Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 40
rúm á brekkubrún.
•Kæri draumráðandi!
Síðastliðna nótt dreymdi mig, að ég væri
aö ganga upp brattan veg í dalnum, þar
sem ég fæddist. Á eftir mér gekk kærustu-
par, og mér fannst, að ég yrði að verða á
undan þeim upp á brúnina, sem ég gerði
líka, því þau gengu hægt og rólega, en ég
flýtti mér ekkert heldur. Þegar ég kom upp
á brúnina, þá sá ég frekar lítið rúm, þó ekki
barnarúm, sem ég þurfti að búa um. Ég
setti appelsínugult lak í rúmið og einn
kodda. Þá hugsaöi ég, að það væri asnalegt
að hafa bara einn kodda, svo ég bætti
öðrum við. Koddarnir voru báðir stórir.
Fyrir nokkru dreymdi mig annan draum,
sem var á þessa leið:
Ég og önnur stelpa vorum á bíói. Myndin
var rétt að byrja, en þá segir stelpan við
mig: Þetta er ógeðsleg mynd, við skulum
fara. Við fórum, og hún gekk með mér heim
að dyrum. Þegar ég kom inn, þá sá ég, að
eitt herbergið var fullt af fólki, þar á meðal
maður, sem ég kallaði alltaf Þórð, en hann
vildi ekki heita Þórður, og ekki vildi hann
heldur segja mér, hvað hann héti. Þá kom
inn maður, sem sagði, að þetta fólk væri
fjölskyldan, þ.e. foreldrar og systkini, og
bað mig að koma út að labba. Þegar við
vorum komin frá húsinu, þá spurði ég, hvað
pabbi hans héti (og meinti Þórð), og þá
sagði hann, að hann héti A.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna,
M. J.
ÖH helstu tákn í báðum þessum draum-
um, svo og nöfnin, sem þú gast um í
eftirmála, boða þér gott eitt, hamingju,
heppilegt fyrirtæki, einlæga vináttu, hagn-
að og auðæfi, svo aö framtíðin virðist /iggja
fyrir þér skínandi björt og fögur, en þó er
þarna til þín viðvörun um, að þú megir ekki
vonasteftir þessu öHu án minnstu fyrirhafnar
af þinni hálfu.
ÓHREININDI OG ÞVOTTUR.
Mig dreymdi þetta 29. ágúst 1976.
Ég var staddur í skóla og sótti tíma við og
við, en kom yfirleitt of seint. Þarna var
maður (X) sem er kennari minn í rauninni,
og í draumnum var hann bæði kennari
mínn og verkstjóri við líkamlega vinnu.
i því tilviki, sem ég minnist úr draumnum,
var ég fyrir utan skólahúsið og var að
sprauta úr vatnsslöngu, en vatnið var kalt.
Þá kemur X og segir, að nú þurfum við að
þvo verkfærin, af því það sé að koma
jjorrablót. Hann fer síðan og nær í slöngu,
sem úr rennur heitt vatn. Hann hafði síðan
sjálfur skóflu í hönd við þvottinn og mokaði
möl á það sem átti að þvo til að óhreinindin
færu auðveldar af. Einhvern veginn fannst
mér, að þriðji aðili væri þarna staddur og
ætti að sjá um að halda á slöngunni, en
hlutverk mitt var aö nota strákúst til að
nudda óhreinindin af. Eitthvaö var þriðji
aðilinn laus við verkið, því áður en ég vissi
af var ég farinn að sprauta vatninu, en X rak
mig alltaf jafnharðan til að skrúbba. Ekki
kom fram, hvernig á því stóð, en ég var líka
í því að moka mölinni, en þá reyndi ég að
finna sand vegna þess að auðveldara var að
moka honum.
Við kláruðum þvottinn, en þá átti ég
þegar að vera kominn í tíma. X talaði aftur
um þorrablótiö, hvað þar væri gaman
o.s.frv. Þegar við vorum þúnir að ganga
frá, sá ég, að ég var orðinn alltof seinn, 25
mín. voru búnar af tímanum. Þegar ég kom
inn í kennslustofuna var verið að vinna
hópvinnu, og var ég strax settur í hóp sem
fjórði maður. Verkefni okkar man ég ekki,
en það var eitthvað um samband barna og
fullorðinna. Af því ræð ég, að það hafi verið
uppeldisfræðitími.
