúlka þetta væri. Eftir nokkra stund brölti prófessorinn niður úr bilnum og gekk kringum hann til stúlkunn- . ar. Hann kveikti enn i dauðum vindlinum og athugaöi Effie gaumgæfilega. — Þér skiljið, að þér ættuð ekki að tala svona við mig, sagði hún og reyndi að forðast augnaráð hans..—Þér þekkið mig virkilega ekki nógu mikið tii þess að1 kalla mig kæru ungu mey. Þetta er i fyrsta sinn, sem við hittumst og Ekki datt mér i hug, að fögur ung stúlka mundi i alvöru amast við heiðarlegri aðdáun, sagði hann og mældi hana með augun- um frá hvirfli til ilja og kipraði munninn þegar hún íitlaði við blússuna sina. — Það er svo sjald- an sem ég fæ tækifæri til að sjá svona töfrandi mey, að það hefur liklega ruglað fyrir mér. En nú þegar við erum orðin hvort öðru kunnugt, hafið þér vonandi ekkert á móti aðdáun minni. Er það? — Ó. prófessor Eaton. sagði Effie uppveðruð. — Finnst yður virkilega og i fullri alvöru ég vera falleg? Það hafa svo margir karl- menn sagt mér það áður, og ég er orðin svo vön að heyra þaðt en þér eruð fyrsti maðurinn, sem segir það á svona töfrandi hátt. Hún reyndi að hörfa til baka en var þegar komin upp að skutnum ' á bilnum. Eaton prófessór gekk skref áfram. sVo að hún gat ekki snúið sér neinn veginn. Henni hefði nú veriðsama up\ það, hefði hún ekki þurft að hafa andartaks næði til að gá undir blússúna sina. Hún vissi alveg, að þar var eitt- hvað i ólagi — liklega eitthvað sem hafði komiztinn á hana, af- þvi að prófessorinn hafði ekki haft augun af brjóstinu á henni siðan hann kom til hennar niður i bflnum. Hún velti þvi fyrir sér, hvort hún hefði ekki átt að fara i öll kirkju-undirfötin sin. — Góða stúlka min. ég er ekki i nokkrum vafa, hvfið fegurð þina snertir. Yfirleitt finnst mér þú vera mesta töframær, sem ég hef verið svo heppinn að hitta á öllum ferðum minum um hið mikla land okkar — frá strönd til strandar, • norðan frá Vötnum og suður að Flóa. — Ég verð bara eins og einhver stelpukjáni að heyra þetta, sagði Effie og strauk blússuna sina á brjóstinu. Mér finnst rétt eins og ég sé .... Prófessorinn sneri sér snöggt við og seildist i aftursætið eftir glasi af Indiána-rótarmeðalinu. Hann beit i korktappan og dró hann upp og rétti glasið umsvifa- laust að Effie. — Þetta gef ég, stúlkan min, sagði hann. — Skelltu þvi bara i þig og sjáðu svotil, hvort þú verð- ur ekki bara enn hraustari. Effie tók við græna glasinu og horfði á myndina af unga manninum sterka i glimubuxun- um. — Ég drakk upp úr glasinu, sem ég keypti i gærkvöldi, sagði hún. — Ég drakk úr þvi rétt áður en ég fór að hátta, og mér leið svo vel af þvi, ,að ég gat bara ekki legið kyrr. Ég varð að fara út á svalir dálitla stund og syngja. — Já, það er ekki. til hollara .... — En við hvaða sjúkdómum-á þetta meðal sérstaklega prófessor? Indiána-rótarmeðalið á við hverju, sem að manninum geng- ur. Meira að segja sem hressingarmeðal, svona almennt tekið, er það alveg frábært. Og auk þess er ekki til sá sjúkdómur, þekktur af læknavisindunum, sem þaðhefur ekki lin .... sem það hefur ekki læknað. Effie hvolfdi glasinu og vökvanum með lakkrisbragðinu ofan i sig, eins og það lagði sig. Negrarnir, sem stóðu álengdar og horfðu á, þefuðu með löngunar- svip þegar áfengisilmurinn úr glasinu barst til þeirra. Effie rétti prófessor Eaton glasið aftur, en leit um leið á myndina á miðan- um. — Ó, prófessor Eaton, sagöi hún og færði sig nær honum. — Ég er strax farin að hressast. Mér finnst alveg eins og ég ætli að tak- ast á loft og fljúga! — Kannski þú vildir lofa mér .... — Að gera hvað, prófessor Eaton? Hvað? Hann sló öskuna af vindlinum með litlafingri, .