Vikan - 02.12.1976, Page 46
design: Henrik Arnason
GUÐLAUGUR
A. MAGNÚSSON
skartaripaverzlun
J
• •
• •
Bjarni Jónsson hefur teiknað fyrir okkur myndir
af litla jólasveinastráknum, sem hlakkar svo mikið
til jólanna, að hann getur naumast beðið þeirra.
Jólasveinastrákar eru nefnilega rétt eins og aðrir
krakkar, þegar allt kemur til alls.
Getraunin er í fjórum blöðum, og í hverju blaði
birtast tvær myndir, sem í fljótu bragði virðast
nákvæmlega eins, en ef grannt er skoðað, kemur
í Ijós, að inn á aðra myndina vantar fimm atriði.
Getraunin er í því fólgin að finna þessi fimm atriði
og skrifa heiti þeirra á getraunaseðilinn, sem er hér
á opnunni. Síðasti hluti getraunarinnar birtist í
jólablaðinu, sem kemur út 9. des., og skilafrestur er
til 16. des.
Með tilliti til þess, að á mjög mörgum heimilum
eru fleiri en eitt barn, sem taka vilja þátt í getraun-
inni, auk þess sem mörgum er illa við að þurfa að
klippa út úr blaðinu, þá höfum við ákveðið að taka
heimatilbúna seðla einnig gilda og setjum ekki
önnur skilyrði en að skilmerkilega sé frá þeim
gengið. Og munið að senda ekki einn og einn í
einu, heldur bíða, þangað til öll blöðin fjögur eru
komin.
••
:••
••
m
••
m i nuvjiu:
Getraunin er í fjórum blöðum. Þegar öll
blöðin fjögur eru komin - ekki fyrr —
stingið þið lausnunum í umslag og skrifið
utan á: VIKAN, PÓSTHÓLF 533, REYKJA-
VÍK og merkið umslagið ,,JÓLAGET-
RAUN". Skilafrestur er til 16. desember.
Vinningar verða afhentir fyrir jól og sendir í
nnoti noim onrv~* i i+nn D>-» ibln. .fb.
46 VIKAN 49. TBL.