Vikan - 22.05.1974, Síða 42
Hornsóíasett
HORNSÓFASETT «
Hentar alls staöar. Settið getur meðal annars samanstaðið af stól
tveggja sæta sófa og þriggja sæta sófa ásamt hornborði og sófaborði.
Höfum einnig ýmsar stærðir svefnbekkja. Úrval áklæða.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
NÝSMÍÐI S.F. Langholtsvegi 164/ sími 84818
Á sjúkrahúsinu spurhi hún föður
sinn: „Hvernig liður mömmu?”
„Ég man, að hann leit á hjúkr-
unarkonuna, áður en hann
svaraði mér og svo sagði hann:
„Þú þarft ekki að hafa áhyggjur
af mömmu þinni.” Seinna var
mér ságt, að hún væri dáin.”
Nú búa þau feðginin i húsi, sem
stendur i brekkunni ofan við
Axbridge. Brenda er enn i skóla
og annast húsverkin, sem hún
viöurkennir, að sér leiðist. Þegar
hún lýkur skólanum, ætiar hún að
fara að vinna. „Það verður að
vera starf, sem samræmist hús-
verkunum.”
Hvernig getur byggðarlag
komizt yfir sllkt áfall?
„Faðir minn talar ekki mikið
um slysið,” segir hún. „Þegar ég
fer út á kvöldin, kemur frændi
minn til þess að spjalla við hann.
Við viljum ekki, að hann sé einn.”
Hvernig getur byggðarlag
komizt yfir slikt áfall? Sumt
fólkið, sem spurt var þessarar
spurningar, taldi að það væri
ógerningur.
Aðrir telja, að það sé hægt.
Meðal þeirra er Nick Barrington,
sem er eigandi Oak House,
veitingahússins, þar sem hjálpar-
starfið var hafið.
„Það verður að sýna jákvætt
viðhorf,” segir hann. „Allt annað
veldur algerri uppgjöf. Af öllum
þeim fjölskyldum, sem eiga um
sárt að binda, eru fáar, sem ekki
hafa aðlagast kringumstæðunum.
Vitaskuld var slysið hræðilegt
áfall. Það er martröð, martröð,
sem íbúar þessa þorps eiga eftir
að þjást af um ókomin ár.”
„Fólk verður að taka á sig
þyngri byrðar en áður var. Það,
sem gerzt hefur, er óumbreytan-
legt. Bæjarbúar eru bundnir hver
öðrum sterkum böndum og þeir
hafa hjálpað sér bezt sjálfir. Til-
tölulega mjög litil hjálp hefur
verið veitt at utanaðkomandi
aðiljum.”
Mörgum mannanna finnst þeir
verða.að fara út á meðal fólks, en
i rauninni hafa þeir litið gaman af
þvi. Þeir eru góöir fjölskyldu-
feður og þorpsbúar vona, að þeir
finni ástina aftur.
Miklar umræður hafa farið
fram um þetta atriði og flestir eru
sammála. „Ef þeir geta gifzt
aftur, þá óskum við þeim til
hamingju af heilum hug. En hvar
eiga þeir að finna stúlkur, sem
vilja taka áð sér börn fyrri eigin-
konu og finna stöðugt svip fyrri
ástvinar i húsinu? Sumum mönn-
unum hefur tekizt að finna slikar
stúlkur. Sumir þeirra eru reyndar
kvæntir aftur.
„Sumu fólki mun án efa veitast
erfitt að skilja, að ég skyldi geta
kvænzt ahur,” segir John Newell.
„En ef ég átti að halda áfram að
lifa, varð ég að finna einhvern til-
gang með lifinu. Volli er eina
ástæðan til þess, að ég er enn á
Hfi.”
Daginn, sem kona hans og tvö
börn fórust i flugslysinu, var John
Newell á leið heim i bilnum
sinum. Hann hafði átt annrikt um
daginn, en hann var á söluferð
fyrirraftækjaverksmiðju og hafði
þess vegna ekki hlustað á út-
varpið. Hann kveikti þvi á út-
varpstækinu I bilnum til þess að
hlusta á fréttirnar og þá heyrði
hann um slysið.
Hann man litið, hvað geröist
eftir það, nema margar klukku-
stundir liðu, áður en hann fékk að
vita hvort fjölskylda hans væri á
lifi eða ekki. Hann er trúaður
maöur og fór þess vegna i
kirkjuna og bað til guðs, að
kraftaverk hefði bjargað lifi konu
hans og barna.
, Frambald á bls. 46
EINNI & PINNI
42 VIKAN 21.TBL.