Vikan


Vikan - 19.05.1977, Qupperneq 22

Vikan - 19.05.1977, Qupperneq 22
hvernig hann talaði, sem var eins og það væri fyrirfram æft og ákveðið. Þau borðuðu á litlu dimmu og rándýru veitingahúsi i miðborginni. Þau komu snemma, og staðurinn var hálftómur, Hinum megin í salnum sá hún hávaxinn mann, harðlegan á svip með þykk gler- augu, niðursokkinn í þykkan doð- rant, meðan hann borðaði. Skyndi- lega kom hún auga á kunnuglegt andlit við annað borð. Nick lyfti glasi sínu í átt til hennar, og hún kinkaði stuttlega kolli. Það var ánægjulegt og jafnvel hressandi að vera i félagsskap Tonys. Er hann hafði talað látlaust i hálftíma, sagði hann allt í einu: ..Manstu, við vorum að tala um drauga í morgun, og þú minntist eitthvað á verur i munkakuflum.” ..Já.” sagði Caroline varlega. ,.Ja, ég meina.....” Hann iðaði óþægilega í stólnum. og Caroline sá votta fyrir svitadropum á efri vör hans. ,,Ég meina, þú hlýtur að hafa haft ástæðu til að nefna þetta. Ég meina....'' Og síðan sagði hann fljótmæltur: ..Sástu eitthvað?" Hún var ekki viss, hvernig hún ætti að svara þessu. Hann virtist mjög áfjáður í að hevra svar hennar. ,.Ja. ég geri ráð fyrir. að faðir þinn hafi sagt þér frá því." sagði hiin léttilega. ..Meðan ég beið eftir verðinum, fannst mér ég sjá röð af syngjandi verum í munkakuflum, með kross i broddi fylkungar. Auðvitað var þetta allt tóm imyndun. Ég hef bara látið hugmyndaflugið hlaupa með mig i gönur." Tony létti augsýnilega. ,,Ég geri ráð fyrir, að þú hafir verið að lesa um ábóta gamla Guillaume og hafir ímyndað þér þig sjá hann með munkum sínum.” "Er það ekki maðurinn, sem lét mála fjórtándu aldar myndina, sem fannst nýlega? Ég sá hana aðeins í dag. Hún er heldur ljót, finnst þér ekki?” TT ANN samsinnti því ákaft og * sagði: ..Éggeri ráð fyrir, aðþú vitir allt um Guillaume gamla?” ,,Ja, ég hef lesið sögu kirkjunn- ar." ,.En þekkirðu sögusagnirnar?" ..Hvaða sögusagnir?” spurði hún snöggt. Toný hallaði sér fram á borðið, og augun i honum urðu stór og ljómandi. ..Hann gerði sko ýmislegt ljótt, hann ábóti gamli Guillaume.” Nick stóð upp til að fara, og hún fylgdi honum eftir með augunum, þegar hann skálmaði út úr salnum. Hún beið eftir. að hann liti við, og þegar það brást, varð hún hálf vonsvikin ,,Ungfrú Hay — Caroline — hefurðu áhuga á djöflatrú?” Það rifaði aðeins í blá augu hans, og lostafullt andlit hans var blóðrautt. ,,Nei,” sagði Caroline, ,,ég held naumast, að ég hafi það.” Þau gengu heim eftir dimmum bugðóttum götunum, og hún bauð Tony góða nótt í skuggalegri forstofunni og fór með hálfgerðum létti upp til sín. Stuttu seinna heyrði hún hann fara út aftur. Hálf skömmustuleg fór hún út -að glugganum og horfði á hann ganga yfir portið. Hann leit um öxl einu sinni, eins og hann væri hálf hræddur um, að einhver væri að fylgjast með sér. Hún settist niður og byrjaði að skrifa athugasemdir um vinnu dagsins. Hún hafði ekki komist langt, þegar frú Wheeler barði að dyrum. ..Ungafrú Hay, það er siminn.” Hver gat það verið? Gæti það verið — ? Hún fór niður og tók upp tólið. ..Halló?” Röddin, sem svaraði, var hreint ekki sú, sem hún hafði búist við, og full undrunar tók hún andköf. ..Caroline? Þetta er Laurel.” Eftir augnablik tókst henni að stynja upp: ,,Hamingjan sanna, halló” ,.Caroline,” sagði Laurel, ,,ég hringdi til þess að bjóða þér í mat. Fyrst þú verður hér í Haidansbury um tíma.... Hvað verðurðu annars lengi?” Rödd hennar var þrungin spennu. Það var þá þetta, sem hún vildi vita. Hve lengi Caroline yrði þarna. AROLINE kvaðst ekki vita, hve starf hennar í dómkirkj- unni myndi taka langan tima. Og ef svo ólíklega vildi til, að Laurel væri að reyna að sættast við hana, sagðist hún hafa ánægju af að þiggja boðið og hafði á orði, hve vinsamlegt það væri af Laurel að bjóða henni. ,,Við verðum að ákveða daginn,” sagði Laurel. ,,Ég er laus öll kvöld,” svaraði Caroline sannleikanum samkvæmt. Laurel svaraði stuttlega: „Hvað með annað kvöld?” ,,Það væri fínt.” Þegar hún kom aftur upp til sín, háttaði hún, lagðist upp í rúm og starði út i myrkrið. Hvernig myndi þetta verða annað kvöld með Nick og Laurel? Átti hún að þora að vona, að Laurel hefði breyst? Eða Nick? Hennar eigin tilfinningar gagn- vart Nick voru þær sömu. En hún vildi ekki einu sinni játa það fyrir sjálfri sér. Framhald í næsta blaði. Electrolux m ÞVOTTAVÉL Verð kr. 166.000 Við bjóðum hagstæð greiðslukjör þ.e. útborgun kr. 66.000 og eftirstöðvar greiðist á sjö mánuðum, Vélin tekur 5 kg. af þurrum þvotti. Vinduhraði 520 snún/min. ,___rougnr^2— VtTTYATT4 fÖMTVÁTT -QO-vvii , eat-------------- ~~ KULÖttTVATT ’ KULÖflTVÁTT feqf CtWTR:ruOCHtNG C 22 VIKAN 20. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.