Vikan - 21.02.1980, Side 5
7. Hótel Borg
meins. En líklega verö ég að fara að
krefja Vikuna um áhsettuþóknun, ef ég
á að stíga öllu fleiri skref niður eftir
matarmenningu islenskra veitingahúsa.
Ekkert sitrónuvatn fylgdi humrinum
til að hreinsa fituga fingur. Bendir það
til þess, að sjálfsvirðing Borgar sé minni
en annarra veitingasala í sama
verðflokki.
Verðið er 6.300 krónur sem forréttur
og 11.000 krónur sem aðalréttur.
Turnbauti
Nautalundir Berny voru það, sem
yfirmatreiðslumaðurinn mælti með á
matseðli dagsins þetta kvöldið. Þá kom i
Ijós, að það var bara misskilningur minn
að panta graflax og humar eða yfirleitt
nokkurt atriði af fastaseðlinum. Menn
eiga eingöngu að halda sér við dag-
seðilinn.
Þetta var prýðilegur turnbauti. Ég
hætti alveg að bölva matreiðslumönnun-
um. Bautinn var mjög meyr og óvenju-
lega bragðmikill, enda var gerð kjötsins
með grófasta móti.
Hér voru aftur á ferðinni litlu, góðu
kartöflurnar og enn einu sinni
mátulega litið soðnar. í þetta sinn höfðu
þær verið smjörsteiktar eftir suðu.
Sveppirnir voru þvi miður úr dós, en
þeim hafði þó ekki verið misþyrmt enn
frekar með of langri steikingu.
Ennfremur var þarna meiri dósamatur,
maís, grænar baunir og gulrætur,
einkennistákn íslenskrar matargerðar.
Ojbjakk.
Ég kunni betur við mátulega soðið og
sítrónuvætt brokkálið. Sömuleiðis ostað
blómkálið. En magnið af öllu þessu
meðlæti var eins og fyrir heilan
herflokk.
Steinseljusmjörið var lika gott, en
óhóflega mikið. Það á ekki að bjóða gesti
uppá rúmlega hundraðgrömm afsmjöri
í meðlæti með kjöti. Hann gæti fallið
fyrir freistingunni. Þjóðin er löngu hætt
aðsvelta.
Verðiðer 9.300 krónur.
Ýsa
Steikt fiskflök Doria voru á seðli
dagsins. Þetta var smjörsteikt ýsa, senni-
lega úr frystihólfi, en eigi aðsíður bragð-
góð. Hún hafði ekki gleymst á
pönnunni, eins og oft vill verða hér á
landi.
Enn komu í Ijós margumtalaðar
kartöflur, einnig ferskar, smjörsteiktar
gúrkur, nýir tómatar, salatblöð og
sítrónur. Hvilíkur léttir eftir allt dósa-
grænmetið!
Verðið er 3.700 krónur.
Melóna
Kældar melónur með sykri sjást ekki
oft á islenskum matseðlum. Þær fást þó
merkilegt nokk á Borg, prýðilegur eftir-
réttur, sem fer vel i maga.
Verðið er 1.700 krónur.
Einkunnir
nokkurra veitingahúsa
Marg- feldi Saga Loft- leiðir Holt Naust Esju- berg Hornið Borg
Matur X5 8 6 9 4 2 6 3
Þjónusta X2 9 6 7 9 (2) 8 6
Vínlisti XI 6 6 6 4 2 X 3
Umhverfi X2 7 7 7 9 7 8 7
Samtals XIO 78 62 79 60 30 62 39
Einfölduð heildareinkunn Meðalverð aðal- rétta í krónum: 8 8.500 6 8.300 8 8.100 6 8.000 3 4.700 6 3.600 4 7.700
Ostabakki
Blandaðir ostar á bakka með brauði
og smjöri reyndist vera einn skraut-
legasti ostabakki, sem ég hef séð borinn
fram fyrir einn mann. Þar var úr nógu
að velja, þótt smurostarnir fjórir
freistuðu min ekki.
Parna gaf að líta gráðaost, gouda- og
mysuost, rúgbrauð, hrökkbrauð og
ritzkex, smjör, vínber og mandarinur.
Þetta var heilt veisluborð, þótt eftirrétt-
ur væri.
Ég átel þó, að boðið sé upp á manda-
rínur úr dós, þegar ferskar mandarínur
hafa fengist I búðum á hverjum éinasta
degi um margra mánaða skeið.
Verðið er hátt, 4.000 krónur sem eftir-
réttur.
Kaffi
Kaffið á Borg reyndist vera sæmilegt
og borið fram með ósviknum rjóma.
Hins vegar var írska kaffið nauða-
ómerkilegt, hálfkalt og illa útlítandi eftir
hristing á ferð þess úr eldhúsi inn á borð.
Skýjaverð
Borgin er mjög dýr veitingastofa
miðað við gæði. Hún er í sama verð-
flokki og Holt og Saga, þótt gæðin séu
mun síðri.
Að vísu er hægt að fá á Borg þrírétt-
aðan mat fyrir 7.200 krónur af seðli
dagsins, en slíkur matur kostar þó ekki
nema 5.000-7.600 krónur á Loftleiðum.
Með kaffi og hálfri flösku af Chianti
Classico á mann mundi þessi matur
kosta 9.500 krónur á Borginni.
Meðalverð átján forrétta, súpa og
smárétta á Borg er 3.700 krónur, ellefu
aðalrétta úr kjöti og fiski 7.700 krónur
og niu eftirrétta 2.400 krónur. Samtals
er þetta 13.800 krónur. Með kaffi og
hálfri flösku af vini ætti meðalmáltíð af
fastaseðli Borgar að kosta 16.100
krónur.
Slík máltíð kostar 16.300 krónur á
Sögu, 15.700 krónur á Loftleiðum,
15.100 krónur i Holti og 14. 500 krónur
I Nausti.
Mismunur rétta á Borg reyndist vera
svo mikill, að tæplega er hægt að gefa
matreiðslunni einkunn. Að fara meðal-
veginn og gefa þrjá segir ekki alla
söguna, því að gestir geta með lagi
komist yfir mat á betri einkunn.
Samt verða þrir að duga í einkunn
fyrir mat, þvi að Borgin fær núll fyrir
þann þátt að vara gesti ekki við humri
og laxi. Þjónustan á Borg fær sex I
einkunn, vínlistinn þrjá og umhverfi og
andrúmsloft fá sjö I einkunn. Heildar-
einkunn Borgar sem veitingahúss er
^<">r'r' Jónas Kristjánsson
í næstu Viku:
Laugaás
8. tbl. Vikan 5