Vikan

Tölublað

Vikan - 02.12.1976, Blaðsíða 45

Vikan - 02.12.1976, Blaðsíða 45
gaus á móti honum hafði nærri þvi riðið honum að fullu. Með vasaklút fyrir vitunum fór hann til herbergis Beverly til að líta á árangur erfiðis síns. Hún svaf alveg eins og þegar hann yfirgaf hana. En nú var svefninn varanlegur. Eugene var ekki viss við hverju hann ætti að búast, nú þegar verkinu var lokið. Það gladdi hann að komast að því að hann mætti alls staðar samúð i stað gruns. Eina súra eplið, sem Eugene varð að bíta í kom frá hr. D, en hann hafði búist við því. Þrem vikum eftir jarðarförina, fékk fjár- baldsmaðurinn stuttort uppsagnar- bréf. Hann hringdi í Eugene og sagði: ,,Hr. Hazard, ég tel að hér eftir munið þér þarfnast þjónustu minnar meir en nokkumtíma. Þér ættuð að hugsa yður betur um.” ,,Ég er búinn að hugsa mig um,” sagði Eugene og naut sigursins. „Þér eruð rekinn, kunningi.” „Það tekur mig að minnsta kosti mánuð að ganga frá bókhaldinu...” , ,Takið yður tíma, en munið að ég er húsbóndinn núna. Og það fyrsta, sem ég vil að þér gerið er að senda mér ávisun upp á fimm þúsund dollara.” Peningunum var vel eytt. Eugene fór í stutta, en upplífgandi ferð til Bermúdaeyja. Þegar hann kom þangað, losaði hann sig bæði við sorgar- og giftingarbönd og steypti sér út í hið ljúfa líf. Hann skemmti sér konunglega. Hann kom heim aftur eftir hálfan mánuð með svarta borðann aftur um ermina og gullhringinn aftur á fingrinum. Rétt eftir að hann kom heim fékk hann tvo gesti, báða frá skrifstofu ríkissaksóknara. „Ég skil ekki,” sagði hann. „Þið viljið að ég komi með ykkur? en hvers vegna?” „Það er vegna konunnar yðar”, svaraði annar. „Það kom upp vafamól um orsök dauða hennar, hr. Hazard.” Eugene fór að titra. Hann vissi, að það ætti hann ekki að gera vegna þess að það kæmi upp um sök hans. Þegar hann stóð frammi fyrir rikissaksóknaranum sjálfum, hrópaði hann: „Ég kom ekki nálægt þessu!” „Enginn sagði það, hr. Hazard.” „Af hverju látið þið mig þá ekki í friði?” Embættismaðurinn gretti sig. „Okkur skilst að þér hafið farið til Bermúda, hr. Hazard.” „Ég þarfnaðist hvOdar.” „Eftir því sem okkur skilst nutuð þér lífsins þar.” „Kannski var ég bara að reyna að gleyma. Það skiptir yður engu máli, hvað ég geri.” „Þér hafið að sjálfsögðu rétt fyrir yður. Það kemur okkur ekkert við, nema eitthvað annað felist að baki, hr. Hazard. Svo sem morð.” „Beverly var með lungnabólgu! „hrópaði Eugene. „Hún kafnaði. Þið getið ekki kennt mér um það!” „Það eru tU aðrar leiðir tU að kafna,” sagði ríkissaksóknarinn. Hann hallaði sér fram á borðið og lækkaði röddina. „Og við þekkjum aðferðina sem þér notuðuð. Þér kæfðuð hana með gasi, var það ekki? Skrúfaðir frá gaseldavéhnni, og skUdi hana eftir tU að deyja. Er þetta ekki rétt?” Eugene var einnig að fá einkenni köfnunar. Varir hans urðu bláar, það strekktist á háls- vöðvunum, og það leið yfir hann. Þegar hann rankaði við sér, hvíslaði hann: „En hvemig í ósköpunum vissuð þið það?” Það var ekki fyrr en játning hans hafði verið bókuð, og undirskrifuð, að ríkissaksóknar- inn sagði honum það. „í sannleika sagt vorum við ekki alveg vissir, hr. Hazard, en maður nokkur að nafni Duprey lét okkur i té nokkur áhrifmikU sönnunargögn. Þekkið þér hann?” „Hr. D”, stundi Eugene. „Fjárhaldsmaður yðar. Hann sagði okkur frá nokkmm atriðum úr fortíð yðar og konu yðar. Síðan kom hann að nokkm, sem gæti virst mikUvægt.” „Hvað var það?... Hvað!?!?” hrópaði Eugene. „Það var gasreikningurinn yðar, hr. Hazard. Hann flaug upp úr öUu valdi. Stærsti gasreikningur, sem þér hafið nokkurntima fengið. Og við spurðum sjólfa okkur, hvað kom honum til að hækka svona skyndi- lega þennan mánuð. Nema þá að þér hafið notað þessi ósköp af gasi!” * í góðar kökur þarf gott efni, gott smjörlíki, Flóru-smjörlíki. Nýja Flóru-smjörlíkið gefur kökunum ljúffengt bragð ---------------------- og lokkandi útlit. cFI0R& er fyrsta flokks SMJÖRLÍKISGERÐ KEA MARGRÉTARKAKA \ Reynið nýja uppskrift 100 g FLÓRU smjöriíki 175 g ROBIN HOOD hveiti 3 matsk. sykur y2 egg Fylling: 150 g marcipanmassi 75 g FLÓRU smjörlíki, brætt 50 g flórsykur 1/a egg Skreyting: Cocktailber og hnetur Smjörlíkið mulið í hveitið, sykri og síðan eggi bætt í. Deigið hnoð- að saman og geymt í ca 1 klst. á köldum stað. % hlutar deigsins breitt út, og botn og kantar hring- forms klæddir deiginu. Efninu i fyllinguna hrært sáman og sett á botninn. Það sem eftir er af deig- inu breitt út, skorið í lengjur, sem lagðar eru yfir rúðumunstur. Cock- tailberin skorin sundur og sett i rúðurnar á móti hnetunum. Bakað i ca 25 mínútur við góðan hita (200°C). 49. TBL. VIKAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.