Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.01.1975, Side 28

Vikan - 30.01.1975, Side 28
 -'TTipr AAissið ekki fótanna Dynjandi sf; Skeifunni 3H • Keyk.javik Simar 8-26-70 & 8-26-71 JALLATTE S.A. q Stáltáhetta 0 Svamptápúði 0 Ytri sóli B fr fr Sterkur blindsóli llstoö labeur Svamppúði Fóöur Yfirleður Hælkappi Jallatte öryggisskórnir I>ttir og liprir. Leöriö sérstaklega vatnsvariö. Stálhetta yfir tá. Sólinn soöinn án sauma. Þolir hita og frost. Stamur á is og oliublautum gólfum Hagstætt verö — Sendum um allt land. SOFTAIIE Þol r 25 þúsund Wo ta spennu Nýjor gerðir allegra Þegar hér er komiö sögu, eru bandarisku áhorfendurnir komn- ir i ham. Þegar hetjan Paul kálar einum glæpamanni til viöbótar, hrópar allur salurinn af fögnuði. Og enn hitnar i kolunum, þegar lögreglan kemst á slóð þessa nýja morðingja, sem ógnar glæpa- mönnum. Þeir elta hann lengi vel, en láta hann sleppa á endanum. Kannski það merkilegasta við myndina sé, að siðan fariö var aö sýna hana, hefur nauðgunum i New York fækkað um helming. Þessi mynd er mesti sigur Bronsons til þessa. Hann er sonur litháísks innflytjanda að nafni Buschinski og hóf leikferil sinn fyrir rúmum tuttugu árum, en fann lengi ekki náð fyrir augum bandariskra áhorfenda. A hinn bóginn varö hann mjög vinsæll i Evrópu. Hann lét fyrst verulega að sér kveöa i itölsku-vesturs myndunum hans Sergios Leones, og evrópskum áhorfendum gast mun betur að þessum harðjaxli en töfrum Alains Delons og Jeans-Pauls Belmondos. Og siðan Bronson fór að sjá svona rautt,-eru bandarikja- menn fullir áhuga á þessum leikara sinum, sem á unga aldri sat nokkrum sinnum i fangelsi fyrir þjófnaði. Blöðin keppast um að geta sér þess til, hvort hann fái hærri laun en Gatsbyhetjan Ro- bert Redford. Umboðsmaður hans hefur lýst þvi yfir, að Bron- son fái eina milljón dollara fyrir aö leika i kvikmynd, sem tekur i kringum sex vikur að taka. Dá- lagleg hljóta daglaunin að vera. Og af þessum tekjum hefur Bron- son tekist að koma sér og fjöl- skyldu sinni ágætlega fyrir i 36 herbergja húsi i Bel Air i Kali- forniu, á búgaröi i Windsor, og i frium dvelst fjölskyldan stundum i húsi sinu i Banyuls-sur-Mer i Frakklandi. 1 bilskúrunum slnum á Bronson eitthvað yfir þrjátiu vélhjól, og þegar hann þarf að dveljast á hótelum vegna kvik- myndatöku, lætur hann sér ekki nægja að leigja eina ibúð, heldur heila hæð, þvi aö Bronsonfjöl- skyldan vill hafa rúmt um sig. Bronson er tvikvæntur, og nú- verandi kona hans er breska leik- konan Jill Ireland, og á heimilinu eru sex börn, tvö frá fyrra hjóna- bandi hans og þrjú frá fyrra hjónabandi hennar auk dótturinn- ar Zuleiku. sem þau eiga saman. Og Bronson sér dável fyrir heimilinu með þvi að leika i harð- neskjulegum kvikmyndum, sem krefjast ekki neinna leikhæfi- leika, enda hefur hann engan metnaö sem leikari: ,,Ég er bara framleiðsluvara, rétt eins og sápustykki, og verð að vera eins góður og mögulegt er,” segir hann og i þessum orðum er tölu- veröur sannleikur fólginn. Hann gefur blaöamönnum sjaldan færi á sér, en þá sjaldan þeir ná tali af honum, skýtur hann þeim yfirleitt skelk i bringu með snöru augna- ráðinu og hnitmiðuöum setning- um, sem fæla þá frá frekari áleitni: ,,Ég á enga vini og þarf enga vini að eiga, börnin eru min- ir vinir.” Sé einhver svo áræðinn að spyrja hann, hvers vegna allir séu hálfhræddir viö hann, svarar 28 VIKAN 5. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.