Vikan


Vikan - 12.12.1974, Síða 7

Vikan - 12.12.1974, Síða 7
Eldhúsið er ekki stórt, en öllu þar mjög haganíega fyrir komið. Steinunn hafði ákveðnar skoðanir á þvi hvernig hún vildi hafa eld- húsið og skipti þvl i fjórar eining- ar eða fjögur horn: Þvottahorn, eidunarhorn, bökunárhorn og matarhorn. Hún segist ákaflega ánægð með innréttinguna og finnst leikur einn að vinna i eld- húsinu. Borðstofan er sannkölluo borð- stofa, þvi þar snæðir fjölskyldan alltaf, enda ekki gert ráö fyrir þvi að matast sé i eldhúsinu. Handan veggjarins er vinnukrókur Stein- unnar og þaöan er hægt að ganga út á svalirnar. Litla myndin er eftir Gunnlaug Scheving. Þorvaldar og Steinunnar, að á hæöinni skuli rúmast stofa, borð- stofa, vinnu- og bókaherbergi, vinnukrókur húsmóður, fremri forstofa, eins konar hol, þar sem hringstigi niður i kjallara kemur siðar, eldhús, tvö baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Og samt virðist nóg pláss fyrir allt, enda var húsið teiknað með tilliti til fjölskyldunnar og húsgagnanna, sem fylgt hafa henni frá þvi á námsárunum i Kaupmannahöfn. Húsgögnin I stofunni eru lág og mjög einföld og taka þvi litið pláss. — Húsgögnin standa meira að segja eins og ég teiknaði þau upp- haflega inn á teikninguna af hús- inu, segir Þorvaldur. — Við höf- um ekki keypt neitt nýtt, siðan við komum hingað, en nú stendur til að kaupa einn stól. — Ég er búin að sjá hann, bætir Steinunn við. — Fullorðnu fólki finnst erfitt að sitja i lágum stól- um, svo við ætlum að fá einn i venjulegri hæð. Húsið stendur i litilli brekku og úr stofunni sést út á sjó, yfir Á kvöldin situr fjölskyldan gjarn- an við arininn og þá logar glatt I spreki, sem heimafólk safnar sjálft og þurrkar I kjallaranum. Málverkið yfir bekknum er eftir Svein Björnsson. Elliðaárnar upp i Breiðholt og suður i Bláfjöll. Breiðholtsháhýs- in eru svolitill þyrnir i augum Steinunnar, en Þorvaldur segir, að þótt deila megi um fegurð há- hýsanna, finnist sér gaman að hafa þau þarna, einkum á kvöld- in, þegar þau eru upplýst. Hann vilji vita, að hann búi i borg. — Sæjust háhýsin ekki úr stofu- gluggunum mætti halda, að þau væruúti i sveit, svo rólegt og frið- sælt er i Hábænum. Þar heyrist stundum ekki annað en árniður og fuglasöngur, þvi i Blásteinshólma i Elliðaánum, rétt fyrir neðan, verpa flestir islenskir mófuglar. Þorvaldur fylgist vel með þeim, þvi hann hefur haft mikinn áhuga á fuglum og gróðri allt frá þvi hann var unglingur i mælinga- vinnu á Vestfjörðum með frænda sinum. Þá fór hann einnig að virða fyrir sér stjörnurnar og á nú stjörnukiki, sem stendur i borð- stofunni. Þvi miður vorum við ekki á ferðinni fyrr en i október, svo að gróðurinn i garðinum var farinn að fölna. Þótt ekki séu nema fjög- ur ár, siðan fjölskyldan flutti i nýja húsið, er lóðin orðin gróin og skemmtileg og mikið þar af trjám, blómum og matjurtum, enda er garðurinn aðal tóm- stundagaman Steinunnar á sumr- in. Hæstu trén i garðinum eru tré, sem tókst að bjarga úr sumarbú- staðarlandinu við austurmörk lóöarinnar, áður en skurðgröf- urnar ruddust þar inn til að grafa fyrir holræsi. Svæðið frá austur- nörkum lóðarinnar austur að Ar- bæjarskóla hefur staðið autt til skamms tima, en nú er að risa þar af grunni safnaðarheimili sóknarinnar, sem þeir félagar Þorvaldur og Manfreð hafa teikn- aö, svo Þorvaldur á ekki að þurfa að verða óánægður með útsýnið úr svefnherbergjunum, þegar fram liða stundir. 50. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.