Vikan - 19.05.1977, Side 47
ÞVÍLÍKT DRULLUMOJ
Næsti leiðarhluti var hinn marg-
umtalaði og illræmdi isólfsskála-
vegur, og þvílíkt drullumoj. í
byrjun var vegurinn alveg sæmi-
legur og allt að því ágætur, en svo
fór hann ört versnandi, og það
endaði með þvl, að komið var að
um það bil þrjúhundruð metra
löngum kafla, sem var varla jeppa-
fær. Þegar ekið var út í drullu-
svaðið, varð fyrst að fara yfir
hvarf, svo ferðin var ekki mikil,
þegar í svaðiö kom. Nú var allt
gefið í botn og bílnum þrælaö f
drulluna á botnkeyrslu í öðrum gír.
Escortinn sökk á kaf, náði sér upp
aftur, lenti á hrygg í svaðinu og
hreinlega stökk upp úr því,
spólaði, rann til, titraði og skalf,
svo ég hélt hann myndi hreinlega
brotna í tvennt. Sibbi sló í
mælaborðið og sagði „Áfram
með þig", og áfram fór hann, þar
til við komumst yfir alla drulluna.
Þeir drullupyttir, sem við komum
að eftir þetta, voru svo lítilfjörlegir
á móts við þann stóra, að maöur
hafði ekki nokkrar áhyggjur af
þeim. Ekki neita ég því, að ég var
ansi stoltur af Escortinum, þegar
isólfsskálavegurinn var að baki og
kannski svolitið feginn líka. Og
þegar á tímastöðina kom, vorum
við á réttum tíma og fengum ekki
neinn mínus.
DÓNSKUR BENS
Á leiðinni að kirkjugarðinum í
Hafnarfirði fengum við fjóra í
mínus. Flóttamannaleiðin og upp
að Geithálsi var hins vegar ekin á
núlli. Síðan var farinn svokallaður
Hafravatnshringur, og þegar við
vorum að aka fyrir Hafravatn kom
Bens á móti okkur, og helvl...
dóninn tók sveig inn á veginn með
þeim afleiðingum, að ég varð að
fara út í kant, lenti þar í
drullusvaði, og lá við, að ég festi
bílinn. En þegar að síðustu
tímastöðinni kom, gerðum við
einhverja ferlega vitleysu og
fengum tíu í mínus.
Ekin var stysta leið að Loftleið-
um og þar upp á pall til að skila
tímakortinu. Árni Árnason, einn af
skipuleggjendum þessa ralls, tók
við kortinu, en Árni hefur verið
einn af aðalmönnunum við að
skipuleggja þau þrjú röll, sem hér
hafa verið haldin.
ÚRSLIT OG AFHENDING
Úrslitin í þessu ralli uröu þau,
að Ómar Ragnarsson og Jón
Ragnarsson uröu í fyrsta sæti.
Þeir fengu 6 refsistig og öll á
Keppnisskrá og endanleg úrslit
Rás-
no. Ökumenn
BM:
Refsi-
stig.
Sæti.
1. Halldór Jónsson Úlfar Hauksson Fíat 128 rally 14 4.
2. Ómar Þ. Ragnarsson Jón R. Ragnarsson Simca 1100 6 1.
3. Vilmar Þór Kristinsson Sigurður I. Ólafsson Volkswagen Golf 6 2.
4. Jóns R. Sigmundsson Dröfn Björnsdóttir Fiat 128 rally 11 3.
5. Baldur Hlöðversson Hallgrímur Marinósson Skoda 110L 20 6.
6. Úlfar Hinriksson Sigurður Sigurðsson Ford Cortina 1600 70 15.
7. Guðjón Guðmundsson Sveinn Torfi Sveinsson Peugeot 504 89 16/17
8. Garöar Eyland Gunnar Gunnarsson Saab 99 31 10/11
9. Gunnar P. Gunnarsson Volvo 544. Lauk ekki keppni
Þorgrímur Halígrimsson braut spindil.
10. Sverrir Ólafsson Þorsteinn Tómasson Ford Escort Rally 29 9.
11- Þórir Halldórsson Friðrik Friðriksson Mættu ekki ti1 keppni
12. Ásmundur Gunnlaugs. Sunbeam Alpine. Lauk ekki keppni.
