Vikan


Vikan - 12.12.1974, Qupperneq 6

Vikan - 12.12.1974, Qupperneq 6
T borínn á og gert hvítleita, en .eld- hússkápar eru lakkaðir og hafa þvi annan lit. Við sþyrjum Þor- vald, hvers vegna fura hafi orðið fyrir valinu? — Furan er lifandi og skemmti- legur viður, og svo var hún það ó- dýrasta, sem völ var á, segir Þor- valdur. — Ég er litið fyrir harð- við, og flisar vil ég helst ekki nota, nema þar sem ekki verður hjá þvi komist, einSjOg i kringum baðker og vaska* Það finnst mörgum undarlegt að sjá viðar- klædd baðherbergi, en furan er einmitt mjög heppileg til slikra nota. Hún er opin og dregur i sig rakann, þegar loftið mettast gufu, en andar honum frá sér um leið og loftið þornar. Þess vegna kem- ur varla fyrir, að móða sjáist á spegli. Svo var mikill sparnaður að þessu, því ég gæti trúað, að kostnaðurinn viö klæðningu á baöherbergjunum hafi aðeins verið um helmingur þess, sem verið hefði, ef ég hefði fllsalagt. Aferðin á súlunum og útveggj- um er mjög gróf, likust hraun- pússningu. En þetta reynist vera sandmálning, sem framleidd var til utanhússnota, en Þorvaldur á- kvað að reyna innanhúss. Asbest- piöturnar í loftinu eru einníg málaðar með sandmálningu og lita þvi út eins og múrhúðaður steinn og samskeyti sjást ekki. Við spyrjum Steinunni, hvernig henni finnist að umgangast þessa grófu veggi? — Ég er ánægð með þá, segir hún. Það er auövitað erfiðara að hreinsa þá en slétta veggi, en ég renni yfir þá ryksugu öðru hverju. Af sléttu veggjunum er ég alltaf að þurrka bletti og fingra- för, en við þessa veggi kemur enginn nema einu sinni, og það sér miklu minna á þeim. Skilrúm eru eins og fyrr segir úr asbestplötum, sem festar eru á trégrindur, og þau ná hvergi al- veg upp i loft nema I svefnher- bergjunum. Þorvaldur segist m.a. hafa valið asbest vegna þess, að það brennur ekki, og vegna þyngdar hljóðeinangrar þaö vel. Skilrúmin eru þannig, að þeim má auðveldlega breyta og færa þau til, þegar þarfir fjöl- skyldunnar breytast. Einbýlishús, sem er 136 fer- metrar, þykir ekki sérlega stórt og þvi kemur manni á óvart i húsi Blómaskrúöið og Ijósleit, létt, húsgögnin gefa þessum enda stofunnar sumarlegan blæ, þótt vetur sé. Gluggatjöld eru ekki önnur en þau, sem sjást á mynd- inni, og eru þau höfð uppi, niðri eöa dregin til hálfs eftir birtunni. Gólfflöturinn I herbergi heima- sætunnar er ekki stór, en nýtist til fullnustu, þvi rúmiö er á palli upp undir lofti. Til liliöyr við það, meðfram hliðarveggj«ríi her- bergisins, eru pallar. sem ganga inn yfir skápana I svefnherbergi hjónanna og rúmið I herbergi Þorvaldar Bjarna. A þessum pöllum er notalegt að sitja og þar ér einnig hægt aö liýsa tvær vin- konur. 6 VIKAN 50. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.