Vikan - 21.02.1980, Síða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
HVAÐ Á BARNIÐ
AÐ HEITA?
Hefurðu nokkurn tíma tekið
þátt í skírnarathöfn? Auðvitað
er þetta kjánaleg spurning,
flestir hafa þó að minnsta kosti
tekið þátt í sinni eigin og öll
berum við einhver nöfn. En mér
datt þessi spurning í hug af því
að ég tók sjálfur þátt í einni
alveg nýlega. Foreldrarnir ungu
höfðu ákveðið að láta barnið
heita í höfuðið á mér, Vilhjálm,
og auðvitað gleður slíkt mann
afskaplega. En Vilhjálmur er'
líka ákaflega fallegt og sérkenni-
legt nafn, allt annað en öll
þessi stirðbusalegu og þung-
lamalegu bændanöfn. Að
athöfninni lokinni spurði ég
foreldrana ungu hvernig þeim
hefði dottið í hug að gefa
barninu svona yndislega hljóm-
fagurt nafn.
— Jú, sagði faðirinn ungi. —
Við Marta gátum ómögulega
komið okkur saman um nafn.
Svo að ég skrifaði 100 nöfn á
miða, setti þá í hatt og sór — til
að umræðurnar næðu ekki
suðupunkti á ný eftir að dregið
hefði verið — að drengurinn
skyldi bera það nafn sem upp
kæmi, hvað sem á gengi. Og svo
vorum við svo fjári óheppin að
draga einmitt nafnið Vilhjálmur
upp úr hattinum.
En nóg um það. Þó fékk þessi
atburður mig til að minnast
okkar eigin kvala þegar við á
sínum tíma reyndum að finna
fallegt nafn á son okkar. Það var
skotið á fjölskylduráðstefnu og
mættir voru til leiks hinir
nýbökuðu foreldrar ásamt
tengdamúttu.
— Mér finnst að hann ætti að
heita Andri, sagði konan mín.
— Það heita svo margir því
nafni, sagði ég. — Þetta er
dæmigert tískunafn núna.
— Af hverju látið þið hann
ekki heita Jóakim Hallfreð eftir
báðum öfunum, sagði tengda-
mútta.
— Það er alltof gamaldags,
sagði ég, og kom sjálfur með
tillögu um að láta hann heita
Pétur. Það var ágætisnafn og
auðvelt að stafsetja það.
Otal tillögur bárust en við
gátum ekki komið okkur saman
um neina þeirra. Þó vorum við
sammála um að skírnarathöfnin
skyldi fara fram næsta
sunnudag. Þar með hafði þó
nokkur árangur náðst á
fundinum og ég sleit honum.
Dagarnir liðu og á fimmtudag
höfðum við enn ekki komist að
niðurstöðu með nafnið. Ég flýtti
mér að kalla saman nýjan fjöl-
skyldufund.
— Mér finnst enn að við
ættum að skíra hann Andra,
sagði konan mín.
— Ég get ekki skilið hvað þið
hafið á móti nafninu Pétur,
sagði ég. — Margir þjóðkunnir
menn hafa borið þetta nafn.
— Mér finnst Andri miklu
fallegra nafn, hélt konan mín
áfram. — Eða ættum við að
finna eitthvert hátíðlegra nafn?
Eins og til dæmis Alexander eða
Hannibal? Réttu mér nafna-
bókina.
Við höfðum keypt bók með
2000 drengjanöfnum í stafrófs-
röð, svo að við þurftum ekki
annað en að athuga siðurnar
þangað til við rækjumst á það
rétta. En i hvert skipti sem við
reyndum það vorum við strax á
llniiiirinn 2l.m;irs 20.afiril
Hversdagsleikinn fer
óumræðilega í taug
arnar á þér. En þú skalt
varast að gera eitthvað
hneykslanlegt, einungis
til þess að vekja á þér
athygli innan fjölskyld-
unnar.
NauliA 21.;ipríI 2l.niai
Farðu að öllu með gát í
samskiptum við félag-
ana. þvi að litið þarf til
að slettist upp á vinskap-
inn. Vikan verður þér
ánægjuleg á heima-
vigstöðvum. einkum i
vikulokin.
T\ihurarnir 22.mai 2l. júni
Vertu á verði gagnvart
kunningjum sent gefa
góð ráð í sífellu án þess
að samúð sé þar undir-
rótin. Minni háttar
deilur við hörundsáran
ættingja gætu dregið
dilk á eftir sér.
hr. hhinn 22.júni 2.\.júli
Þunglyndi hefur náð
tökum á þér og nú
virðist ætla að reynast
erfitt að snúa við
blaðinu. Hafðu
samband við gantlan
kunningja. þvi ekki er
ólíklegt að það bæti
skapið til rnuna.
I.júniú 2-l. juli 24. ii*ú»l
Þetta verður hin þægi-
legasta vika hjá þér þótt
ekki verði um neina
stórviðburði að ræða.
Leggðu þig frarn urn að
þóknast vinum og
kunningjum. þvi á það
hefur svo sannarlega
skort að undanförnu.
>lc\ j;in 24-;ii*úM 2.Vscpl.
Óvæntur atburður
tengdur fortiðinni
kemur þér nijög vel og
gleði þin virðist
takmarkalaus. Ekki eru
þó öll kurl komin til
grafar og síðari hluta
vikunnar skýrast málin
allverulega.
Löng bið eftir
ákveðnum atburðum
innan fjölskyldunnar
hefur reynt á þolin-
mæðina. Allar likur eru
á að biðin eigi eftir að
lengjast enn um sinn.
þér til ómældrar
skapraunar.
Sporúdrckinn 24.okl. 2.T.nú\.
Nýtt áhugamál á hug
þinn allan og þú getur
vart um annað hugsað.
Eldntóður þinn verður
öðrum hið mesta
aðhlátursefni, en þú
lætur það ekki á þig fá
og munt uppskera
rikulega að lokum.
lloi<iii;iúiirinii 24.nó\. 2l.úcv
Breytingar eru ágætar
en hafðu samt hugfast
að varasamt er að
breyta einungis
breytinganna vegna. Oft
verður ekki aftur snúið
og það gæti komið þér i
koll þegar fram i sækir.
Stcingcilin 22. úcs. 20. jan.
Vinur þinn veldur þér
miklurn áhyggjum og
jafnvel vonbrigðum.
Dæntdu hann af
varfærni og skilningi því
allt á sér niiklu eðlilegri
orsakir en virðist við
fyrstu sýn.
\;itnshcrinn 21. jan. lú.fchi.
Náinn ættingi gerir þér
ómetanlegan greiða,
sem þú reyndar áttir alls
ekki skilið, þvi
framkoma þín gagnvart
þessum ættingja hefur
verið ámælisverð.
einkum undanfarnar
vikur.
Hskarnir 20.fchr. 20. mars
Atvik sem i fyrstu
virðist litilvægt dregur
dilk á eftir sér. Þetta
hefur þegar til lengdar
lætur mikil áhrif á lif
þitt og verður til þess að
áætlanir breytast á
ýmsan máta.
34 Víkan 8. tbl.