Haraldur Ingþórsson gat á vatnskassa.
13. Þorkell Guðnason Simca 1100TI. Lauk ekki keppni.
Guðjón Skúlason gat á vatnskassa.
14. Örn Ingólfsson Maríus Gröndal T rabant 97 18.
15. Árni Bjarnason Sigbjörn Björnsson Ford Escort 1300 31 10/11.
16. Hjalti Hjaltason Lada 2102. Villtust og luku
Erling S. Andersen ekki keppni.
17. Finnbogi Ásgeirsson Ford Capri. Brotnaði að
Þorbergur Guðmundss. framan.
18. Sigurjón Harðarson Bjarni E. Haraldsson Skoda 110R 57 13/14.
19. Karl H. Cooper Sigurbjörn Árnason Trabant 50 12.
20. Guðjón Jónsson Guðmundur Einarsson Citroen GS 26 8.
21. Birgir Guðmundsson Birgir Halldórsson Ford Cortina 1600L 57 13/14.
22. Hafsteinn Aðalsteinss. Björn Guðjónsson Datsun 160J 23 7.
23. Jóhannes Jóhannesson Vauxhall Viva 89 16/17.
Egill Sveinbjörnsson
24. Ólafur Benediktsson Þórólfur Halldórsson Lancer1400 18 5.
Þeir voru alltaf kallaöir gömlu
mennirnir, þessir á Peugotinum.
Þeir festu bllinn fyrir utan veg, en
gátu losað hann aftur. Þegar svo á
næstu tímastöð kom, kvað við
mikið húrrahróp frá áhorfendum.
radar. Ökutæki þeirra var Simc-
alloo.
Annað sæti hrepptu Vilmar Þór
Kristinsson og Siguröur I. Ólafs-
son, þeir hlutu einnig 6 refsistig,
en voru settir í annað sæti, þvf þeir
fengu þau á tímastöðvum. Bíllinn
þeirra var VW Golf.
i þriðja sæti lentu Jón R.
Sigmundsson og Dröfn Björns-
dóttir. Ég held, að öllum hafi þótt
réttlátt, að þau fengju þetta sæti,
því Jón hefur lent I fjórða sæti í
hinum tveim röllunum og var
búinn að fá viðurnefnið Jón fjórði.
Bíll Jóns var af gerðinni Fiat 128
rally.
Fjórða sætið hlutu HaHdór
Jónsson og Úlfar Hauksson, sem
óku einnig Fiat 128 rally.
Verðlaunaafhendingin fór fram
að Hótel Loftleiðum, seinna um
kvöldið. Allt liðið hafði verið rekið
heim í bað og í önnur föt og síðan
skikkað til að mæta aftur til að
klappa og vera með. Það var góð
stemmning hjá rallmönnum, og
sigurvegarinn Ómar Ragnarsson
vippaði sér upp á sviðið og
skemmti mönnum af sinni al-
kunnu snilli. Þar lék hann meðal
annars heila jeppakeppni og vakti
svo mikinn hlátur, að menn héldu
naumast vatni.
Bílaumboðið Vökull flutti inn
bílinn, sem varð í fyrsta sæti, og
fékk það bikar í viðurkenningar-
skyni. Jón Hákon Magnússon,
framkvæmdastjóri Vökuls tók við
vinningnum. Hann gerði sér lítið
fyrir í leiðinni og gaf klúbbnum 50
þúsund krónurtil klukkukaupa, og
á hann heiður skilinn fyrir það.
i 10.-11. SÆTI
En það er af okkur Sibba að
segja, að við lentum í 10.-11. sæti
eftir þetta allt, með 31 mínus. Ekki
get ég neitað því, að ég var
svolítið spældur. Og mér fannst
verða lítið úr öllu því veseni, sem
ég hafði gert í sambandi við
keppnina, fengið lánuð dekk hjá
Barðanum, bíl hjá Sveini Egilssyni
og varla hugsað um annað en rall í
heilan mánuð.
Forráðamenn klúbbsins segjast
ætla að halda stórt rall í sumar og
ég er auðvitað strax farinn að
pæla i því.
Á.B.
20. TBL.VIKAN 47