Vikan - 21.02.1980, Qupperneq 30
Draumar
Draumar um tvo
litla drengi
Kœri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig um
að ráða fyrir mig t\’o eftir-
farandi drauma.
Mér fannst ég vera stödd á
heimili systur minnar og
fjölskyldu og voru allir svo
daufir og óhamingjusamir.
Mágur minn kom til mín og
sagði: Það á að skera af honum
punginn (litla frænda mínum)
af því að mamma og pabbi
vilja það. Ég spurði hvort hann
yrði ekki ófrjór og hann sagði:
„Jú. ”
Hinn var svona.
Mér fannst ég vera búin að
eignast lítinn strák. Allir voru
að óska mér til hamingju og
dást að honum og segja að
hann vœri alveg eins og
pabbinn.
En mér fannst ein góð
vinkona mín halda að hún ætti
eitthvað í barninu. En svo var
komið að skírninni og ég vissi
ekki hvað ég ætti að láta hann
heita og ef ég myndi ekki flýta
mér að ákveða það myndu
prestarnir ráða því. í
draumnum hugsaði ég um
mörg nöfn og ég valdi að
lokum eitt nafn (..... birtist
ekki).
Draumurinn varð svo ekki
lengri.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Ein dreymin
Fyrri draumurinn er systur
þinni og fjölskyldu hennar fyrir
miklu láni og þú munt fyrr en
varir gleðjast yfir heppni þeirra.
Síðari draumurinn er þér sjálfri
líklega fyrir giftingu og ýmsum
atburðum tengdum því. Þar
vantar draumráðanda sárlega
nafn vinkonunnar, sem birtist í
draumnum. Nafn barnsins
táknar bæði ávinning og
leyndarmál og líklega mun ýmis-
legt í sambandi við giftinguna
koma ættingjum þínum mjög á
óvart.
Ský úr hvít-
um fjöðrum
Kæri draumráðandi:
Eg óska að þú getir ráðið
þennan skrítna draum fyrir
mig.
Mig dreymdi að svstir mín
og vinkona hennar kölluðu á
mig og sögðu mér aö koma úl
að sjá. Þegar ég kom út
heillaðist ég alveg. Allt var fullt
af skýjum sem svifu u.þ.b. tvo
metra fyrir ofan jörðu. Þessi
ský voru úr hvítum fjöðrum.
Ég hoppaði upp og reyndi að
grípa skýin og ég var svo
undarlega létt og allt í einu
byrjaði ég að svífa. Það var
yndislegt. Ég sveif á milli
hvítra fjaðraskýjanna og
stelpurnar stóðu og störðu á
mig. Ég hugsaði aö ég væri
eina manneskjan í öllum
heiminum sem gæti svifið. Þá
kom vindhviða sem sveiflaði
mér hærra. Ég flaug yfir tvo
húsagarða í u.þ.b. 7 metra hæð
og gat engu stjórnað. svo
hrapaði ég hratt og stefndi á
tré.
Við þetta fékk ég svo hrylli-
lega tilfumingu í líkamann að
ég vaknaði. Það sem ég tók
mest eftir í draumnum voru
hvítu fjaðrirnar.
Vom
Hvítar fjaðrir eru dreymand-
anum ævinlega fyrir upphefð og
auknu áliti annarra á
verðleikum hans. Það sama
gildir einnig ef þig dreymir að þú
svífir um loftið. Þetta getur verið
þýðing þessa draums þíns og þá
táknar hrapið að þú verðir síðar
fyrir óvæntum skakkaföllum.
Hins vegar getur þessi draumur
verið annars eðlis því margir
draumspekingar halda því fram
að svif og flug í draumi tákni
einungis að dreymandinn fari
sálförum. Þá táknar hrapið
einungis endurkomu sálarinnar í
líkamann, senv í þínu tilviki
hefur orðið fyrir einhverri
truflun.
Fæðing í draumi
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að skrifa um
draum sem mig dreymdi fyrir
stuttu í von um að þú getir
ráðið hann.
Ég var inni í einhverju
herbergi ásamt stelpu sem ég
þekkti, en man ekki hver var
(mig rámar í að það haf verið
gömul vinkona mín). Við
skulum kalla hana N. Þarna
var líka strákur sem ég átti að
vera með í draumnum. Skulum
við kalla hann J. J og N voru
bæði að hjálpa mér við
fæðingu. Verkirnir voru litlir
og gekk því fœðingin vel. Ég
átti stelpu og hún var með
mikið hár. Éin fétta var efst á
höfðinu. Égfylgdist vel með
öllu og sá meðal annars þegar
N klippti á nafastrenginn.
Þetta var allt mjög skýrt.
Svo fannst mér ég allt í einu
vera komin með annað stœrra
barn og mig minnir að það haf
verið strákur sem ég átti ekki
sjálf. Ég og J vorum inni í
þessu herbergi og ég hélt á
báðum börnunum þegar ég
vaknaði.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
K.S.S.
Fljótlega færðu einhverjar
óvæntar fréttir en þó gleðilegar.
Engu að síður máttu búast við
erfiðleikum tengdum ákveðnum
atburðum og þú ættir að fara
mjög varlega í ástamálum um
sinn því ekki er þar allt sem
sýnist.
Flugvél með
börur fyrir
líkkistu
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi draum fyrir
nokkru og mig langar mikið til
að vita hvort hægt sé að lesa
eitthvað út úr honum.
Mig dreymdi að ég vœri að
horfa út um eldhúsgluggann
hjá mér sem snýr í norð-vestur.
Sá ég þá hvar þrjár hvítar flug-
vélar komu fjúgandi, hlið við
hlið og undir hverri var ein lítil
flugvél, blá. Flugyélin sem
flaug í miöjunni var með börur \
hangandi niður og á endann
fannst mér vera festur íslenski j
fáninn. Mér fannst þessar fug-
vélar vera á leiðinni inn að
sveitabæ ekki langt þaðan sem '
ég bý, að sækja líkkistu og var
ætlunin að setja líkkistuna á
börurnar. ;
Með kœrri þökk.
Ein berdrevmin I
|
Þessi draumur er fyrir ein- !
hverjum miklum atburðum en
þó talsvert vandamál að segja af
eða á um hverjir atburðirnir j
verða. Þarna getur verið um að
ræða berdreymi, þannig að
flugvélarnar tákni í raun \
dauðsfall einhvers á þessum bæ.
Hins vegar þarf ekki að vera um
berdreymi að ræða heldur ein-
faldlega tákndraum sem þá
snertir þig sjálfa og þína
nánustu. Sé svo þarf draumur- \
inn ekki að tákna slæma atburði
i sjálfu sér heldur miklu fremur I
djarfar áætlanir. Þar mun þó j
maðkur í ntysunni að einhverju ;
leyti en í heildina verður um |
gróða að ræða. Þriðji mögu-
leikinn, sem alls ekki er úti- j
lokaður, gefur í skyn að þarna j
gæti verið um atburði að ræða i
sem ekki gerast á næstu árum. \
Þegar þar að kemur megir þú ;
eiga von á að tengjast jjessum ,
bæjum á einhvern máta, til j
dæmis í gegnum börn þin og þá
muni ýmislegt koma þér
rækilega á óvart. Drauma sem
t>ennan er ákaflega erfitt að
þýða með eitt ákveðið sjónar- j
mið og lausn í huga, nema hrein- j
lega að þekkja viðkomandi j
persónulega.
30 Vikan 8. tbl.