Vikan - 21.02.1980, Síða 35
blaðsíðu sex komin með svo
mikinn höfuðverk og svima að
við gátum ekki haldið áfram.
— Hún er til einskis, sagði ég.
— Þá getum við alveg eins
klippt þessi 2000 nöfn út úr
henni, hent þeim í hatt og dregið
Tengdamútta greip fram í
fyrir mér:
— En að skíra hann Níels
Sigvalda Theodór Kristófer eins
og langafa hans?
— Alltof gamaldags, sagði ég.
— Það þýðir ekkert fyrir þig að
klifa stöðugt á þessum gömlu,
rykföllnu nöfnum bara af því að
þau hafa haldist í ættinni.
Laugardagurinn rann upp og
morguninn eftir átti að færa
nafn barnsins inn í kirkjubækur.
Við höfðum enn ekki komist að
neinni niðurstöðu. Ég bjó til
iista með 100 fallegum nöfnum
og bað Maríönnu og tengda-
múttu að stroka þau nöfn út
sem þeim fannst alls ekki koma
til greina en setja kross við þau
nöfn sem þær helst kusu.
Maríanna strikaði öll nöfnin út
nema Andra, ég setti kross við
Pétur og tengdamútta fór í fýlu
af því að ég hafði alls ekki tekið
gömul og gegn nöfn eins og
Jóakim Hallfreð og Níels
Sigvalda Theodór Kristófer með
á listann.
— Við þurfum líka að gæta
þess að nafnið hans taki sig vel
út í símaskránni og á nafn-
spjaldinu hans, sagði ég.
Síðan lagðist ég undir feld og
braut heilann ákaft um heppileg
nöfn. Á sunnudagsmorgni hafði
ég fundið frábæra lausn.
Drengurinn átti að heita
Aðalgeir Ingólfur Cýrus
Magnús Pétur.
— Ég hef nú bara aldrei á ævi
minni heyrt jafnbrjálæðislega
samsetningu, sagði Maríanna.
— Hvernig í ósköpunum
komstu að þessari niðurstöðu?
— Sjáðu til, sagði ég ákafur.
— Ég reyndi að taka enga
skammtíma ákvörðun heldur
hugsa vel fram í tímann. Og það
er meira en þið hafið gert. Það
kemur að því að hann fær síma
og kemst í símaskrána. Og í
símaskránni eru öll nöfnin stytt
nema eitt, hversu falleg sem þau
eru. í símaskránni mun Aðalgeir
Ingólfur Cýrus Magnús Pétur
Vilhjálmsson koma svona út:
Skop
— Ark. ing. cand. mag. Pétur
Vilhjálmsson.
Þarf ég að taka það fram að
drengurinn var skírður Andri?
Þýð.: JÞ
8. tbl. Vikan 35