Vikan - 02.12.1976, Blaðsíða 25
kletturinn. Hann var að hluta til
þakinn litlum runnum og þar voru
einstaka tré á stangli. Þau skyggðu
á óslétta slóðina er lá upp að kirkj-
unni, og kirkjan sjálf sást ekki
heldur. Að austan og sunnan við
grasflötina tóku við brattar, skógi-
vaxnar hlíðar. Þar voru lævirkjatré,
og þá leið kæmist enginn. Þjóðveg-
urinn lá að vestanverðu ,Þær höfðu
ágæta vörn þarna, eða voru inni-
króaðar, eftir því hvemig á málið
var litið.
„Taka þátt í leikaraskapnum,”
sagði Irina og horfði glettnislega á
Jo. Hún hristi höfuðið. „Þetta er
ekki lengur neinn feluleikur sem á
að sýna fram á hver er sniðug-
astur.”
„Ég tók bara svona til orða,”
sagði Jo og reyndi að verja sjálfa
sig. Hún reiddist og kinnar hennar
urðu rjóðar. „Hefur þú nokkra
uppástungu?”
„Nei. En mig langar að leggja
fyrir þig ein spurningu. Til hvers
eru þeir enn að elta mig?” Hún
þagnaði en bætti svo við. „Það
erástæðulaust.”
„Ástæðulaust?” Jo glápti á hana
„Já, ég get ekki lengur orðið Jiri
Hrádek að neinu liði.”
Jo varð enn meira undrandi. Hún
hefur fengið þetta eitthvað skakkt
inn í höfuðið. Eða þá ég. Ég er hins
vegar í þann veginn að sleppa mér.
Samt var rödd hennar köld og
hlutlæg. „Jú, þú getur það svo
sannarlega,” sagði Jo, „og þú veist
það sjálf. Hrádek myndi ekki hika
við að koma mér og David fyrir
kattarnef. Hann getur vel komist af
án okkar. En hann þarfnast þín,
þangað til að honum hefur tekist að
rekja slóð þína til föður þíns.”
„Jiri veit hvar faðir minn er.
Mark Bohn sagði honum frá þvi
fyrir fjómm klukkustundum. Hann
hefur því haft nægan tima til þess
að gefa breyttar fyrirskipanir varð-
andi mig.
Það var sagan sem hún hafði sagt
henni í sambandi við Bohn og vega-
kortið og þann hluta þess, sem
sýndi leiðina inn í Sviss. Það hlaut
að vera það sem angraði hana. „En
þetta er aðeins ágiskun. Og hvað
svo þó að Hrádek hafi fengið upp-
lýsingarnar frá Bohn. Hann hefur í
mesta lagi fengið að vita að ferðinni
sé heitið til Sviss. Menn hans yrðu
eftir sem áður að veita þér eftirför
á hinn endanlega ákvörðunarstað.”
„En ef Jiri veit um hann líka.”
„Hvernig? Jafnvel ég veit ekki
um hann.”
„Það er staður sem heitir Tar-
asp,” sagði Irina.
„Enhversagði...”
„Hversu vel sér Bohn með þess-
um gleraugum sínum?”
Hún er viti sínu fjær, hugsaði Jo.
„Hversu vel?” endurtók Irina.
„Ja, gleraugun stækka hlutina.”
„Mjögmikið?”
„Já.”
Nú varð örstutt þögn. „Þá veit
Jiri um staðinn,” sagði Irina.
Aftur varð þögn og í þetta sinn
lengri. Að lokum sagði Jo. „Ég
vona að ég hafi á röngu að standa,
SfÍL-HÚSGÖGN
AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SfMI 44600
,».« TODDY sófasettið er smöið
fyrir unga íolkið
Verð aóeins kr. .109.000
Góöir greiðsluskilmálar.
Sendum hverf á land sem er
Plötuspilari - útvarp - magnari
25W+25W RMS Holiins 2()Hz-20,000Hz
Nýr Kenwood! Hi Fi samstæðan KF 2500 írá Kenwood, sú bezta sem völ er á.
Þú hvorki heyrir né sérð aðra betri. Raunverulega er hún samstæða 3ja
úrvals Kenwood tækja sem sameinuð eru í fallegum hnotukassa undir-einu
og sama þaki, fágað og fyrirferðarlítið.en ódýrt.
Komið og kynnist KENWOOD, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.
Allt fyrsta flokks frá
fKENWOOD
FALKIN N
®
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
49. TBL. VIKAN 25