Vikan

Issue

Vikan - 11.12.1975, Page 24

Vikan - 11.12.1975, Page 24
Það cr víst ckki til sá íslendingur kominn til vits og ára, sem ekki hefur heyrt Ragnar Bjafnason syngja einhvern tíma á ævinni. Ragnar heldur upp á 25 ára starfs- afmæli sitt um þessar mundir, þótt ótrúlegt sé, því maðurinn er aðeins liðlega fertugur, en hefur samt skemmt tveim kynslóðum íslcndinga mcð hljómlist og söng. Skýringin er auðvitað sú, að Ragnar byrjaði ,,að raula þetta,” eins og hann sjálfur kemst að orði, aðeins sextán ára gamall og sýnir engin þreytumerki ennþá, þótt sam- keppnin sé hörð og streitan mikil í skemmtanaiðnaðinum. Við könnumst flest við hinn strokna heimsmann með stríðnis- glampa í augum, sem við sjáum í sviðsljósinu, cn forvitnilegra 'þótti mér þó að fá að hitta Ragnar, þegar hann skiptir um svið og verður fjölskyldufaðirinn og breið- holtsbúinn Ragnar Bjarnason. F.n af því að Ragnar er afskap- lega hæverskur maður og lítillátur, stcingleýhidi hann auðvitað, að liann var búinn að lofa mér við- tali. og það var ckki fyrr en ég var búin að ítreka erindi mitt, að mér tókst að króa hann af einn gráan og þunglyndislegan þriðjudag uppi á Hótel Sögu. Og þegar hann var búinn að slá úr pípunni sinni og hreinsa hana vandlega, var hann loksins tilbúinn að svara spurning- um mínum. — Ragnar, þótt margir viti, að þú ert kominn af hljómlistarfólki og músíkin þér í blóð borin, þá held ég að unga fólkið í dag viti það ekki. Viltu ekki segja okkur citthvað um ætt þína og uppruna og svo hvenær þinn tónlistaráhugi vaknaði? — Nú þetta byrjaði bara, þegar cg fór að hafa vit, mínar fyrstu minningar eru tengdar músík. Það var alltaf músík heima alla daga. Faðir minn Bjarni Böðvarsson var hljómlistarmaður og stjórnaði eigin hljómsveit, og vegna þess að þeir voru alltaf á hrakhólum með æfing- arhúsnæði var yfirleitt æft í stofunni hcima, og ég strákurinn drakk þetta í mig svona smásaman með móð- urmjólkinni. — Eg ólst upp í hjarta Reykja- víkur, í Lækjargötu 10 B. Séra Bjarni var okkar næsti nágranni. Húsið brann síðar, og nú er þárna bílastæði. Sem dæmi um þenslu borgarinnar má geta þess, að fjölskyldan fluttist búferlum á vorin út á Seltjarnarnes, en þar áttum við sumarbústað. — Faðir rplnn, sem fyrst og 'fremst stuðlaði að mínum tónlist- aráhuga var einn af stofnendum F.I.H. Félags íslenskra hljómlistar- manna. Á árunum fyrir stríð höfðu útlcndingar einokun á dansmúsík I borginni, stórar erlendar hljóm- sveitir voru fengnar hingað til að spila, og íslenskir hljómlistarmenn áttu erfitt uppdráttar. Það var ekki fyrr en þeir fengu stéttarfélagið til að styðja við bakið á sér að eitthvað fór að ganga og íslenskar dans- hljómsveitir voru stofnaðar. — Ragnar, ég held að það sé með þig eins og halastjörnurnar, þær eru þarna löngu áður en þær eru uppgötvaðar. Hvenær byrjaðir þú að syngja? ■ — Ég hef líkast til verið 16 ára 'gamall, þcgar ég fékk að syngja opinberlega í fyrsta skipti, og það varl Ríkisútvarpið ásamt hljómsveit föður mrns. Þar söng ég tvö lög, annað hct ,,l Barcelona” hitt var dúett, sem ég söng ásamt Sigurði Ólafssyni. — Þá hafði ég ferðast um landið sem miðasali með hljómsveitinni og var búinn að fá þetta í blóðið. Hins vegar kom ég fyrst fram opinberlega á sviði, þegar ég var 18 ára gamall, og það var norður á Akureyri. Ég hafði ráðið mig í hljómsveit til Akureyrar ásamt tvcim vinum mínum, þeim Jóhanni Gunnari og Sigurði Þ. Guðmunds- syni. Þá stóð fyrir dyrum árshátíð K.E.A., og það vantaði söngvara. Þá var spurningin um það, hver okkar væri skástur, og ég kom nú helst til greina, og þá byrjaði ég eiginlega að syngja fyrir alvöru og var að raula þennan vetur norður á Akureyri. Síðan fór ég suður til Reykjavíkur og byrjaði að syngja með Svavari Gests, sem þá spilaði I Breiðfirðingabúð. Við spiluðum líka „mjólkurhristingsmúsík” fyrir unglingana uppi I Lido, sem þá var rekið af Æskulýðsráði. — Á þessum árum lék KK sex- tettinn undirstjórn Kristjáns Kristj- ássonar I klúbb suður á Kcfla- víkurflugvelli, og einu sinni 1 viku var upptaka fyrir bandarísku út- Þetta var óeðlilegra og þvingaðra Ég hlusta mikið ájazz. áður fyrr. Bjuggum i ferðatöskum í tæp tvö ár '

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.