Vikan - 06.11.1975, Blaðsíða 38
_KC
MRS
Eins og lescndur rekur kannski
minni til, hugðist Vikan efna til
kosningar Konu ársins í tilefni
kvennaárs og fór þess á leit við les-
endur, að þeir gerðu tillögur um þær
konur, sem þeim þætti best við hæfi
að sæma þeim titli. • Við á ritstjórn-
inni bjuggumst við mikilli þátttöku
lesenda og miklum áhuga þeirra á
þessari kosningu, en reyndin varð
allt önnur, lesendur reyndust semsé
hafa afar lítinn áhuga á málinu, og
okkur bárust ekki nema átta tillögur
um Konu ársins. Einn lesandi lagði
til, að Anna Sigurðardóttir, forstöðu-
maður kvennasögusafnsins yrði fyrir
valinu, annar vildi kjósa Líneyju
Kristinsdóttur forstöðukonu dvalar-
heimilisins Áss í Hveragerði, einn
Þorbjörgu Guðnadóttur talsíma-
konu, húsmóður og nema I Keflavík
— þeirri tillögu fylgdi löng greinar-
gerð um ástæður fyrir uppástung-
unni, og voru röksemdirnar haldgóð-
ar — hið sama er að segja um
uppástungu Sigurgeirs Þorvaldssonar
I Keflavík, sem lagði til, að eiginkona
hans Jóhanna Guðrún Finnsdóttir
yrði kosin Kona ársins. Sigurgeir seg-
ir meðal annars: „Engin kona er jafn
heiðarleg og hún, og hreinlyndari
kona er vandfundin. Aldrei hefur
hún vísvitandi sagt ósatt, og sam-
viskusemin er einn af hennar höfuð-
kostum. Hún má ekki vamm sitt
vita I neinu...hún kýs heldur að
fórna kröftum sínum fyrir heill og
38 VIKAN 45. TBL.