Vikan - 22.05.1974, Side 35
STYTTAN AF SNORRA FLUTT
Kæri draumráðnadi!
Fyrir nokkru dreymdi mig draum, sem mig langar
til að biðja þig að ráða fyrir mig.
Mér fannst ég vera stödd í Reykholti og þótti mér
sem styttan af Snorra gamla Sturlusyni stæði á ný-
sléttuðu flagi, sem búið var að gera í kringum nýju
borholuna. Það stóð til að færa styttuna þaðan og
norður fryrir nýju skólabygginguna og var það gert.
Þá fannst mér Snorri lifna við og reyna að færa sig
til og f rá þar á túninu, f rekar óánægður, eins og hann
væri að reyna að sjá gömlu skólabygginguna. Lengri
varð þessi draumur ekki.
Með fyrirfram þakklæti og von um skjótá lausn.
Mina.
Þessi draumur boðar líklega ekkert, sem snertir
sjálfa þig beinlínis. Trúlega er hann fyrir einhverjum
óvæntum breytingum í Reykholti, breytingum, sem
engan órar fyrir, en ekki vill draumráðandi segja
neitt ákveðið um í hverju þær breytingar eru fólgnar,
enda kemur það ekki skýrt fram i draumnum.
ÞRJÚ HJÓNARÚM.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að ráða þennan draum
fyrir mig.
Mér fannst ég fengi bréf frá pennavinkonu minni í
Ameriku, sem ég hef aldrei séð. Innan í bréfinu voru
margir dollaraseðlar, sem hún sagði, að væru gjöf til
min. Ég varð mjög hissa á þessu og vildi endursenda
peningana, en hún tók það ekki í mál.
Næst fannst mér ég fara niður í bæ ásamt strák,
sem ég þekki sama og ekki neittog hafði ég peningana
meðferðis. Við fórum inn í banka og létum skipta doll-
urunum í íslenzka peninga.
Allt í einu fannst mér við vera komin inn í verzlun,
þar sem seld voru hjónarúm. Við fórum að skoða
hjónarúmin og strákurinn segir við mig, að nú skuli ég
vel ja mér eitt rúm af þremur, sem ég mátti kaupa.
Eitt. rúmanna þótti mér mjög skrautlegt, hvítt úr
stáli. Yfir það var breitt fullt silkiteppi og marglitir
silkipúðar voru á rúminu.
Annað var mjög venjulegt úr viði, en hið þriðja var
fremur Ijótt og gamalt, en samt var eitthvað sætt við
það.
Að lokum fannst mér ég velja fallegasta rúmið. Ég
var mjög ánægð með val mitt og þóttist hafa varið
peningunum vel og sama var að segja um strákinn.
Við þetta vaknaði ég.
Með fyrirfram þökkum fyrir birtinguna.
I.Á.
Þú kynnist þremur piltum, sem allir verða góðir
vinir þinir og með tímanum er líklegt, að þeir sækist
eftir ástum þínum. Þú átt erfitt með að velja milli
þelrra, enda finnst þér þeir allir hafa eitthvað til síns
ágætis. En þér tekst þó fyrir rest að velja og velur
þann, sem þér þykir nútímalegastur f hugsun.
mig dreymdi
BILL SEKKUR I HÖFNINA
Kæri draumráðandi!
Ég leita til þín með draum, sem mig dreymdi síð-
ustu nótt, en ég fæ ekki ráðið.
Mig dreymdi, að ég væri staddur niður við höf n.
Þar sá ég asamt einhverjum f leirum bíl, sem hafði
farið fram af bryggju og i sjóinn, en var á floti. (Ég
hélt, að bilar væru það þungir, að þeir sykkju strax í
vatni og sjó, en ég undraðist það ekkert í draumnum,
að bíllinn skyldi f Ijóta.) En skömmu síðar byrjaði bíll-
inn áð sökkva að aftan og sökk síðan allur í sjóinn,
framendinn síðastur. Einhver var í bilnum og fannst
mér hann hafa opnað bílstjórahurðina, þegar hún var
komin rétt undir sjávarborð, en hvort hann slapp lif-
andi veit ég ekki. Mér virtist þetta vera Ijósleitur
(jafnvel alveg hvitur) amerískur bíll. Þegar kranabíll
kemur á staðinn til þess að ná bílnum upp, kemur í
Ijós, aðtveir bílar höfðu sokkið þarna í höfnina, en um
annan þeirra vissi ég ekki neitt.
Þegar kranabíllinn var að ná bílnum upp úr höfn-
inni, sat ég allt í einu álengdar og var að tala við þrjár
fyrrverandi bekkjarsystur mínar og fannst mér þær
allar vera vanfærar. En ekkert man ég hvað við
vorum að ræða um, nema ég held helzt að það hafi
eitthvað staðið i sambandi við annan hvorn eða báða
bílana, og/eða þá, sem í þeim voru.
Þegar búið var að ná fyrri bilnum upp úr höfninni,
var Ijósi ameríski bíllinn dreginn upp og man ég ekki
meira af draumnum.
Virðingarfyllst,
S.H.
Eðli draumsins stendur greinilega í sambandi við
atburði þá, sem þú segir að hafi komið fyrir þig um
það leyti, sem þig dreymdi þennan draum. Þar fyrir
getur hann haft einhverja djúpstæðari merkingu, Lík-
lega gengur þér svolítið illa að jafna þig eftir þéssa
reynslu og vinna bug á þeim ugg, sem hann veláúr
þér. En með tímanum kemstu yfir þetta og þér gefast
þrjú góð tækifæri til að velja um, en draumurinn segir
ekkert um, hver þau eru, né hvert þeirra þú velur.
SVAR TIL KLP.
Láttu þennan draum ekki hafa nein áhrif á þig, því
að hann er miklu fremur martröð en draumur, sem
mark er takandi á. Sumt draumspakt fólk segir líka,
aðallir slæmir draumar séu fyrirgóðu, svo að þér ætti
að vera óhætt þrátt fyrir þennan ógeðfellda draum.