Vikan - 11.09.1974, Page 19
FYRIRFRAM
lega, að foreldrarnir myndu ekki
láta okkur sæta ábyrgð, ef eitt-
hvað gengi Urskeiðis — til dæmis
ef barn fæddist vanskapað. Allt
hafði gengið samkvæmt áætlun á
tilraunastofunni, en myndi það
einnig gera það, þegar tilraunir
yrðu geröar meðal almennra
borgara?
Kannski rétt sé að útskýra
stuttlega, hvernig ákveða má kyn
barns fyrirfram. Það er hægt
vegna mismunandi sundeigin-
leika sæöisins eftir kynferði
krómósómanna. Karlkynssáð-
frumur innihalda Y-krómósóm og
synda hraöar en kvenkynssáð-
frumur, sem innihalda X-krómó-
sóm.
Aðferöin er einföld. Sæðið er
þynnt og sett I tilraunaglas með
eggjahvituefni. Sæðið hreyfir sig
reglubundið i glasinu og sumt af
þvi blandast eggjahvituefninu og
það reynist vera sterkari hluti
sáðfrumanna. Hinar éru veik-
byggðari og ekki gæddar eins
miklum þrótti. Við komumst að
raun um eins og aörir visinda-
menn, sem fengizt hafa viö rann-
sóknir á þessu sviöi, að Y-sáð-
frumur náðu eggjahvituefninu i
80% tilfellanna, en X-sáöfrum-
urnar aðeins i 20% tilfellanna.
Smásjárrannsóknir sýndu, að
þessar þróttmiklu Y-sáðfrumur
voru undantekni'ngarlaust heil-
brigðar og myndu að öllum lik-
indum skapa sterkbyggt, greint
og óvenju heilbrigt fólk.
Ofurmenni?
Ég er þess fullviss, að með þvi
að halda rannsóknunum áfram
verður unnt að skapa nokkurs
konar ofurmenni, þvi aö unnt yröi
að útiloka veikbyggðar sáðfrum-
ur á tilraunastofunni.
Eftir þriggja ára rannsóknir á
sæði er ég sannfærð um, aö þeir
eiginmenn, sem hingaö til hafa
ekki getaö orðið feður, vegna þess
að sáðfrumur þeirra eru of veik-
byggðar, geta það nú með þvi að
láta skilja sterkbyggðustu sáö-
frumurnar frá á tilraunastofu og
láta siðan frjóvga eiginkonuna
með þeim.
í árslok 1972 voru rannsóknirn-
ar komnar á það stig, að við á-
kváðum að fá fólk til aö vinna
með okkur. Við höfðum uppi á
fimm hundruð hjónum, sem voru
fús til að gangast undir öll próf,
sem við töldum nauðsynleg. tJr
þessum hópi völdum við þau hjón,
sem i öllu tilliti voru andlega og
likamlega heilbrigð og óskuðu
þess að eignast drengi.
Við fengum sæði úr sjálfboöa-
liðunum, og eftir að við höfðum
útilokað veikbyggöu sáöfrumurn-
ar, frjóvguðum viö 92 eiginkonur
með úrvals sáðfrumum úr eigin-
mönnum þeirra.
Próf u
Þessar konur höfðu verið rann-
sakaðar nákvæmlega til aö fá
sem gerzta mynd af heilsu þeirra
og vera viss um, að þær hefðu
engan likamlegan galla, sem haft
gæti áhrif á fæðinguna. Væri
minnsti vafi á þvi, að einhver
kvennanna uppfyllti ströngustu
heilbrigöiskröfur, var hún
þurrkuð út af listanum. *
Þrátt fyrir allar þessar rann-
sóknir misstu fjórar kvennanna
fóstrið, en allar hinar gengu með
á fullkomlega eðlilegan hátt og
ólu börn, sem stöku visindamenn
hafa kal'lað tilraunaglasabörn.
Fyrstu börnin fæddust I byrjun
október 1973. Engir nema foreldr-
arnir og við visindamennirnir
vissu, að frjóvgunin hafði farið
fram meö svoKtið óvenjulegum
hætti.
„Börnin okkar” — eins og við
köllum þau — eru öll eðlileg og
fullkomlega heilbrigð, en kannski
er þó þaö mikilvægasta frá
sjónarmiði visindanna, að þau
eru öll sveinbörn.
Jafnvægisleysi (
Enskur visindamaður að nafni
Harris heldur þvi fram, aö þessar
tilraunir geti haft I för með sér
jafnvægisleysi I fjölda kynjanna.
Og ég er honum sammála um
það. En á hinn bóginn er vel hugs-
anlegt, að þessi aðferö geti komið
aö haldi i baráttunni við offjölgun
mannkynsins og mér finnst rétt
aö reynt sé að kryfja þá hugmynd
til mergjar um leiö og gaumur er
gefinn að gagnrýni Harris. Sömu-
leiðis tel ég þessa aðferö réttlæt-
ast af þeim sjúkdómum, sem aö-
eins erfast i karllegg eöa kven-
legg, en meö þVi að beita henni er
unnt með 95% öryggi að ákveða
kyn barnanna.
Rannsóknunum er enn haldiö á-
fram en tæpast veröur nokkurri
opinberri skýrslu um þær skilað
fyrr en eftir eitt ár I fyrsta lagi.
En ég er þess sannfærð, að þessi
aðferö á eftir að hjálpa mörgum
og leysa fjöldann allan af vanda-
málum, ef hún verður notuð á
réttan hátt.