— Kannski vildirðu lofa mér að fylgja þér heim, sagði hann. — Það er alveg komið að mat- artima og ég ætlaði hvort sem var að fara að loka, þangað til seinni- partinn, svo að ef þú-vilt leyfa það, skal ég aka þér heim i biln- um minum. Visaðu mér bara til vegar og svo leggjum við strax af stað. — Þér eruð svo rómantiskur, prófessor Eaton, sagði Effie og lagði höndina á arm honum. Mér finnst ég vera eins og einhver stelpubjáni i návist yðar. — Þú ætlar þá að lofa mér að fylgja þér heim? — Það er svo sem auðvitað. — Komdu þá hérna, sagði hann um leið og hann opnaði bilinn en hélt fast um handlegginn á.henni. Þegar þau höfðu komið sér fyrir I framsætinu. leit Effie á Eaton prófessor. — Alveg er ég viss úm, að þér hafið átt I fjölda ástarævintýra með hinum og þessum ungum stulkum, viðsvegar um landið. — Oðru nær, sagði hann um leið og hann ræsti bilinn. — Þetta er I fyrsta sinn, sem ég hef hugsað al- varlega um nokkra af hinu kyn- inu. Þú skilur, að ég beiti mér ein- .vörðungu að útbreiðslu, dreifingu og sölu Indiána-rótarmeðalsins. En i þetta sinn verð ég auðveld- lega lokkaður I viðskipta- áhyggjunum. 1 stuttu máli sagt þá tel ég þessa nærveru þina i bilnum mínum hinn mesta heið- ur. Oft hef ég óskað þess, að ég gæti .... — Og er ég þá fyrsta stúlkan .... fyrsta konan, sem þér hafið nokkurntima farið a fjörurnaí við? — Já, vissulega. Vissulega. Eaton prófessor ók út af ill- gresisblettinum og sneri bilnum upp eftir götunni, i áttina heim til Effie. Það var ekki nema stuttur spölur þangað, og þá litlu stund sem ferðin tók, mælti hvorugt þeirra orð frá munni. Effie skimaði kringum sig til þess að aðgæta, hvort nokkur sæi hana akandi með prófessornum i biln- um hans, en hann hafði nóg að hugsa að aka gegn um lausa sandinn á götunni. Þegar þau komu á leiðarenda sagði Effie honum að leggja bilnum við hlið- ið. svo að þau gætu stigið beint út úr honum og inn i húsið. Siðan stigu þau út og Effie gekk á undan inn um framdyrnar og inn i stofuna. Hún dró glugga- tjaldið ofurlitið upp og dustaði legubekkinn. Eaton prófessor stóð nálægt miðju gólfi og horfði órólegur'út um litlu rifuna undir gluggatjald- inu, og hlustaði vandlega eftir öðrum hljóðum úr húsinu. . — Setjizt þér á sófann hjá mér, sagði Effie. — Ég veit að mér er al- vég óhætt hjá yður, prófessor Eaton. Effie lokaði augunum og lét sér eftir þá ánægju að vera dauð- hrædd við prófessorian. Þetta var næstum enn yndislegri tilfinning heldur en hin i gærkvöldi, þegar hún hafði tæmt fyrsta meðala- glasið og farið siðan i rúmið. — Og þetta er þá forfeðra- , heimilið? spurði hann. — Æ, við skulum ekki taia um neitt nema yður ... og mig! sagði Effie. — Vildvjð þér ekki bara tala um okkur. Prófessorinn tók nú að róast. er hann þóttist viss um, að þau væru tvö ein i húsinu. — Kannski, sagði prófessorinn og færði sig nær Effie og horfði nú aftur undir blússuna hennar. — Kannski vildirðu lofa mér að rannsaka hvað að þér gengur. Þú skilur, að ég er útfarinn i lækna- visindunum og ég get alveg sagt, hve mörg glös af rótarmeðalinu þú þarft. Þvi að auðvitað þarf fólk mismörg glös. Effie leit sem snöggvast út um gluggann og siðan á prófessor Eaton. — Þarf ég að ....? — Nei, það er alveg óþarfi, en annars géturðu haft það eins og þú sjalf vilt. Ég get rétt ..„ — Eruð þér alveg viss um, að það sé allt i lagiZ — Já, auðvitað. Effie strauk blússuna sina með Framhald á bls. 14 21. TBL. VIKAN '13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.