Vikan - 30.01.1975, Qupperneq 8
YFIRVEGUÐ JARÐKONA?
FALAT
LOFTKONA?
> Flestar loftkonur eru fæddar i
tvlbura-, vogar- og vatnsbera-
merkjunum.
45-59 stig.Þú ert loftkona og sem
slik ertu fálát og fjarræn og
virbist taka öllu, sem fyrir
kemur, meö stökustu ró, hversu
hrædd og örvæntingarfull, sem þú
annars ert.
Þú ert fljót að ljúka öllu af, sem
þú tekur þér fyrir hendur og þér
finnst ákaflega hvimleitt, þegar
aörir hanga yfir verkum sinum og
miöar ekkert áfram. Fólk, sem
ekki þekkir þig vel, heldur, að"þú
sért kaldlynd, sivinnandi og hafir
ætiö stjórn á tilfinningum þlnum.
En þú veist best sjálf, að þú ert
mjög tilfinninganæm á bak við
skelina.
En þegar þú hefur ákveðið eitt-
hvað með sjálfri þér, ertu óstööv-
andi. Bæði vegna töfra þinna,
sem þú beitir þá óspart fyrir þig,
og einnig vegna þess, að þú leynir
þvi ekjd, að þú veist hvað þú viít.
Maðurinn, sem er best við þitt
hæfi, er smekkvis og hefur til að
bera auðuga og fjölbreytta kimni-
gáfu. Og hann verður að vera
öruggur með sjáfan sig.
Stundum verður þér það á að
draga rangar ályktanir, og með
aldrinum hættir þér til að vera
svolitið hvassyrt. Þá finnst þér
fólk yfirleitt barnalegt.
Rétti maðurinn fyrir þig metur
að verðleikum, hve sjálfstæð þú
ert og óháð öðrum, en sumum
karlmönnum mun þykja rtóg um
kröfurnar, sem þú gefir til
annarra.
Þú hefur mikið vald á skapgerð
þinni, ert greind og getur töfrað
næstum hvern sem þú kærir þig
um.
Flestar jarökonur eru fæddar I
steingeitar-, nauts-, og meyjar-
merkjunum.
20-29 stig. Þú ert jarðkonan,
róleg, alltaf i jafnvægi og jarð-
bundin. Flestir karlmenn laðast
einmitt að konum eins og þér,
vegna þess hve heiðarlegar,
raunsæjar og áreiðanlegar
jarðarkonurnar eru..
Þú getur i senn verið byltingar-
sinnuð og ihaldssöm, en þér
finnst það i hæsta mátá eðlilegt og
hefur engar áhyggjur af þvi. Þú
ert örugg um sjálfa þig og ert
einkar hjartahlý og elskuleg
kona.
Stundum ertu svolitið feimin,
og þér hættir til að vera ófram-
færin innan um fólk, sem þú
þekkir ekki mikið, en i vinahópi
hikarðu ekki við aö segja það,
sem þér finnst þegar þér finnst
við eiga.
Þér gest best að einföldum
hlutum og vilt ekki hafa
neinn iburð i kringum þig, þó að
þú viljir gjarna hafa það gott
efnalega. Þú laðast oftast að
mönnutn, sem eru gjafmildir og
heiöarlegir og leggur meira upp
úr þvi en að þeir séu einhver
gáfnaljós.
Þú ert semsé einkar aðlaðandi,
og enginn hefur nokkurn tima séð
eftir þvi að hafa kynnst þér. En
þar sem þú ert sjálf trygglynd og
heiðarleg, áttu erfitt með að þola
alls konar baktjaldamakk og
ótryggð.
Þú getur verið fljót til að þræta,
en þér leiðist að þrasa til léhgdar.
Ef eitthvað er komið inn i höfuðið
á þér á annað borð, er erfitt að fá
þig til að skipta um skoðun.
LEYNDARDÓMSFULL VATNSKONA?
Margar vatnskonur eru fæddar
i fiska-, krabba-, og sporðdreka-
merkjum.
30-44 stig. Þú ert vatnsKona og
sem slik ertu leyndardómsfull og
,,djúp”. Jafnvel náfiustu vinum
þlnum mun veitast erfitt að
kynnast þér til hlitar.
Þú ert innhverf og tilfinninga-
næm og fyrst og fremst ertu
rómantisk. í þessum heimi fer
ekkert jafnmikið i taugarnar á
þér og fals i hvaöa mynd sem er
og þú sýnir öllu, sem ekki er ekta,
megnustu fyrirlitningu.
Umhverfið hefur mikil áhrif á
þig og sérstaklega skapgerð þina
og andlega llðan. Þannig geturðu
ýmist svifið á hamingjuskýjum,
eða sökkt þér niður I svartsýnis-
óra. Þú ert bæði tilfinninganæm
og svolitil listámannssál og þú ert
auðsærð, vegna þess hve opin-
skátt þú tjáir stundum tilfinn-
ingar þinar.
Flestum karlmonnum gengur
svolltið erfiðlega að átta sig á þér,
en margir þeirra hrlfast einnig af
þvi, hve óútreiknanleg þú ert. Þú
ejd ein þeirra, sem gefur vinum
þlríum mikið, en þú getur lika
krafist mikils og fengiö það, ef þú
vilt sjálf.
Þú hefur aldrei látið mikið að
pér kveða i samkvæmisllfinu, en
pó getur enginn gengið framhjá
þér. Þig mun aldrei skorta vini.
8 VIKAN 5. TBL.