Vikan - 02.12.1976, Blaðsíða 13
unnlacigs
Ingimundar
af því að vera hér, og nú þori ég að
gera ýmislegt, sem ég hélt áður að
ég gœti ekki.’ Og hann horfði með
stolti á rækjukokkteilinn, sem svo
sannarlega hafði tilætluð áhrif á
munnvatnskirtlana.
Matseðillinn þetta kvöld var
skrifaður á töfluna og var að
sjálfsögðu sérlega íburðarmikill í
tilefni síðasta kvöldsins. Hann
hljóðaði svo:
Rækjukokkteill
Buff stroganoff
Karrikjúklingur
Ostabakki
Mokkafromage.
Ingimundur þótti sjálfkjörinn til að
kreista sítrónur og sprauta rjóma.
Félagar hans töldu, að það mundi
skylt daglegu starfi hans á skatt-
stofunni!
Og einn þeirra sagði mér í miklum
trúnaði, að hann efaðist stórlega
um, að hann hefði getað einbeitt sér
að náminu, hefði hann verið um-
kringdur kvenfólki, það hefði svo
truflandi áhrif á sig! Og svona til
enn frekari áherslu bað hann mig
blessaða að tala heldur við manninn
með rækjurnar, meðan hann væri
að leggja síðustu hönd á salatið.
Maðurinn með rækjurnar reynd-
ist heita Sigurður Kristjánsson og
vera yfirkennari við Iðnskólann.
Hann lét mig ekki trufla sig hið
minnsta og hélt hinn rólegasti
áfram að ausa listilega gerðri
kokkteilsósunni (ég er enn að naga
mig í handarbökin fyrir að hafa ekki
fengið hjá honum uppskriftina) yfir
rækjurnar og skreyta með salat-
blöðum, sitrónusneiðum, tómatbát-
um og kaviar.
Sigurður er greinilega enn yngri í
anda en á velli, og þátttaka hans í
þessu námskeiði sýnir, að það
er aldrei of seint að læra að verða
sjálfbjarga í eldhúsinu. ,,Ég stend
nú einmitt í þeim sporum núna að
þurfa að sjá um mig sjálfur”, sagði
Sigurður og brosti ljúfmannlega.
,,Ég hef haft bæði gagn og gaman
Sigurður Kristjánsson yfirkennari i
Iðnskólanum eys sósunni góðu yfir
rækjurnar.
,,...hann komst að, að kvennaskóla-
pía, um kvennalistir alla hluti veit”.
Stella áminnir Gunnlaug um að
gæta að botninum.
imM■
Tómas Waage veggfóðrarameistari
beitti lipurlegum handtökum við
tilreiðslu salatsins, enda með 9
mánaða reynslu sem kokkur til sjós.
Eftir námskeiðið i Húsmæðraskól-
anum á Kolbeinn Gíslason jafn
auðvelt með að útbúa glæsilegan
ostabakka og að leysa tæknifræði-
leg spursmál.
Ábyrgðarmaður buffsins reyndist
einn af þekktari lögfræðingum
þessa lands, Gunnlaugur Þórðar-
son. Hann stóð við eldavélina og
hrærði allt hvað af tók í pottunum,
en lét sig ekki muna um það að láta
nokkrar sögur fjúka í leiðinni.
Þegar frásagnargleðin bar hann
ofurliði, var Steinblómið (gælunafn
Gunnlaugs á Stellu) óðara komið á
vettvang: „Passaðu botninn Gunn-
laugur!” og „Hver á að sjá um
buffið Gunnlaugur?!”
„Mesta geðstillingarkona, sem
ég hef nokkum tíma kynnst”, segir
Gunnlaugur, og svo lýsir hann því,
þegar hann bauð 30 norrænum
lögfræðingum í mat. Þá var mat-
seðillinn á þessa leið:
49. TBL. VIKAN 13