Vikan - 21.02.1980, Blaðsíða 7
Aparnir vildu ekki vera hjá mömmunni
úr stálþræðinum, þrátt fyrir að hún gæti
gefið þeim nijólk. Þessar tilraunir hafa
gert það að verkum að menn hafa
hafnað kenningunni um að nýfædd
dýra- og mannsbörn læri smám saman
að fá þörf fyrir tengsl við aðra af þvi að
líkamlegum þörfum sé fullnægt. í
apatilraununum kom í ljós að þrátt fyrir
að aparnir gætu lært að stálmamman
gæfi þeim mat þá fengu þeir enga þörf
fyrir hana og sýndu henni engin
tilfinningaleg viðbrögð. En hegðun
þeirra gagnvart voðmömmunni varð
sifellt hlýlegri þrátt fyrir að hún gæfi
þeim enga mjólk.
í þessum tilraunum kom einnig í Ijós
að aparnir þróuðu svipað samband við
voðmóðurina eins og nýfætt barn gerir
við móður sína. Það kom t.d. i Ijós að
þegar aparnir urðu hræddir flúðu þeir til
voðmóðurinnar og hjúfruðu sig að
henni likt og mannsbarn gerir. Aparnir
völdu allir voðmóðurina, enginn stál-
móðurina.
Niðurstöður þessara tilrauna voru svo
sannfærandi að visindamennirnir tveir
ályktuðu að það mikilvægasta sem móðir
gerði þegar hún sýslaði við bam sitt væri að
hún veitti þvi tið og náin tengsl þar sem það
legði grundvöllinn að tilftnningatengslum
bamsins.
Harlow og samstarfsmenn hans héldu
áfram að rannsaka apana þangað til þeir
urðu fullorðnir. Það kom í Ijós að þegar
aparnir stækkuðu urðu þeir óhamingju-
samir, árásargjarnir og úr tilfinninga-
legu jafnvægi. Þetta átti bæði við um þá
apa sem höfðu eignast voð- og stál-
móður. Þetta sýndi rn.a. að það var ekki
nægjanlegt fyrir félagslega og persónu
lega þróun apanna að eignast mjúka
voðmóður. Hún er dauð og getur ekki
veitt öpunum þau tilfinningalegu tengsl
sem lifandi móðir getur.
Uppbótarmæðurnar voru þvi öpununt
litlu betri en engar mæður, nenia rétt
eftir fæðinguna þegar tengsl móður
við afkvæmi mótast fyrst og fremst af
snertingu.
Heilbrigður eða skadd-
aður persónuleiki
Apatilraunir hafa haft mikil áhrif á
barnauppeldi og skoðanir manna á hvað
börnum sé nauðsynlegt í frumbernsku.
Þær höfðu m.a. i för með sér að menn
fóru að líta á hin svokölluðu stofnana-
börn í nýju Ijósi. Orsök þess að mörg
börn, sem höfðu alist upp á stofnunum
frá fæðingu. voru tilfinningalega
sködduð var sú að börnin höfðu ekki
fengið möguleika á að tengjast neinum
tilfinningalega. En tilraunin varpaði
kannski fyrst og fremst Ijósi á það að
barnið hefur meðfædda þörf fyrir að
tengjast öðrum tilfinningalega í
frumbemsku og það getur haft úrslita
þýðingu um hvort bamið verður
heilbrigður eða skaddaður persónuleiki
hvort þessari þörf er fullnægt eða ekki.
Hún sýnir í hvaða blaði smáauglýsing ber
mestan árangur. Hvaða ástæða önnur skyldi ráða því að
smáauglýsingamagnið er alltaf mest í Dagblaðinu?
Þangað leita viðskiptin, sem úrvalið er mest.
Smáauglýsingar
BIABSIN5
ÞverholtiHsími 2 7022
Opið til kl.10 í kvöld
bók / b/aðformi
fæstá næsta b/aðsö/ustað
8. tbl. Víkan 7