Vikan - 30.01.1975, Blaðsíða 44
ÞESS VEGNA
GIFTUST ÞAU
Þau hafa ekkertá móti pvl ao lata
taka af sér myndir nýgiftu hjónin,
enda er það lika atvinna hrúOar-
innar. En undanfarið hefur hún
haft lftið að gera og þvi koma
Gettypeningarnir sér vel. Konan
er langt gengin með barni, þótt
það sjáist ekki á þessari mynd,
og varla fær hún mikið að gera
hjá ljósmyndurum, þegar hún fer
að þykkna aö marki undir belti.
Fátæk þýsk fyrirsæta varð
rik Gettyfrú.
Borgardómarinn varð að spyrja
brúðgumann þrisvar, áður en
hann sagði já. Svo kyssti hann
brúðina, og að fimmtán minútum
liðnum var allt búið og gert.
Engin fagnaðaróp, engin
fallbyssuskot, engin flugelda-
sýning. Paul Getty III, átján ára
og Martina Zacher, tuttugu og
fimm ára, voru gefin saman án
nokkurrar viðhafnar i ráðhúsinu i
itölsku borginni Sovicille. Og eng-
inn þurfti lengur að búast viö
ævintýrabrúðkaupi. Sonarsonur
rikasta manns heims gekk að
eiga fátæka þýska fyrirsætu, sem
alltaf hafði verið honum trygg og
trú, lika, þegar öll von virtist vera
úti um, að hann væri á lífi.
Martina kvað lika niður orða-
sveiminn, sem komst á kreik eftir
að Paul Getty III var rænt i fyrra.
Þá sögðu illar tungur, að Paul
hefði sett ránið á svið til þess að
fá féð i eigin vasa. „Slikt myndi
Paul aldrei gera,” sagði Martina,
og i ljós kom, að hún hafði á réttu
að standa, þegar ræningjar hans
skáru af honum annað eyrað og
sendu fjölskyldu hans. Eftir þá
sendingu greiddi Getty I 308 mill-
jónir króna i lausnargjald eins og
sett var upp, og Martina fékk aft-
ur að faðma Paul Getty III að sér.
Og nú eru þau gift. Paul Getty III
verður bráðum pabbi, þvi að
Martina er komin rúma fimm
mánuöi á leið. En þau giftu sig
ekki þess vegna. Á það leggja
þau bæði áherslu. Þvi þá? Af ást?
Kannski. En sVo mikið er vist, að
þau eru einhuga um að ná i sinn
skerf af milljónunum hans Pauls
Gettys I. Gamli maöurinn hefur
nefnilega komið á sjóði handa
hverju sinna fjórtán barna
barna, og yfir þessum sjóöi fá þau
yfirráð, þegar þau staðfesta ráð
sitt. 1 hlut Pauls og Martinu koma
90 milljónir króna, og i vexti af
þeim fá þau i kringum 360 þúsund
krónur á mánuði. Þess vegna
giftu þau sig. Ekki var þetta
ævintýrabrúðkaup. Eða eru nú-
tima ævintýri svona?
44 VIKAN 5. TBL.