Vikan - 19.05.1977, Blaðsíða 10
Vikan
fer í búðir
Verslunin BJARG, Skólabraut
21, Akranesi, framleiðir þessi
skrifborð, sem eru úr tekki. Þau
eru með sex skúffum, og kostar
borðið kr. 46.500. BJARG selur
einnig skrifstofustóla, og kostar
þessi á myndinni kr. 24.600.
Hjá Kaupfélagi Borgfirðinga,
Kirkjubraut 11, Akranesi, fæst
allt milli himins og jarðar, en þar
rákumst við á þessi útvarpstæki
og sjónvarpstæki. Sjónvarps-
tækið, sem er af gerðinni Loewe,
er 12 tommu, og kostar það kr.
80.790. ..Poppy” útvarpstækið,
sem er með innbyggðu kasettu-
tæki, kostar kr. 53.456, en
Loewe útvarpstækið kostar kr.
16.400.
1 versluninni DRANGEV,
Skólabraut 26, Akranesi fást
þessar ensku dömupeysur úr
acryl í 4 mynstruðum litum,
Verðið er 4.900. Rúllukraga-
peysan undir fæst í 6 litum og
kostar kr. 1.900.
Verslunin OÐINN, Kirkjubraut
5, Akranesi, selur alls kyns
leikföng og annað fyrir börn.
Hjólið, sem við sjáum á
myndinni, kostar kr. 8.900 með
skúffu, en þríhjól án skúffu
kosta kr. 7.420 og kr. 7.920.
Skóverslunin STAÐARFELL,
Kirkjubraut 1, Akranesi, selur
skóna, sem við sjáum á þessari
mynd. Clarks herraskór' kosta
frá kr. 4.995, stigvélin sem eru
úr portúgölsku leðri, kr. 14.560
og bamastígvél kr. 4.500.
MÁLNINGARÞJONUSTAN,
Stillholti 2, Akranesi, hefur á
boðstólum gólfteppi í mjög
miklu úrvali úr ull, acryl og
nælon. Verðið er frá kr. 2000
ferm. og er til mjög mikið af
mynstrum. MÁLNINGAR-
ÞJÖNUSTAN selur einnig bað-
mottusett og málningarvörur,
svo eitthvað sé nefnt.
PÓSTURDíN
ALDURSTAKMARK TIL
ÚTLANDA?
Kæri Póstur!
Ég hef nú aldrei skrifað þér
áður, svo ég vona, að þetta bréf
lendi ekki i hinni landsfrægu
ruslakörfu, henni Helgu. Ég les nú
oftast Vikuna, og mér finnst
blaðið fara versnandi. Það eina
sem lesandi er í því, eru mynda-
sögurnar og Pósturinn. En get-
urðu sagt mér, hvort það þarf
einhvern vissan aldur til að fara út
til útlanda, einn eða með jafnöldr-
um sínum? Hvernig passa saman
vogin (stelpa) og vetnsberinn
(strákur)? En vogin (stelpa) og
meyjan (strákur)? Hvaða merki
passar best við vogina, og hver er
happalitur og tala vogamerkisins?
Og svo þetta venjulega: Hvað
lestu úr skriftinni, og hvað
heldurðu, að ég sé gömul?
Með fyrirfram þökk,
H.J.
Það erþó alltaf bót í máli, aö þú
hefur gaman af myndasögunum
og Póstinum í Vikunni. Hugsaðu
þér bara, ef þú hefðir ekki gaman
afneinu í henni. Það fer alveg eftir
því, hvað fólk er þroskað, hvað
það þarfað vera gamalt til að fara
til útlanda, en þaö eru engin lög til
yfir það! Ætli samþykki foreldr-
anna nægi ekki.
Um samband vogarstelpu og
vatnsberastráks segir eftirfarandi:
Samband ykkar verður rómantískt
og spennandi. Þið þreytist aldrei
hvort á öðru. Meyjarstrák og
vogarstelpu er hins vegar ekki
spáð /ang/ífu sambandi. Hrúts-
merkið á einna best viö vogina, en
/jónsmerkið passar einnig vel, og
pari úr vogarmerki er spáð mjög
góðu og skemmtilegu sambandi.
Happa/itur vogarmerkisins er
fjólublár og happatala 19. Skriftin
ber vott um fljótfærni og bendir
til, að þú sért uppstökk. Þú ert
ekki nema svona 13 ára.
FLUGFREYJUSTARF 0. FL.
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður.
Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér,
en ekki komiö mér að því. Mig
langar að spyrja þig nokkurra
spurninga. Ég ætla ekki að biðja
þig að ráða fram úr ástarmálum
fyrir mig, heldur ætla ég að spyrja
þig um allt, sem mér dettur í hug
og langar að vita varðandi starf.
Spurningarnar verða um áhuga-
mál mitt, og það er flugfreyjustarf.
Mig langar að vita sem allra mest
um þetta starf. Einnig ætla ég að
biðja þig að svara nokkrum
aukaspurningum. Ætli það sé ekki
best að skella sér í spurningarnar.
Hér koma þær:
1. Hvaða menntun þarf að hafa
til að geta gegnt þessu starfi?
2. Hvað þarf maður að kunna
mörg tungumál, og hver eru
helstu tungumálin?
3. Hvað má maður vera þungur
og hvað hár? Er eitthvert lágmark?
4. Hvað þarf maður að vera
gamall, og hvernig námskeið
tekur maður?
5. Hvernig er þessu starfi
háttað?
Við skulum segja, að þetta sé
nóg um þetta starf. En þá ætla ég
að spyrja þig aukaspurningar, en
fyrst ætla ég að segja stuttan kafla
úr því, sem ég ætla að spyrja um.
Þannig er mál með vexti, að ég er
alveg útundan í lífinu. Vinkona
mín er voða vinsæl hjá öllum,
bæði yngri og eldri aðilum. Það
líta allir svo stórt á hana, t. d. þorir
enginn að segja neitt illt við hana,
en mörg viðurnefni fæ ég. Hún er
eins og Guð í þeirra augum. Ef
einhver segir eitthvað við hana, og
hún segir honum að halda kjafti
eða eitthvað svoleiöis, þá gerir
hann það. En af mér að segja,
þá er ég hreint og beint fyrirlitin,
ég má varla hreyfa mig, ég get
ekkert skemmt mér með öðrum,
get ekki talað við neinn, ég er í
engum félagsskap, hef ekkert
samband við aðra. Ég get ekki
lifað svona lengur. Ég á ekki nema
eina vinkonu, aðra þekki ég ekki.
Ef ég fer á böll.sit ég ein úti I horni
og góni út í loftið. Vinkona m(n er
svo eftirsótt, að ótrúlegt er. Einu
sinni vildi enginn með hana hafa.
Ég veit ekki, hvernig ég á að koma
mér inn í félagslífiö með öðrum.
Hvernig veröur líf mitt í framtíð-
inni? Út frá þessu þarf ég að spyrja
10 VIKAN 20. TBL.