Vikan

Tölublað

Vikan - 30.01.1975, Blaðsíða 17

Vikan - 30.01.1975, Blaðsíða 17
Scott Fitzgerald — Er allt meö kyrrum kjörum? spuröi hann kviöinn. — Já, allt er meö kyrrum kjör- um. Ég hikaöi. — Þú ættir aö koma þér heim og fara aö sofa. Hann hristi höfuöiö. — Ég biö hér þar til Daisy fer aö hátta. Gööa nótt, laxi. Hann stakk höndunum i jakka- vasana og sneri sér viö, til að hafa áfram auga meö húsinu, likt og honum þætti nærvera min ekki samboöin helgi varöstööu sinnar. Þvi sneri ég burtu og lét hann ein- an eftir i tunglsskininu, — þar sem hann stóö og vakti yfir engu. VIII. KAFLI Mér kom ekki dúr á auga alla nóttina. Þokulúður beljaöi án af- láts úti á sundinu og i hálfgeröu hitamóki fann ég mig sveiflast á milli hins hryllilegasta raunveru- leika og afkáralegra draumsýna. Fyrir dögun heyröi ég leigubil ek- iö heim að húsi Gatsby og ég stökk samstundis fram úr rúminu og hóf aö klæöast, — mér þótti ég veröa aö segja honum eitthvað, sem yröi um seinan, biði ég fram á morguninn. A leiö yfir flötina sá ég aö úti- dyr hans voru énn opnar og kom auga á hann, þar sem hann hall- aöi sér fram á borö i anddyringu, bugaöur af vonbrigöum eða svefnleysi. — Ekkert skeöi, sagði hann tómlega. — Ég beiö þar til klukk- an fjögur. Þá kom hún út aö glugganum, stóö þar um stund og slökkti svo ljósið. Mér haföi aldrei virzt hús hans svo stórt sem þessa nótt, þegar við ráfuöum á milli þessara stóru herbergja i leit aö sigarettum. Viö drógum til geysistór fortjöld, likt og I leikhúsi, og fálmuðum um viöáttumikla veggfleti eftir ljós- rofum, — einu sinni hrasaði ég fram á nótnaborö á stórum flygli, sem glumdi draugalega i myrkr- inu. Ódæmamagn af ryki þakti alla hluti og loftiö var svo þungt, aö ætla mátti aö ekki heföi veriö lokiö upp glugga dögum saman. A boröi, sem ég haföi aldrei veitt at- hygli fyrr, rakst ég á öskju meö tveim uppþornuöum sigare'ttum i. Ég lauk franska glugganum i setustofunni upp á gátt og viö sát- um reykjandi i myrkrinu. ■ — Þú ættir að forða þér, sagöi ég. — Þaö leikur e. nginn vafi á aö þeir munu hafa upp á bilnum þinum. • — Foröa mér, laxi, — núna? — Farðu til ATLANTIC City I eina viku, — eöa upp til Montreal. En hann vildi ekki hlusta á þetta. Honum var ómögulegt aö yfirgefa Daisy, áöur en hann vissi hvaö hún hyggðist fyrir. Hann righélt nú I siðustu von sina og ég haföi ekki brjóst i mér til að svifta hann henni. Það var þessa nótt, sem hann sagöi mér hina undarlegu sögu um æskuár sin með Dan Cody, — hann sagöi mér hana af því aö nii haföi ,,Jay Gatsby,” steytt á ill-' vigum skrápi Tom Buchanan og brotnað mjölinu smærra. Þar meö var og eymdarhjúpnum svift af æviferli hans. Ég geri ráð fyrir aö á þessari stundu heföi hann sagt mér hvað sem var af sjálfum sér, umbúöalaust, en honum var kærast að tala um Daisy. Hún var fyrsta „fina” stúlkan, sem hann haföi kynnzt. Viö ein og önnur tækifæri, sem hann geröi mér ekki nánari grein fyrir, haföi hann aö visu umgengizt þá tegund fólks, en á milli hans og þess haföi ætiö veriö staöfest ósýnilegt djúp. Honum þótti hún afskaplega aö- laöandi. Hann kom á heimili hennar, I fyrstu meö liösforingj- um frá herbúöunum, en seinna einsamall. Hann var furöu lost- inn, — aldrei haföi hann komið inn I svo fögur hibýli áöur. En þaö sem fyllti þau svo einstæöu mikil- vægi var aö þaö var hér sem Daisy bjó, — þótt I augum hennar sjálfrar væri þaö jafn eölilegt atriöi og tjaldiö úti i herbúöunum var honum. Honum fannst þetta heimili svo fullt dulúöar, — mann hlaut aö gruna aö svefnherbergin þar væru fegurri og svalari en önnur svefnherbergi og aö dæma- laust skemmtilegir atburöir ættu sér staö á göngum þess: hér lágu ástarævmtýrin i loftinu, ekki þó gömul og lyktandi af reyrgresi, til aö taka af þeim myglulyktina, heldur fersk og ilmandi af gljá- brenndum bilum af nýjustu ár- gerö, af dansi og blómum, sem enn voru varla tekin aö fölna. Honum fannst einnig ekki litiö til um þá vissu aö fjöldi manna haföi orðiö ástfanginn af Daisy, — og þaö jók gildi hennar I augum hans. 1 þessu húsi þótti honum 131NNI & PINNI 5.TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.