Ekki vissum við, hvernig skyldi leysa
verkefnið, en einhver, sem var í öðrum
hópi, gaf okkur svar, sem okkur fannst
gott, og skiluðum við því.
Síðan vaknaði ég.
Einhver meiri háttar misskilningur kemur
upp á mil/i ykkar X, sem erfitt ætlar að
reynast að uppræta. Það tekst að /okum.
og farnast ve/ í öðru landi. Margir te/ja þó,
að drukknun I sjó sé aðvörun, dreymandinn
sé á hálum fs og kunni að fara illa fyrir
honum, ef hann gætir sín ekki. Þú segir svo
óljóst frá þessum draumi, að ég treysti mér
ekki ti/ að hafa ráðninguna skýrari.
SVAfí TIL „NÆTURGALANS"
Draumráðanda er reyndar meinilla við aö
birta einungis ráðningar, en ekki draumana
sjátfa, því öðrum /esendum en þeim, sem
svarið beinist til, er ekkert gagn né ánægja
að slfku. / þessu tilfelli geri ég þó
undantekningu, en bið um /eið /esendur að
forðast slíkt. Yfirleitt má hæglega gera
drauma þannig úr garði, að engum geri til,
þótt þeir birtist, efaðeins nöfnum er sleppt.
þó verður draumráðandi sjálfur að fá að vita
nöfnin, þau geta skip máti við ráðningu.
Fyrri draumur þinn er aðeins fyrir öllu
góðu. Parið, sem mest kemur við sögu í
þeim draumi, á hamingjuríka sambúð í
vændum. Seinni draumurinn er ekki ber-
dreymi. Dreymi mann, að hann sé að
drukkna er það heillatákn, og drukknun í
vatni er fyrir ágóða. Stundum er drukknun
ta/in fyrirþví, að dreymandi fer af fandi þurt
Fyrir stuttu dreymdi mig draum, sem mig
langar að fá ráðningu á.
Mér fannst ég vera á ákaflega stórri flöt.
Hún var ákaflega fallega grasgræn. Það var
mjög fallegt veður, heiðskír himinn og sól
og gola. Mér fannst ég vera þarna ásamt
börnum á að giska tíu ára. Sjálf er ég 21 árs.
Við vorum með fljúgandi flugdreka alla vega
lita.
Ég var svo heilluð af allri þessari fegurð,
sem í kringum mig var, að ég fór að kanna
umhverfið. Þá kom ég á brún á stórum
kringlóttum dal eða laut. Þar voru 5 stór
hús eins og tveggja til þriggja hæða blokkir,
alveg skjannahvítar og fallegar. Það var
alveg sérstök smíði á þeim. í kringum öll
húsin voru tré, runnar, blóm og grænt gras.
Svo fannst mér ég vera komin inn ( eitt
húsið. Þetta var þá musteri með moldar-
gólfi, og á veggjunum voru málverk af Jesú
og Maríu mey. Mjög fallegar myndir. Þetta
var stór salur. Fyrir miöjum salnum var stórt
kringlótt búr ca 4 fermetrar að stærð. Inni I
búrinu var beinagrind af könguló, sem fyllti
nær út í búrið, svo stór var hún. Hún gekk
hring eftir hring í búrinu. Fyrir framan búrið
stóð beinagrind af manni í dökkri skikkju.
Beinagrindin hreyfði handleggina upp og
niður og hneigði höfuðið í takt við
handleggina. Það var eins og hún væri að
blessa fólkið (það var þarna fleira fólk, en
ég þekkti það ekki). Fyrir aftan beinagrind-
ina var tjald, og mér fannst eins og þar væri
mótor, sem héldi beinagrindinni og köngul-
lónni gangandi. Það var altari fyrir framan
beinagrindina, svipað og I kirkjum.
Við þetta vaknaði ég og var alveg heilluð
af því, sem ég sá I draumnum. Ég vonast
eftir birtingu sem allra fyrst. Með fyrirfram
þakklæti. Birna.
Sé nokkurt mark að draumum, fer ekki
hjá þvf, að þessi þorðar þér mikla hamingju.
Ég ræð hann þannig, að þú kynnist ungum
manni, sem verður ákaflega hrifinn af þér,
og í tengslum við þennan unga mann
vænkast hagur þinn á allan máta. Þú
hækkar í stööu, þú kynnist nýju fólki, þú
eignast nýtt heimiH. Og áður en langt um
fíður hringja brúökaupsklukkurnarfyrirþig.
MI6 BREYMBl
40 VIKAN 42.TBL.