Vikan - 21.02.1980, Side 24
Framhaldssaga
NÝJASTI BÍLLINN FRÁ PEUGEOT
Rúmgóður, f ramhjóladrrfinn, 5 manna bíll.
Traustur — Sparneytinn — Kraftmikill.
Hæfir vel íslenskum staðháttum.
UMBOÐ Á AKUREYRI: VÍKINGUR SF. HAFRAFELL HF.
FURUVÖLLUM 11 VAGNHÖFÐA 7
SÍMI 21670 SÍMI 85211
w
I
mánaskini
stuttu eftir andlát Söru frænku — hún
var tvíburasystir mömmu og þær létust
með nokkurra daga millibili — seldi
Julian jörðina og fór aftur til Englands
með Vivien, sem hefur þá verið fjórtán
ára eða þar um bil. Ég get varla sagt að
ég þekki þau neitt. Svo mér finnst eigin-
lega ekki að ég geti leitað á náðir þeirra.”
„En pabbi þinn ætlaði samt að
heimsækja þau, var það ekki?” sagði
herra Robertson.
„Ég hef einmitt verið að furða mig á
því. Ég held að hann hafi skrifað frænda
minum og ég veit að hann fékk svar þó
ég hafi ekki séð bréfið.
Pabbi virtist ekki vilja tala mikið um
fyrirætlanir sinar. Ég held að hann hafi
verið að vona að hann fyndi eitthvert
starf, sem hann gæti unnið hluta úr degi.
yyona rétt til að hafa eitthvað fyrir
stafni. Ég vissi að Julian frændi keypti
sér litið sveitasetur þegar hann kom
fyrst til Englands. Hann var sæmilega
efnaður svo það hefur sennilega verið
skynsamlegt þá.
En með hækkandi verðlagi og þar sem
orðið er mjög erfitt að fá nokkra
heimilisaðstoð, þá hefur hann kannski
haldið að pabbi vildi flytja til þeirra —
fyrst um sinn að minnsta kosti — og
deila útgjöldunum með þeim.”
„En pabbi þinn hefur samt ekki nefnt
þetta neitt við þig, var það?” vildi herra
Robertson vita.
„Ja, nei. En hann hefur kannski ekki
að svo komnu viljað vera að ræða
þetta.”
Herra Robertson kinkaði hugsandi
kolli. „Hm. Var hann vanur að vera
nokkuðeinráður?”
Við vorum nú alveg að koma út á
flugvöll og hann varð að beina allri
athyglinni að umferðinni.
Eftir flugið til London og þegar ég var
aftur komin í íbúðina mina í Earls
Court, var ég að minnsta kosti farin að
átta mig á breyttum kringumstæðum
mínum.
Lifið fór aftur að ganga sinn vana-
gang. Sharon Wells. vinnufélagi minn,
flutti til min meðan hún var að svipast
um eftir hentugu húsnæði. Þar sem hún
eyddi meiri hlutanum af kaupinu sinu i
föt og var alltaf i fjárhagsörðugleikum
átti ég ekki von á að hún yfirgæfi mig i
náinni framtíð.
1 lok aprilmánaðar fékk ég bréf frá
Julian frænda. Hann sendi mér inni-
legustu samúðarkveðjur bæði frá sér og
frænku minni og bað mig að hika ekki
við að skrifa sér ef ég þyrfti á aðstoð að
ÁRFELLSSKÍLRÚM
í stofu og ganga
TRÉSMIÐJA - SÚÐARVOGI 28 SlMI 84630 NAFNNR. 0417-0407
24 Vikan S. tbl.