Vikan - 11.12.1975, Blaðsíða 7
verið samið í dag hefði heiti þess
líklega fremur orðið Dóná svo grá
en Dóná svo blá. Hið virðulega,
lygna fljót hefur óneitanlega gránað
meðárunum. Við finnum á þefnum,
að hún er ekki eins hrein og fyrr.
Engu að síður er hún ennþá aðal-
samgönguæð þeirra landa, sem að
henni liggja. Hver veit, kannski
verður hún aftur orðin blá og tær
fyrir 200 ára afmæli Strauss!
Því verðúr ekki neitað, að Strauss var
aðdáandi kvenlegrar fegurðar. Hann
tilbað Henriettu, sína fyrstu stóru
ást. Það leið þó aðeins einn mánuður
frá andláti hennar í apríl 1868 þar
til hann hafði látið huggast af
Angeliku, fyrrverandi hjúkrunar-
konu. Með henni bjó hann í storma-
samri sambúð í 4 ár. Eftir kvikmynd-
um sem gerðar hafa verið um líf
hans að dæma, komu konurnar og
hurfu eins og dögg fyrir sólu í lífi
hans. Það er gefið mál að höfundur
lagsins ,,Konur, vln, 'og söngur”
hlýtur að hafa byggt á einhverri
reynslu.
Árið 1872 var Strauss boðið til
Bandaríkjanna, en það var með
naumindum að hann komst af stað.
STRAUSS
fjSskyldan
Margir eiga erfitt með að
skilgreina Straussana vegna
þess hve þeir eru margir.
ífóhann Strauss yngri, sem
grein þessi er rituð um, til-
heyrði þessari fjölskyldu:
Jóhann Strauss eldri 1804 —
1849
Jóhann Strauss yngri 1825
- 1899
Jósep 1827 — 1870 og
Eduard 1835 — 1916 eru
yngri bræður Jóhanns.
Jóhann Strauss 1866 — 1939
var sonur Eduards. Allir
voru þeir tónskáld og hljóm-
sveitarstjórar starfandi í
Austurríki.
Þáverandi ástmær hans, Adele, harð-
neitaði að yfirgefa sína heittelskuðu
ættjörð, og Strauss mátti ekki til
þess hugsa að ferðast einn. En í
ferðina fóru þau og unnu hjörtu
allra. Strauss ferðaðist stöðugt í
5 vikur, hann hélt yfir 40 tónleika,
stjórnaði.allt að 1000 manna hljóm-
sveitum, og alls staðar voru móttök-
urnar stórkostlegar. Hann sneri
heim sem hinn mikli konungur
valsanna. Hann hafði lagt Evrópu
Rússland og Bandaríkin að fótum sér
með tónlist sinni. Sjálfur lærði
hann aldrei að dansa og datt aldrei
í hug að reyna það. En milljónir
manna um allan heim dansa enn
eftir tónlist hans, og óperettur
hans eru sýndar fyrir fullum húsum
um víða veröld.
Um sextugt þjáðist Strauss af tauga-
veiklun og var ráðlagt að hætta
tónsmíðum, en hann lét það sem
vind um eyru þjóta. Áður hafði
hann skrifað nótur á veitingahúsa-
reikninga og peningaseðla, nú fór
hann að skrifa á ermallningarnar til
að enginn gæti staðið hann að verki.
Meiri hluta Sígaunabarónsins skrifaði
hann á þennan hátt. En Strauss
átti I persónulegum erfiðleikum.
Hann setti markmiðið hærra og hærra
eftir því sem aldurinn færðist yfir
hann. Hann dreymdi um að semja
óperu og fékk ósk sína uppfyllta,
þegar ópera hans Pazmann riddari
var frumsýnd árið 1892. Öperan
stóðst ekki hina ströngu gagnrýni
tónlistarborgarinnar og féll síðar I
gleymsku. Strauss þakkaði Vínar-
borg velgengni sína. ,,Án Vxnar-
borgar væri ég ekkert,” hrópaði
hann til mannfjöldans, sem hyllti
hann á 50 ára starfsafmæli hans 1894.
Og öll hans ferðalög e.nduðu I
Vínarborg, og þar andaðist hann
1899- Hann var orðinn þjóðsagna-
persóna I lifanda lífi. Og nú hafa
Vínarbúar tileinkað honum heilt
sumar. Hans sérstæða andlitsmynd’
með fránum augum og ræktarlegu
snúnu yfirskeggi undir velktum
barðahatti, mátti sjá allt sumarið um
gjörvalla Vínarborg. Og 1 ráðhúsinu
gaf að líta hljóðfæri, frumnótur,
skissur, teikningar og myndir hinnar
frægu fjölskyldu, sem fékk heiminn
til að dansa og syngja.
*
Straufríu rúmfötin úr 100% bómull
— einlit og munstruð